Seðlabankinn lækkar vexti um 0,25 prósentustig

Seðla­banki Íslands hefur lækkað meg­in­vexti sína, oft kall­aðir stýri­vextir, um 0,25 pró­sentu­stig. Þeir erun nú 2,75 pró­sent.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur lækkað meg­in­vexti sína, oft kall­aðir stýri­vextir, úr 3,0 pró­sentum í 2,75 pró­sent. Sumir grein­ing­ar­að­ilar höfðu búist við þessu skrefi, en almennt var talið að vöxtum yrði haldið óbreyttum.

Alls hafa stýri­vextir því lækkað um 1,75 pró­sentu­stig frá því í maí síð­ast­liðnum þegar yfir­stand­andi vaxta­lækk­un­ar­ferli hófst. ­Skömmu áður, í apr­íl, höfðu hinir svoköll­uðu lífs­kjara­samn­ingar verið und­ir­rit­að­ir. Hluti af því sam­komu­lagi var að skipa sér­staka for­sendu­nefnd, sem í sitja þrír full­trúar atvinnu­rek­enda og þrír full­trúar verka­lýðs­hreyf­ing­ar­inn­ar, til að fylgj­ast með hvort að for­sendur samn­ing­anna væru að halda. Ein slík for­senda var lækkun stýri­vaxta, sem þá voru 4,5 pró­sent. 

Ekki var til­greint sér­stak­lega um það opin­ber­lega hversu mikið vext­irnir þyrftu að lækka til að for­sendur héldu en Kjarn­inn greindi frá því 4. apríl síð­ast­lið­inn að gert hafi verið hlið­­ar­­sam­komu­lag, svo­­kallað „skúffu­­sam­komu­lag“ sem er ekki hluti af opin­berum kjara­­samn­ingi, sem fól í sér að vextir yrðu að lækka um 0,75 pró­­sent­u­­stig fyrir sept­­em­ber 2020, þegar fyrsta end­­ur­­skoðun sér­­stakrar for­­send­u­­nefndar mun eiga sér stað, til að kjara­­samn­ingar hald­i. 

Vext­irnir voru búnir að lækka niður um það í júní 2019, 15 mán­uðum áður en fyrsta end­ur­skoð­unin mun eiga sér stað, og hafa haldið áfram að lækka síð­an. 

Minni hagvöxtur í ár en áður var talið

Í til­kynn­ingu frá Seðla­bank­anum vegna þessa segir að vís­bend­ingar séu um að hag­vöxtur í fyrra hafi verið heldur meiri en áður var talið en horfur fyrir þetta og næsta ár versni sam­kvæmt nýrri þjóð­hags­spá Seðla­bank­ans sem birt er í febr­ú­ar­hefti Pen­inga­mála. Þar er gert ráð fyrir að hag­vöxtur verði ein­ungis 0,8 pró­sent í ár en í nóv­em­ber­spá bank­ans var búist við 1,6 pró­sent vexti. Lakari horfur megi fyrst og fremst rekja til erf­ið­ari stöðu útflutn­ings­at­vinnu­greina og versn­andi fjár­mögn­un­ar­skil­yrða inn­lendra fyr­ir­tækja.

[adspot]Í til­kynn­ing­unni er rakið að verð­bólga hafi minnk­aði hratt er leið á síð­asta ár og var komin í verð­bólgu­mark­mið á síð­asta fjórð­ungi árs­ins. „Hún hélt áfram að minnka í jan­úar og var 1,7 pró­sent sem er minnsta verð­bólga sem mælst hefur síðan haustið 2017. Und­ir­liggj­andi verð­bólga hefur einnig minnkað og er nú við verð­bólgu­mark­mið eins og flestir mæli­kvarðar á verð­bólgu­vænt­ingar. Samkvæmt nýrri spá Seðla­bank­ans verður verð­bólga minni en spáð var í nóv­em­ber og verður undir mark­miði á meg­in­hluta spá­tím­ans.“

Seðla­bank­inn segir að pen­inga­stefnan muni á næst­unni ráð­ast af sam­spili þró­unar efna­hags­um­svifa ann­ars vegar og verð­bólgu og verð­bólgu­vænt­inga hins vegar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnhagmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár