Svona geta stjórnvöld orsakað nýtt fjármálaáfall

Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði, hefur búið til lista yfir átta aðgerðir sem rík­is­stjórn og Seðla­banki gætu gripið til sem gætu leitt af sér nýtt hrun. Hann biður fólk um að krossa við ef aðgerð­irnar verði að veru­leika.

„Stjórn­völd, þ.e.a.s. rík­is­stjórn og hinn nýji stóri seðla­banki, sem varð til með lögum um sam­ein­ingu FME og Seðla­bank­ans nú í sumar, gætu tekið ákvarð­anir á næstu árum sem stefna stöð­ug­leika hag­kerf­is­ins í hættu. Til þess að hættu­á­stand skap­ist þurfa margir þættir að breyt­ast, eng­inn einn nægir.“

Þetta segir Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði við Háskóla Íslands, í grein sem birt­ist í nýj­ustu útgáfu Vís­bend­ingar sem kom út í gær.

Hann segir mik­il­vægt að stjórn­völd á hverjum tíma hafi hags­muni allrar þjóð­ar­innar í huga þegar ákvarð­anir eru teknar um þjóð­hags­varúð í efna­hags­málum. „Þetta þýðir að sem fæstir geti hagn­ast á gerðum sem stefna fjár­hag ann­arra í hættu. Þess vegna eru var­úð­ar­reglur nauð­syn­legar, svo að við end­ur­tökum ekki leik­inn frá því 2003-2007. Lánsfé er enn ódýrt á alþjóð­legum fjár­mála­mörk­uðum. Vonandi munu stjórn­völd á kom­andi árum huga að þjóð­ar­hag í stað þess að hygla sér og sínum. Við skulum vona það besta en búa okkur undir það versta.“

[adspot]Í grein­inni segir Gylfi að á und­an­förnum tíu árum hafi gengið vel í efna­hags­málum hér á landi. Heppni, til­vilj­anir og ekki síst bætt hag­stjórn hafa skilað betri árangri. „Verð­bólga hefur verið lág, atvinnu­leysi sömu­leiðis, hag­vöxtur mynd­ar­legur og vextir sögu­lega mjög lágir. Afgangur hefur verið á við­skiptum við útlönd, eigna­staða gagn­vart útlöndum aldrei betri og gjald­eyr­is­forði meiri en 600 millj­arðar króna.“

Það sé þó afar mik­il­vægt að stjórn­völd á hverjum tíma verji heild­ar­hags­muni en ekki sér­hags­muni með því að setja almennar reglur sem koma í veg fyrir að sumir hagn­ist með því að setja aðra í hættu. „Ein­stakir aðilar í sam­fé­lag­inu geta, svo nokkur dæmi séu tekin, haft hag af því að taka erlend lán til þess að kaupa hluta­bréf, selja íslensk skulda­bréf til erlendra fjár­festa sem vilja hagn­ast til skamms tíma, greiða bónusa í bönkum sem verð­launa fyrir mik­inn fjölda nýrra útlána og láta banka og útlána­söfn vaxa hratt. Ef rík­is­stjórn og seðla­banki láta stjórn­ast af slíkum hags­munum þá er voð­inn vís.“

Gylfi segir að grund­völlur aðgerða sem gætu leitt af sér nýtt hættu­á­stand sé sú trú, eða blekk­ing, að áfallið 2008 staf­aði ein­ungis af hinni alþjóð­legu fjár­málakreppu. Hér­lendis hafi reglu­verk ekki verið í lagi og hag­stjórn­ar­mis­tök verið gerð ofan á annað sem átti sér stað á þessum árum.

Gylfi telur svo upp þá atburði sem gætu fram­kallað nýtt fjár­mála­hrun. Hann biður les­endur að prenta grein­ina út og setja X við þau atriði sem verða að veru­leika. Ekki sé bráð hætta ef X-in verði eitt eða tvö en ef þeim fjölgi þá muni hættan á fjár­mála­á­falli aukast.

Atriðin eru eftirfarandi:

1. Eiginfjárkrafa banka lækkuð. [ ]

Rökstutt með því að verið sé að draga úr kostn­aði við banka­rekstur sem er satt en gerir bönkum einnig kleift að auka útlán meira og hraðar. Hröð aukn­ing útlána myndi minnka gæði útlána­safna og aukar líkur á útlánatapi.

2. Slakað á takmörkunum á lánum í erlendri mynt til óvarinna innlendra aðila; fyrirtækja, einstaklinga og sveitarfélaga. [ ]

Rökstutt á þann hátt að ein­stök fyr­ir­tæki og ein­stak­lingar geti ávallt staðið í skilum ef gengi krónu fellur ef erlendu lánin eru ekki of hátt hlut­fall af heild­ar­skuldum en gleym­ist að lýsa áhrifum þess að allir taki slík lán. Þegar stór hluti fyr­ir­tækja tekur lán verður það til þess að hækka gengi krón­unnar sem skapar hvata fyrir enn fleiri að taka erlend lán. Þegar erlendir bankar og fjár­festar kippa síðar að sér hend­inni og vilja fá end­ur­greitt þá fellur krónan og skuldir í krónum stökk­breyt­ast, fyr­ir­tæki verða tækni­lega gjald­þrota.

3. Möguleikar annarra, sérstaklega lífeyrissjóða, til þess að keppa við bankana takmarkaðir. [ ]

Eykur hagnað banka á kostnað almenn­ings. Erfitt að rök­styðja. En rök­stuðn­ingur verður án efa ein­hver.

4. Dregið úr takmörkunum á bónus greiðslum í bankakerfinu. [ ]

Rökstutt með því að ann­ars verði grunn­laun of há og of litlir hvatar til góðrar frammi­stöðu. En bónus greiðslur verð­launa umsvif, t.d. mældum í umfangi nýrra útlána, og gæði útlána­safna eru því verri sem þau vaxa hraðar. Bankar verða brot­hættir við það að útlán vaxa hratt.

5. Fjármálaeftirlit, sem verður hluti af Seðlabankanum, verður skilningsríkt á þarfir og óskir stjórnenda bankanna. [ ]

Fullyrt að fjár­mála­eft­ir­lit sé gott. Í raun verður það stimp­ill sem segir að aðgerðir banka séu lög­legar óháðar því hvort þær séu hættu­legar fyrir fjár­mála­kerfið.

6. Fullyrt að fjármálastöðugleiki grundvallist á góðum hagnaði banka. [ ]

Hljómar vel en er hættu­legt. Munið eftir miklum hagn­aði gömlu bank­anna fram að and­láti. Það skiptir máli hvernig hagn­aður verður til, hvort hann er búinn til af end­ur­skoð­endum eða hvort hann í raun eykur eigið fé. [adspot]

Peningastefna:

7. Hömlur á innflæði kviks fjármagns (sérstök bindiskylda) ekki virkjuð þegar innlend fjármálafyrirtæki byrja að selja skráð krónuskuldabréf til erlendra fjárfesta í miklu magni. [ ]

Réttlætt með því að frjálst flæði auki hag­kvæmni og sé í sam­ræmi við alþjóð­lega samn­inga (ESB). En inn­flæðið skekkir inn­leitt vaxtaróf og hækkar gengi. Tveir kostir eru í boði. Annars vegar að hafa sömu lágu vext­ina og á evru­svæð­inu en vextir nálægt 0% myndu valda hækkun fast­eigna- og hluta­bréfa­verðs og draga úr inn­lendum sparn­aði. Hins vegar mætti halda vöxtum óbreyttum og láta gengi krón­unnar hækka vegna vaxta­mun­ar­við­skipta, verð á inn­flutn­ingi félli og við­skipta­halli mynd­að­ist. Erlendir fjár­festar gætu síðar selt bréfin og krónan myndi þá falla skyndi­lega. Fjár­mála­stöð­ug­leika væri stefnt í hættu.

Til þess að bæta gráu ofan á svart:

8. Bankar seldir til pólitískt tengdra aðila í skuldsettri fléttu, a.m.k. einn ef ekki tveir. Það sem eftir situr í eigu ríkisins verður einnig undir stjórn pólitískt tengdra aðila. [ ]

Fullyrt að nýir eig­endur séu ekki póli­tískt tengdir þótt þeir séu það. Þessi síð­asti liður myndi hella olíu á eld­inn sem mynd­að­ist í atriðum 1-7 hér að ofan vegna þess að stjórn­valds­að­gerðir tækju í meira mæli mið af sér­hags­munum þess­ara aðila en ekki þjóð­hags­varúð.

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabanki

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár