Bankaleki opinberar reikninga einræðisherra og glæpamanna hjá Credit Suisse

Upp­lýs­ingar um 30 þús­und við­skipta­vini sviss­neska bank­ans Credit Suisse voru opin­ber­aðar í gær­kvöldi. Þar koma meðal ann­ars í ljós við­skipti bank­ans við dæmda fjársvik­ara, spillta stjórn­mála­menn og fólk sem stund­aði pen­inga­þvætti.

Sviss­neski bank­inn Credit Suisse hefur átt í við­skiptum við ein­ræð­is­herra, fjársvik­ara, eit­ur­lyfja­smygl­ara og annað fólk sem hefur gerst sekt um alvar­lega glæpi. Þetta kemur fram í ítar­legri úttekt The Guardian á umfangs­miklum leka á upp­lýs­ingum frá bank­anum sem birt­ist í dag.

Samkvæmt úttekt­inni inni­heldur lek­inn upp­lýs­ingar um rúm­lega 18 þús­und banka­reikn­inga sem tengdir eru 30 þús­und við­skipta­vinum bank­ans. The Guardian segir upp­lýs­ing­arnar benda til þess að bank­inn hafi ekki sinnt áreið­an­leika­könnun við­skipta­vina sinna með full­nægj­andi hætti, þrátt fyrir yfir­lýs­ingar hans um að slíta á við­skipta­sam­bönd sem inni­halda illa fengið fé.

Lekinn spannar banka­reikn­inga marga ára­tugi aftur í tím­ann, en þeir elstu voru stofn­aðir á fimmta ára­tug síð­ustu aldar. Meiri­hluti þeirra var hins vegar stofn­aður eftir síð­ustu alda­mót og eru sumir þeirra enn opnir. Gögnunum var fyrst lekið til þýska blaðs­ins Süddeutsche Zeitung, en nú hafa 48 fjöl­miðlar um allan heim fengið aðgang að þeim. Þeirra á meðal eru Le Monde, New York Times og The Guardian.

Bankinn átti í við­skiptum við fjölda dæmdra glæpa­manna, meðal ann­ars Stefan Seder­holm, sem var dæmdur í lífs­tíð­ar­fang­elsi fyrir man­sal í Fil­ipps­eyjum. Credit Suisse hélt banka­reikn­ingi Seder­holm opnum í rúm tvö ár eftir að hann var dæmdur árið 2011.

Einnig var þar að finna teng­ingar við fjölda ein­ræð­is­herra og fjöl­skyldu­með­limi þeirra. Til að mynda stofn­uðu synir níger­íska ein­ræð­is­herr­ans Sani Abacha 214 millj­óna Banda­ríkja­dala reikn­ing í bank­anum. Abacha er tal­inn hafa stolið allt að fimm millj­örðum Banda­ríkja­dala frá þjóð­inni sinni.

Sömu­leiðis var þar að finna reikn­ing sem var stofn­aður af Pavlo Lazarenko, for­sæt­is­ráð­herra Úkraínu árin 1997 og 1998. Samvæmt mati Transparency International tók Lazarenko 200 millj­ónir Banda­ríkja­dala úr rík­is­sjóði Úkraínu.

Í yfir­lýs­ingu sem Credit Suisse gaf út í kjöl­far birt­ingar skjal­anna þvertók bank­inn fyrir ásak­anir um vafa­sama við­skipta­hætti, en sam­kvæmt honum eru upp­lýs­ing­arnar sem fengnar eru úr lek­anum teknar úr sam­hengi. Bankinn sagði enn frekar að ásak­an­irnar séu að mestu leyti vegna gam­alla mála og í sumum til­vikum frá tíma þar sem „lög, við­skipta­hættir og vænt­ingar til fjár­mála­stofn­ana voru öðru­vísi en þær eru núna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

spilling

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár