Seðlabankinn með stærsta inngrip á gjaldeyrismarkað frá hruni

Krónan hefur veikst mjög hratt það sem af er ári og Seðla­banki Íslands greip fast inn í gjald­eyr­is­mark­að­inn í síð­ustu viku. Verð­bólgu­skot er þó ekki í kort­unum.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

Seðla­banki Íslands seldi gjald­eyri fyrir um átta millj­arða króna í síð­ustu viku til að toga á móti skar­pri lækkun á gengi krón­unnar. Á föstu­dag seldi bank­inn alls gjald­eyri úr forða sínum fyrir 3,6 millj­arða króna, sem er hæsta upp­hæð innan dags frá árinu 2008 hið minnsta, þegar banka­hrun varð á Íslandi. Frá þessu er greint í Mark­aðnum, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins um efna­hags­mál og við­skipti, í dag.

Krónan hefur veikst hratt und­an­farnar vikur. Frá ára­mótum hefur gengi hennar gagn­vart evru lækkað um tæp 14 pró­sent, þar af hefur gengið lækkað um 12 pró­sent síð­ast­lið­inn mánuð.

[adspot]Gagnvart Banda­ríkja­dal hefur lækk­unin verið enn skarp­ari. Krónan hefur veikst gagn­vart honum um tæp­lega 16 pró­sent frá því um ára­mót en sú veik­ing hefur verið minni en gagn­vart evru síð­ast­lið­inn mánuð, eða tæp­lega tíu pró­sent.

Í Mark­aðnum er bent á að þrátt fyrir þetta hafi verð­bólgu­horfur á mark­aði

ekki hækkað mikið og séu enn í kringum verð­bólgu­mark­mið Seðla­banka Íslands. Verð­bólgu­skot er því ekki í kort­unum.

Ástæða þess er sú að mik­ill slaki hefur skap­ast í íslensku hag­kerfi, meðal ann­ars vegna þess að kaup á flug­ferðum hafa nán­ast stöðvast, og fall á heims­mark­aðs­verð á olíu togar á móti í hina átt­ina, en það hefur meira en helm­ing­ast það sem af er ári.

Þá er við­búið að fast­eigna­verð muni standa í stað eða lækka. Það mun einnig halda aftur af verð­bólgu.

Lífeyrissjóðir hvattir til að fara ekki út með fé

Lands­sam­tök líf­eyr­is­sjóða sendu í gær frá sér hvatn­ingu til allra líf­eyr­is­sjóða lands­ins um að halda að sér höndum um gjald­eyr­is­kaup á næstu þremur mán­uðum. „Þykir mik­il­vægt að sjóð­irnir leggi sitt af mörkum við að styðja við íslenskt sam­fé­lag og stuðla þannig að stöð­ug­leika þegar gefur á bát­inn.“

Þetta kom fram í til­kynn­ingu sem for­maður stjórnar Lands­sam­tak­ana, Guðrún Haf­steins­dóttir, skrif­aði undir og var send í kjöl­far fundar með Ásgeiri Jónssyni seðla­banka­stjóra í gær þar sem fjallað var um þá óvissu sem eru nú til staðar í efna­hags­málum Íslands.

Í til­kynn­ing­unni sagði enn fremur að mik­ill við­skipta­af­gangur síð­ustu ára hafi gefið líf­eyr­is­sjóðum lands­ins svig­rúm til þess að fjár­festa erlendis og ná fram áhættu­dreif­ingu í eigna­safni sínu. „Í ljósi þess að útflutn­ings­tekjur lands­ins munu fyr­ir­sjá­an­lega drag­ast saman tíma­bundið telja Lands­sam­tök líf­eyr­is­sjóða það eðli­legt að líf­eyr­is­sjóðir standi ekki að gjald­eyr­is­kaupum á næstu mán­uðum. Sjóð­irnir eru í eigu almenn­ings og því mik­il­vægt að þeir sýni ríka sam­fé­lags­lega ábyrgð þegar kemur til fjár­fest­inga og við­bragða í okkar sam­fé­lagi á óvissu­tímum.“

[adspot]Eignir líf­eyr­is­sjóða lands­ins námu 5.006 millj­örðum króna í lok jan­úar síð­ast­lið­ins. Þar af voru erlendar eignir 1.509 millj­arðar króna, eða 30 pró­sent af eignum þeirra.

Viðbúið er að eigna­safn líf­eyr­is­sjóð­anna, hvort sem er hér heima eða erlendis, muni taka á sig mikla lækkun vegna þeirra áhrifa sem útbreiðsla veirunnar sem veldur COVID-19 er að valda á efna­hags­kerfi heims­ins, en stór hluti eigna þeirra eru mark­aðs­verð­bréf. Allir mark­aðir hafa lækkað mikið síð­ustu daga og vikur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár