Íslendingum heldur áfram að fjölga í Noregi

Þrátt fyrir að íslenska krónan hafi styrkst mikið gagn­vart þeirri norsku að und­an­förnu þá heldur Íslend­ingum í Noregi áfram að fjölga.

Í byrjun árs í fyrra voru 9.573 Íslend­ingar skráðir til heim­ilis í Noregi, sam­kvæmt upp­lýs­ingum norsku Hag­stof­unnar, en í lok árs 2010 voru þeir 5.284. Fjölg­unin nemur því 4.289 ein­stak­lingum á síð­ustu sex árum. Á milli áranna 2015 og 2016 fjölg­aði Íslend­ingum í Noregi um 354 ein­stak­linga eða fjögur pró­sent.

Mesta fjölgunin hjá ungu fólki

Þrátt fyrir að gengi íslensku krón­unnar gagn­vart þeirri norsku hafi styrkst veru­lega á síð­ustu árum, þá virð­ast Íslend­ingar sækja áfram til Noregs eftir vinnu og betra lífi. Fjölg­unin á milli áranna 2015 og 2016 var mest hjá ungu ein­hleypu fólki, sam­kvæmt því sem lesa má út úr gögnum hag­stof­unnar. Ein­hleypir full­orðnir Íslend­ingar í Noregi voru 3.752 í byrjun árs 2016 en í þeim hópi voru 3.616 í byrjun 2015.

Úr 19 í 13

Norska krónan kostar nú rúm­lega 13 íslenskar krónur en fyrir tveimur árum kost­aði hún tæp­lega 19 krónur. Mörg íslensk fyr­ir­tæki hafa unnið að verk­efnum í Noregi, meðal ann­ars tækni­fyr­ir­tæki og verk­fræði­stofur, og hefur þessi geng­is­munur því minnkað fram­legð þeirra af verk­efnum sem fyr­ir­tækin hafa verið að sinna með starfs­fólki á Íslandi.

Efnahagsdýfa í Noregi

Norska hag­kerfið hefur verið að glíma við efna­hagslægð sam­hliða hraðri lækkun olíu­verðs á heims­mörk­uðum. Árið 2014 var verðið á hrá­olíu rúm­lega hund­rað Banda­ríkja­dalir á tunn­una en það fór lægst í 26 Banda­ríkja­dali í febr­úar í fyrra. Nú er það 54 Banda­ríkja­dalir og hefur því rúm­lega tvö­fald­ast á einu ári. Það telst þó enn vera í lágt, í sögu­legu til­liti.

Í umfjöllun norska við­skipta­f­rétta­mið­ils­ins Dagens Nær­ingsliv hefur komið fram að olíu­iðn­að­ur­inn í Noregi þurfi að hafa verið yfir 65 Banda­ríkja­dölum til að hagn­aður skap­ist í öllum iðn­að­inum. Norska hag­kerfið er þrátt fyrir erf­ið­leik­ana í olíu­iðn­að­inum afar sterkt. Atvinnu­leysi mælist nú 4,7 pró­sent en mest hefur það verið í ýmsum þjón­ustu­iðn­aði við olíu­fram­leiðslu. Rogaland, þar sem Stavan­ger er stærsta sveit­ar­fé­lagið, hefur sér­stak­lega fundið fyrir þessar nið­ur­sveiflu í olíu­iðn­að­inum en nokkuð stór hluti Íslend­inga­sam­fé­lags­ins í Noregi býr á því svæði.

Nýta olíuauðinn

Noregur er eitt allra rík­asta land heims en þessi rúm­lega fimm millj­óna þjóð á fjár­fest­inga­sjóð sem nemur tæp­lega 890 millj­örðum Banda­ríkja­dala að stærð, eða sem nemur um 98 þús­und millj­örðum króna. Það er upp­hæð sem nemur um 20 millj­ónum króna á hvern ein­asta Norðmann. Sjóð­ur­inn á meðal ann­ars um eitt pró­sent af öllum skráðum hluta­bréfum í Evrópu, en í mars á síð­asta ári ákváðu norsk stjórn­völd að nýta 718 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða tæp­lega 90 millj­arða íslenskra króna, til upp­bygg­ingar í norsku efna­hags­lífi.

Sjóð­ur­inn er rek­inn undir sjálf­stæðri stjórn, sem heyrir undir norska fjár­mála­ráðu­neytið og Seðla­banka Noregs, en for­stjóri hans er Yngve Slyngstad. Sjóð­ur­inn er að öllu leyti í eigu norsku þjóð­ar­innar, en fjár­magnið í hann kemur frá olíu­fram­leiðslu í norskri lög­sögu þar sem Statoil er lang­sam­lega stærsta fyr­ir­tækið, en norska ríkið á 68 pró­sent hlut í því. Hagnaður af olíu­fram­leiðslu er svo skatt­lagður upp á tæp­lega 80 pró­sent, og því fer nær allur hagn­aður af olíu­fram­leiðslu í norskri lög­sögu í olíu­sjóð­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár