Ráðuneytið skoðar ferla og meðhöndlun upplýsinga um loðnukvóta

Hluta­bréf í HB Granda ruku upp í aðdrag­anda þess að til­kynnt var um stór­auk­inn loðnu­kvóta.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyti Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur ætlar að fara yfir „alla ferla, sam­skipti og vit­neskju sem lúta að ráð­gjöf Hafró um auk­inn loðnu­kvóta“ að því er segir í form­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um hvenær vit­neskja spurð­ist út um það að loðnu­kvót­inn yrði sext­án­fald­aður.

Eins og greint var frá að vef Kjarnans í gær þá hafa hluta­bréf í HB Granda hækkað tölu­vert síð­ustu daga og rauk gengi bréfa félags­ins upp eftir 8. febr­úar síð­ast­lið­inn. Þá var gengi bréfa félags­ins rúm­lega 25 en á fjórum við­skipta­dögum hækk­aði það um 22,5 pró­sent. Sjó­manna­verk­fall hefur staðið hefur yfir frá 14. des­em­ber með nei­kvæðum afleið­ingum fyrir útgerð­ar­fé­lög og sjáv­ar­út­veg­inn í heild.

Kvótinn var auk­inn í alls 196.075 þús­und tonn á þess­ari ver­tíð. Áætlað heild­ar­verð­mæti loðnu­afl­ans er um 17 millj­arðar króna.

Veltan í þessum við­skiptum var rúm­lega 570 millj­ón­ir, en í dag, eftir að til­kynn­ingin um sext­án­földun á loðnu­kvót­anum kom, hækk­uðu bréfin um 4,13 pró­sent í við­skiptum upp á 410 millj­ón­ir. Ekki liggur fyrir hvaða fjár­festar voru að kaupa bréf á þessum fyrr­nefnda tíma.

Samkvæmt heim­ilum Kjarnans var mikið rætt um þessi við­skipti á fjár­mála­mark­aði, ekki síst þar sem hækk­unin virt­ist á skjön við ytra rekstr­ar­um­hverfi HB Granda og ann­arra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja enda hefur sjó­manna­verk­fall, sem staðið hefur frá 14. des­em­ber, reynst sjáv­ar­út­vegnum erfitt og miklar tekjur tap­ast. 

Fyr­ir­spurn Kjarnans til sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyt­is­ins var eft­ir­far­andi, og svörin sömu­leiðis.

Spurning blaðamanns: Hvenær voru upplýsingar um aukningu loðnukvótans fyrst kynntar ráðherra og ráðamönnum? Hverjir fengu kynningu á þessu, og hvenær, nákvæmlega?

Svar: Tíma­línan er eft­ir­far­andi:

  1. Tvö skip í loðnu­leit 3. – 11. feb. – Í fjöl­miðlum hafa verið við­töl við skip­verja þar sem að sagt er frá því að fund­ist hafi mikið af loðnu (t.d. frétt í Fiski­fréttum). Almenn skila­boð í fjöl­miðlum komin um að búast megi við tölu­verðri hækkun á ráð­gjöf
  2. Mánudag 13. feb. – Tölvu­póstur frá skrif­stofu­stjóra skrif­stofu sjáv­ar­út­vegs og fisk­eldis til ráð­herra þar sem segir að búast megi við nýrri ráð­gjöf um auk­inn kvóta frá Hafró dag­inn eftir. Ákveðið að hlíta ráð­gjöf Hafró hver svo sem hún yrði og koma til­kynn­ingu þess efnis eins hratt út og kostur er.
  3. Skrif­stofu­stjóri hringir í ráð­herra 14. feb. Kl. 10:56 og gerir grein fyrir ráð­gjöf Hafró. Ráðherra ítrekar að ráð­gjöf Hafró skuli fylgt og það skuli kunn­gera þá ákvörðun strax og Hafró hefur sent frá sér til­kynn­ingu um nýja ráð­gjöf.
  4. Frétta­til­kynn­ing frá Hafró 14. feb. kl. 11:38
  5. Frétta­til­kynn­ing frá ANR 14. feb. 11:49

„Í ljósi frétta mun ráðu­neytið fara yfir alla ferla, sam­skipti og vit­neskju sem lúta að ráð­gjöf Hafró um auk­inn loðnu­kvóta,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnhagmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár