Sarkozy ákærður fyrir spillingu og mútuþægni

Fyrrum for­seti Frakk­lands er ákærður fyrir að hafa þegið fjár­magn frá Gaddafi, fyrrum for­seta Líbíu.

Nicolas Sarkozy, fyrrum for­seti Frakk­lands, hefur verið ákærður fyrir spill­ingu og mútu­þægni. Rétt­ar­höld yfir honum munu fara fram á næstu mán­uðum í París, að því er kemur fram í frétt Le Monde.

Sarkozy er einnig sak­aður um að hafa þegið fjár­magn frá Mouammar Gaddafi, fyrrum for­seta Líbíu, í kosn­inga­bar­átt­unni 2007.

Katar og knattspyrna tengjast málinu

Í gær var fyrrum for­seti UEFA, Platini, hand­tek­inn. Telja frönsk yfir­völd að mögu­lega hafi Sarkozy haft áhrif á að Platini kaus Qatar sem næsta ríki til að halda heims­meist­ara­mótið í knatt­spyrnu árið 2022.

[adspot]Samkvæmt frétt Guardian hafa frönsk yfir­völd sér­stakan áhuga á hádeg­is­verði þar sem Platini og Sarkozy hitt­ust ásamt Tamim al-Thani, þáver­andi prins og núver­andi kon­ungs, og Sheikh Hamad bin Jassim, þáver­andi kon­ungs Katar.

Platini hefur haldið því fram að Sarkozy hafi viljað að hann kysi Katar sem næsta gest­gjaf­a­ríki heims­meist­ara­móts­ins í knatt­spyrnu. Platini heldur því þó fram að hann hafi ákveðið að kjósa Katar áður en hann sneiddi hádeg­is­verð­inn með fyrrum for­set­anum, kon­ung­inum og prins­inum, að því er kemur fram í frétt Guardian.

Hleraður af yfirvöldum

Upp komst um Sarkozy í gegnum síma­hler­anir, en sím­töl hans og fyrrum lög­manns hans, Thierry Herzog, voru

hljóð­rituð

af yfir­völdum. Ásamt fyrrum for­set­anum voru Herzog og hæsta­rétt­ar­dóm­ar­inn Gilbert Azibert ákærðir fyrir spill­ingu og mútu­þægni. Hinn síð­ar­nefndi var einnig ákærður fyrir að rjúfa þagn­areið, sam­kvæmt umfjöllun Le Monde.

Þetta er í fyrsta skipti sem fyrrum for­seti Frakk­lands hefur verið kærður fyrir spill­ingu. Lögmaður Sarkozy, Jacqueline Laffont, telur að ekki sé lög­legt að nota hljóð­ritun á sím­tölum Sarkozy þar sem það brjóti í bága við lög Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu.

Leki í skiptum fyrir stöðu í Mónakó

Azibert, dóm­ar­inn sem áður var nefndur, er sak­aður um að hafa lekið leyni­legum upp­lýs­ingum til Sarkozy og Herzog er varðar dóms­mál sem við­kemur Sarkozy. Azibert er sak­aður um að hafa reynt að hafa áhrif á dóms­málið í skiptum fyrir að vera veitt staða í Mónakó af Sarkozy. Að lokum hlaut hann þó ekki stöð­una.

Verið er að rann­saka önnur mögu­leg lög­brot Sarkozy. Hann er til dæmis sak­aður um að hafa farið 20,5 millj­ónum evra fram úr leyfi­legri hámarks­fjár­hæð kosn­inga­bar­átt­unnar árið 2012.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

spilling

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár