Segir ýmsa krafta valda því að hann hverfi frá Seðlabankanum

Fyrr­ver­andi aðstoð­ar­for­stjóri Fjár­mála­eft­ir­lits­ins seg­ist kveðja starf sitt með nokkrum trega. Alls voru átta störf lögð niður í sam­einaðri stofnun Seðla­banka og Fjár­mála­eft­ir­lits í gær.

Jón Þór Sturluson sést hér fyrir miðri mynd.
Jón Þór Sturlu­son sést hér fyrir miðri mynd. Mynd: Þórður Snær Júlíusson

Jón Þór Sturlu­son, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­for­stjóri Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, er einn þeirra átta starfs­manna sem til­kynnt var um að myndu missa starf sitt við skipu­lags­breyt­ingar Seðla­banka Íslands, sem kynntar voru í gær. Seðla­bank­inn og Fjár­mála­eft­ir­litið voru sam­einuð í eina stofnun um síð­ustu ára­mót og eru skipu­lags­breyt­ing­arnar liður í þeirri sam­ein­ingu.

Í stöðu­upp­færslu sem Jón Þór birti á Facebook í dag seg­ist hann hafa, ásamt fleirum, unnið sam­visku­sam­lega að því síð­ustu 15 mán­uði að tryggja að sam­ein­ing Fjár­mála­eft­ir­lits­ins og Seðla­bank­ans yrði sem far­sælust. Ýmsir kraftar valdi því þó að öðrum en honum verði falið að sigla því verk­efni í höfn. Jón Þór til­greinir ekki um hvaða krafta sé að ræða. en ljóst sé að mikið verk sé óunnið til að tryggja skil­virkan og sterkan sam­ein­aðan Seðla­banka.

[adspot]Jón Þór segir enn fremur að á næstu vikum muni hann ljúka verk­efni sem hann hafi unnið að hjá Alþjóða­greiðslu­bank­anum í Basel á á sviði við­bún­aðar við fjár­mála­á­föllum. Hvað síðan taki við sé enn óráðið. „Það er með nokkrum trega sem ég kveð nú Fjár­mála­eft­ir­litið eftir nærri sjö ára starf og Seðla­bank­ann eftir sjö daga. Á þessum tíma hef ég fengið tæki­færi til að sinna afar þýð­ing­ar­miklum störfum við að stuðla að öryggi og heil­brigði í fjár­mála­starf­semi og byggja upp varnir gegn fram­tíðar fjár­mála­á­föllum. Ég hef líka notið þess að vinna með frá­bærum hópi úrvals­fólks sem ég vil þakka kær­lega fyrir frá­bæra við­kynn­ingu.“

Átta störf lögð niður

Nýtt skipu­rit Seðla­banka Íslands tók gildi í gær á grund­velli nýrra laga um Seðla­banka Íslands vegna sam­ein­ingar Seðla­bank­ans og Fjár­mála­eft­ir­lits­ins í upp­hafi þessa árs. Frá þessu er greint á vef Seðla­bank­ans.

Sam­kvæmt skipu­rit­inu verða kjarna­svið bank­ans sjö, það er hag­fræði og pen­inga­stefna, mark­aðsvið­skipti, fjár­mála­stöð­ug­leiki, bankar, líf­eyrir og vátrygg­ing­ar, mark­aðir og við­skipta­hætt­ir, og laga­legt eft­ir­lit og vett­vangs­at­hug­an­ir.

Stoð­svið bank­ans verða fjög­ur, það er rekst­ur, upp­lýs­inga­tækni og gagna­söfn­un, fjár­hag­ur, og mannauð­ur. Jafn­framt er í skipu­rit­inu mið­læg skrif­stofa banka­stjóra. Með nýju skipu­riti verða nokkur svið lögð niður eða sam­ein­uð, starfs­fólk fær­ist til og átta störf verða lögð nið­ur, sam­kvæmt Seðla­bank­an­um.

Hægt er að sjá nýtt skipu­rit hér að neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabanki

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár