Bankakerfið nær alfarið bundið við Ísland

Sé rýnt í stöðu banka­kerf­is­ins nú sést vel, að það er nær alveg alís­lenskt.

Í lok sept­em­ber námu heild­ar­eignir íslenskra inn­láns­stofn­anna 3.930 millj­örðum króna, og þar af voru eignir sem skil­greindar eru sem erlendar eignir, meðal ann­ars útlán í erlendri mynt, 451,7 millj­örðum króna. Það þýðir að á þennan mæli­kvarða er íslenska banka­kerfið 88,6 pró­sent í íslenskum eignum, en 11,4 pró­sent í erlendum.

Segja má að banka­kerfið hafi nær alveg kúvenst frá því sem var uppi á ten­ingnum fyrir hrun bank­anna, en þá var það um 85 pró­sent erlendis en 15 pró­sent á Íslandi. En það var miðað við stöð­una eins og hún birt­ist í árs­reikn­ingum bank­anna.

Auk þess sem banka­kerfið hefur breyst mikið frá því sem var, þegar kemur að hlut­falli erlendra og inn­lendra eigna, þá hefur það einnig minnkað mikið, og er nú um það bil ein lands­fram­leiðsla á ári að stærð. Fyrir hrun var það um tíföld árleg lands­fram­leiðsla.

Innlendu eign­irnar hækk­uðu um 4,5 millj­arða frá ágúst mán­uði, en erlendar eignir lækk­uðu um 17,8 millj­arða frá mán­uð­inum á undan.

Þetta má sjá í hag­tölum Seðla­banka Íslands.

Stóru bank­arnir þrír, Arion banki, íslands­banki og Lands­bank­inn, högn­uð­ust um 25 millj­arða á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Þar af nam hagn­aður Lands­bank­ans 14,4 millj­örð­um. Hagn­aður Íslands­banka var 6,8 millj­arðar og hagn­aður Arion banka 3,8 millj­arð­ar.

Arð­semi eigin fjár bank­anna hefur farið minnk­andi og hag­ræð­ing hefur verið umtals­verð á skömmum tíma. Þannig hafa stóru bank­arnir þrír, sem eru skil­greindir sem kerf­is­lægt mik­il­vægir, fækkað um 200 starfs­menn frá því í fyrra, en engu að síður er arð­semi eigin fjár fremur lág, eða á bil­inu 1,6 til 7,9 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnhagmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár