Fyrstu tölurnar komnar fram sem sýna fækkun Íslendinga í Noregi

Nýjar tölur norsku hag­stof­unnar sýna að Íslend­ingum er byrjað að fækka í Noregi, í fyrsta skipti frá hruni.

Nýjustu tölu norsku hag­stof­unnar, frá því í síð­ustu viku, sýna að Íslend­ingum er nú tekið að fækka í Noregi í fyrsta skipti frá hruni. Í byrjun árs 2016 voru Íslend­ingar í Noregi 9.573, eins og greint var frá í frétta­skýr­ingu á vef Kjarnans 23. febr­úar síð­astlinn, og fjölg­aði þeim um 354 ein­stak­linga frá árinu á undan. 

Um þessar mundir skráir norska hag­stofan hins vegar 9.246 ein­stak­linga, og hefur þeim því fækkað um 308 frá árinu á undan. Þetta er í fyrsta skipti sem Íslend­ingum í Noregi fækkar milli ára frá hruni. Þetta stærsta Íslend­inga­sam­fé­lag utan Íslands, er nú svipað stórt og sam­fé­lag Banda­ríkja­manna í Noregi, en sam­kvæmt nýj­ustu tölum norsku hag­stof­unnar þá búa 9.210 Banda­ríkja­menn í Noregi.

Langstærsti hópur Inn­flytj­enda í Noregi kemur frá Póllandi, eða ríf­lega 102 þús­und manns. Þar á eftir koma Svíar en þeir eru 44 þús­und í Noregi, en heildar­í­búa­fjöldi í land­inu er nú 5,2 millj­ónir. Fjöldi inn­flytj­enda er tæp­lega 560 þús­und, eða um 11 pró­sent af heildar­í­búa­fjölda. Sam­bæri­leg tala á Íslandi er á milli 8 og 9 pró­sent.

Úr 19 í 12,8

Norska krónan kostar nú 12,8 íslenskar krónur en fyrir tveimur árum kost­aði hún tæp­lega 19 krón­ur. Mörg íslensk fyr­ir­tæki hafa unnið að verk­efnum í Nor­egi, meðal ann­ars tækni­fyr­ir­tæki og verk­fræði­stof­ur, og hefur þessi geng­is­munur því minnkað fram­legð þeirra af verk­efnum sem fyr­ir­tækin hafa verið að sinna með starfs­fólki á Íslandi.

Efna­hags­dýfa í Nor­egi

Norska hag­kerfið hefur verið að glíma við efna­hagslægð sam­hliða hraðri lækkun olíu­verðs á heims­mörk­uð­um. Árið 2014 var verðið á hrá­olíu rúm­lega hund­rað Banda­ríkja­dalir á tunn­una en það fór lægst í 26 Banda­ríkja­dali í febr­úar í fyrra. Nú er það 54 Banda­ríkja­dalir og hefur því rúm­lega tvö­fald­ast á einu ári. Það telst þó enn vera í lágt, í sögu­legu til­lit­i.

Í umfjöllun norska við­skipta­f­rétta­mið­ils­ins Dag­ens Nær­ingsliv hefur komið fram að olíu­iðn­að­ur­inn í Nor­egi þurfi að hafa verið yfir 65 Banda­ríkja­dölum til að hagn­aður skap­ist í öllum iðn­að­in­um. Norska hag­kerfið er þrátt fyrir erf­ið­leik­ana í olíu­iðn­að­inum afar sterkt. Atvinnu­leysi mælist nú 4,7 pró­sent en mest hefur það verið í ýmsum þjón­ustu­iðn­aði við olíu­fram­leiðslu. Roga­land, þar sem Stavan­ger er stærsta sveit­ar­fé­lag­ið, hefur sér­stak­lega fundið fyrir þessar nið­ur­sveiflu í olíu­iðn­að­inum en nokkuð stór hluti Íslend­inga­sam­fé­lags­ins í Nor­egi býr á því svæð­i.

Gengi íslensku krón­unnar gagn­vart þeirri norsku hefur styrkst mikið á und­an­förnum árum, eins og sést á þess­ari mynd frá Keldunni.

Nýta olíu­auð­inn

Nor­egur er eitt allra rík­asta land heims en þessi rúm­lega fimm millj­óna þjóð á fjár­fest­inga­sjóð sem nemur tæp­lega 890 millj­örðum Banda­ríkja­dala að stærð, eða sem nemur um 98 þús­und millj­örðum króna. Það er upp­hæð sem nemur um 20 millj­ónum króna á hvern ein­asta Norð­mann. Sjóð­ur­inn á meðal ann­ars um eitt pró­sent af öllum skráðum hluta­bréfum í Evr­ópu, en í mars á síð­asta ári ákváðu norsk stjórn­völd að nýta 718 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða tæp­lega 90 millj­arða íslenskra króna, til upp­bygg­ingar í norsku efna­hags­líf­i.

Sjóð­ur­inn er rek­inn undir sjálf­stæðri stjórn, sem heyrir undir norska fjár­mála­ráðu­neytið og Seðla­banka Nor­egs, en for­stjóri hans er Yngve Slyngstad. Sjóð­ur­inn er að öllu leyti í eigu norsku þjóð­ar­inn­ar, en fjár­magnið í hann kemur frá olíu­fram­leiðslu í norskri lög­sögu þar sem Statoil er lang­sam­lega stærsta fyr­ir­tæk­ið, en norska ríkið á 68 pró­sent hlut í því. Hagn­aður af olíu­fram­leiðslu er svo skatt­lagður upp á tæp­lega 80 pró­sent, og því fer nær allur hagn­aður af olíu­fram­leiðslu í norskri lög­sögu í olíu­sjóð­inn.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnhagmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár