„Hingað til hefur tekist að forðast fjármálakreppu“

Fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri Íslands segir að miklu máli hafi skipt að við­náms­þróttur banka var byggður upp með auknum eig­in­fjár og lausa­fjár­kröfum eftir fjár­málakrepp­una 2008.

„Í fjár­málakrepp­unni 2008 voru seðla­bankar í fremstu víg­línu. Það var í sam­ræmi við eðli krepp­unnar. Núver­andi kreppa er ann­ars konar og nú verða rík­is­stjórnir og opin­ber fjár­mál að taka sér stöðu fremst. Seðla­bankar hafa samt sem áður komið með mikið fram­lag til að örva eft­ir­spurn með lækkun vaxta og víð­tækum eigna­kaupum. Áhrifin koma aðal­lega fram að loknu lok­un­ar­tíma­bil­inu.“

Þetta skrifar Már Guð­munds­son, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri, í grein sem birt­ist í síð­ustu útgáfu Vís­bend­ingar sem barst áskrif­endum fyrir helgi. Már lét af störfum í Seðla­banka Íslands í ágúst í fyrra eftir að hafa gegnt stöðu seðla­banka­stjóra í tíu ár.

[adspot]Í grein­inni segir hann seðla­banka og fjár­mála­eft­ir­lit hafa gegnt lyk­il­hlut­verki í því að forða fjár­málakreppu og stuðla að því að fjár­mála­kerfið upp­fylli miðl­un­ar­hlut­verk sitt. „Þá þurfa seðla­bankar að stuðla að virkni mark­aða og miðl­un­ar­ferlis pen­inga­stefn­unnar. Þetta hefur kallað á marg­vís­legar og umfangs­miklar aðgerðir sem fel­ast m.a. í lausa­fjár­fyr­ir­greiðslu og inn­gripum í ein­staka mark­aði þar sem hnökrar hafa komið upp. Þá hefur gjald­eyr­is­forði verið not­aður til að milda áhrif útflæðis fjár­magns í nýmark­aðs­ríkjum. Slakað hefur verið á sveiflu­tengdum eig­in­fjár­kröfum banka sem hafa sannað gildi sitt. Þá hafa fjár­mála­eft­ir­lit einnig slakað á klónni til að auð­velda bönkum að fjár­magna fyr­ir­tæki í gegnum upp­hafs­erf­ið­leik­ana.“

Með gjald­eyr­is­skipta­samn­ingum Seðla­banka Banda­ríkj­anna hafi tek­ist að vinda að hluta ofan af áhlaupi á doll­ara­fjár­mögnun utan Banda­ríkj­anna. „Hingað til hefur tek­ist að forða fjár­málakreppu. Auk aðgerð­anna skiptir þar miklu að við­náms­þróttur banka var byggður upp með auknum eig­in­fjár og lausa­fjár­kröfum eftir fjár­málakrepp­una 2008.“

Hægt er að ger­­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár