Kjósendur Sjálfstæðisflokksins síst líklegir til að sjá spillingu

Samkvæmt alþjóð­legri við­horfa­könnun telja 34 pró­sent Íslend­inga „flesta“ eða „nær alla“ stjórn­mála­menn viðriðna spill­ingu. Við­horfið er mis­mun­andi hjá fólki eftir því hvaða flokk það kaus í kosn­ing­unum árið 2016.

Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins eru síst lík­legir til að sjá spill­ingu og síður lík­legir til að sjá hana en kjós­endur Bjartrar Fram­tíð­ar, Sam­fylk­ing­ar, Vinstri Grænna og Pírata. Kjós­endur Pírata eru lík­leg­astir til að sjá spill­ingu.

Þetta kemur fram í aðsendri grein Sigrúnar Ólafs­dóttur, pró­fess­ors í félags­fræði við Háskóla Íslands.

Sigrún bendir á að sam­kvæmt alþjóð­legri við­horfa­könn­unin, sem síð­ast var lögð fyrir á vor­mán­uðum 2017, komi fram að lang­flestir Íslend­ingar sjái ein­hverja spill­ingu meðal stjórn­mála­manna og veru­legur hluti telur að hún sé mjög mik­il. Ein­ungis 7 pró­sent telji nán­ast enga stjórn­mála­menn viðriðna spill­ingu, 21 pró­sent telji að það séu fáein­ir, 38 pró­sent nokkrir, 29 pró­sent margir og 5 pró­sent nán­ast all­ir.

Á mynd­inni hér að neðan eru teknir saman þeir sem telja að margir eða nán­ast allir stjórn­mála­menn séu viðriðnir spill­ingu og skoðað hversu lík­legir svar­endur eru til að telja að að margir eða nán­ast allir stjórn­mála­menn séu viðriðnir spill­ingu eftir því hvaða flokk svar­endur kusu 2016. 

Í grein Sigrúnar kemur fram að þannig séu 18 pró­sent líkur á að kjós­andi Sjálf­stæð­is­flokks telji marga eða nán­ast alla ­stjórn­mála­menn viðriðna spill­ingu, um fjórð­ungur kjós­enda Fram­sóknar og Við­reisn­ar, 35 pró­sent kjós­enda Bjartrar Fram­tíðar og Sam­fylk­ing­ar, 40 pró­sent kjós­enda Vinstri Grænna og nær helm­ingur kjós­enda Pírata.

„Ef við bætum við þeim sem svara að nokkrir séu viðriðnir spill­ingu kemur í ljós að á bil­inu 75 til 88 pró­sent kjós­enda Bjartrar fram­tíð­ar, Sam­fylk­ing­ar, Vinstri Grænna og Pírata telja að nokkrir, margir, eða nán­ast allir stjórn­mála­menn séu viðriðnir spill­ingu,“ segir Sigrún.

Hrunið hefur haft langvarandi áhrif á viðhorf Íslendinga

Einnig kemur fram í grein­inni að Hrunið hefur haft langvar­andi áhrif á við­horf Íslend­inga. Árið 2003 taldi innan við þriðj­ungur svar­enda að spill­ing væri frekar eða mjög útbreidd en sex árum seinna, í kjöl­far Hruns­ins, sé það hlut­fall komið í 77 pró­sent og sé síðan örlítið hærra strax í kjöl­far Pana­ma­mót­mæl­anna 2016.

Nýj­ustu mæl­ing­arnar á vor­mán­uðum 2017 sýni að eitt­hvað hefur dregið úr hlut­falli þeirra sem telja spill­ingu frekar eða mjög útbreidda, en sé samt mun hærri en við sáum fyrir tæpum 15 árum. Því bendi gögnin til þess að áhyggjur um spill­ingu séu mun útbreidd­ari eftir Hrun, óháð því hvort umræðan á hverjum tíma sé sér­stak­lega um spill­ingu eins og í kjöl­far Pana­ma­mót­mæl­anna eða þegar engin áber­andi umræða er um slík mál eins og á vor­mán­uðum 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

spilling

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár