Segir Bitcoin vera „túlipana 21. aldarinnar“

Pró­fessor í við­skipta­fræði­deild HÍ segir miklar verð­hækk­anir á Bitcoin vera fjár­fest­inga­bólu og að heild­ar­fram­lag raf­mynt­ar­innar til hag­kerf­is­ins verði nei­kvætt þegar bólan springur.

Gylfi Magnússon, prófessor í viðskiptafræðideild Háskóla Íslands
Gylfi Magn­ús­son, pró­fessor í við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands Mynd: Kristinn Ingvarsson

Verð­þróun raf­mynt­ar­innar Bitcoin á síð­ustu vikum svipar til Túlíp­ana­æð­is­ins í Hollandi á 17. öld, að mati Gylfa Magn­ús­sonar, pró­fess­ors í við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands. Samkvæmt honum er nota­gildi mynt­ar­innar tak­markað og því magn við­skipta með hana tak­markað. Enn fremur segir hann að þar sem vinnsla hennar sé kostn­að­ar­söm mun Bitcoin eyða meiri verð­mætum heldur en hún skapar.

Takmarkað notagildi

Í grein sinni í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar, sem kom út á föstu­dag­inn, fer Gylfi yfir nota­gildi Bitcoin, sem og ann­arra raf­mynta, auk fram­tíð­ar­mögu­leika þeirra. Þar bendir hann á að lítið sé hægt að nota mynt­ina við greiðslu­miðlun, þrátt fyrir að engar tækni­legar hindr­anir liggi þar að baki. Hins vegar sjái fáir kaup­menn ástæðu til að taka á móti greiðslu með Bitcoin, nema helst vegna við­skipta á jaðri hins svarta og hvíta hag­kerfis.

Einnig bætir Gylfi við að óstöðugt gengi og van­geta bálka­keðju­tækn­innar við að ráða við mikið magn við­skipta spili stórt hlut­verk í að raf­myntir hafi ekki orðið að almenni­legum greiðslu­miðli.

Nánast umhverfishryðjuverk

Helsti galli Bitcoin telur Gylfi þó vera að fram­leiðsla mynt­ar­innar sé gríð­ar­lega kostn­að­ar­söm. Stað­fest­ing færslna með mynt­inni krefst flók­inna og orku­frekra tölvu­út­reikn­inga, sem Gylfi kallar „gengd­ar­lausa sóun“, en stór hluti íslenskra gagna­vera fæst einmitt við þetta.

„Þótt íslenska raf­magnið sé e.t.v. sæmi­lega umhverf­is­vænt þá á það almennt ekki við um raf­magn sem notað er í þessu skyni,“ bætir Gylfi við. „Í heimi sem glímir við hnatt­ræna hlýnun vegna orku­notk­unar er Bitcoin því alvar­legt umhverf­isslys – nán­ast umhverf­is­hryðju­verk.“

Meiraflónshagkerfi

Vegna þess hve tak­markað nota­gildi Bitcoin hefur sem gjald­mið­ill áætlar Gylfi að meiri­hluti við­skipt­anna sem átt hefur sér stað með raf­mynt­ina á und­an­förnum miss­erum sé drif­inn áfram af spá­kaup­mennsku. Þannig svipi kaupin á raf­mynt­inni til Túlip­ana­æð­is­ins í Hollandi, þar sem verð kaup­samn­inga á túlipönum rauk upp úr öllu valdi vegna spá­kaup­mennsku og hrundi svo á fyrri hluta 17. aldar.

Slíka þróun kallar Gylfi „meiraflóns­hag­kerfi,“ þar sem kaup­endur mynt­ar­innar á yfir­verði búast við að geta fundið ein­hvern annan sem sé til í að kaupa hana af þeim á enn hærra verði. Óhjá­kvæmi­legt er að slík kerfi hrynji, að mati Gylfa.

„Þegar bólan hefur sprungið munu ein­hverjir hafa grætt ein­hver ósköp, þ.e. þeir sem sluppu út úr meiraflóns­hag­kerf­inu í tíma,“ segir Gylfi. „Það geta hins vegar ekki allir sloppið. Þeir sem koma með pen­inga inn á loka­metr­unum í bólunni koma verst út. Með­al­fjár­festir­inn mun tapa veru­legum hluta sinnar fjár­fest­ingar vegna þess að verð­mæta­sköp­unin í heild er ekki núll heldur nei­kvæð vegna kostn­að­ar­ins við náma­vinnsl­una.“

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu með því að smella hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár