Vill að Samkeppniseftirlitið skoði hegðun bankanna

Gylfi Zoega segir fulla ástæðu vera fyrir Sam­keppn­is­eft­ir­litið til að rann­saka hegðun íslensku bank­anna líkt og gert var með olíu­fé­lögin á sínum tíma. Óvíst er hvort hag­ræð­ingin í rekstri bank­anna hafi skilað sér til neyt­enda.

Gylfi Zoega, hagfræðiprófessor við Háskóla Íslands.
Gylfi Zoega, hag­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands. Mynd: Skjáskot/RÚV

Sam­keppn­is­eft­ir­litið ætti að athuga sam­keppn­isum­hverfið í íslenska banka­kerf­inu, í ljósi mik­illar arð­semi þeirra og fákeppn­isum­hverfis. Þetta skrifar Gylfi Zoega, hag­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands, í grein sinni í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar, sem kom út í dag.

Fákeppni skekkir eignadreifingu

Samkvæmt Gylfa er fákeppni í flestum atvinnu­greinum á Íslandi, vegna smæðar hag­kerf­is­ins og fyr­ir­komu­lags geng­is­mála. Af þeirri fákeppni skap­ast renta sem eykur ráð­stöf­un­ar­tekjur þeirra sem ráða yfir fákeppn­is­fyr­ir­tækj­unum og skekkir smám saman dreif­ingu eigna.

Banka­kerfið er dæmi um slíka fákeppni, en Gylfi segir að þar geti bank­arnir farið sínu fram og aukið eigin arð­semi með ógagn­sæjum verð­skrám og ósam­hverfum upp­lýs­ingum um gjald­skrár og vaxta­mun án þess að við­skipta­vinir þeirra geti rönd við reist.

Í því sam­hengi nefnir Gylfi greiðslu­miðlun, en sam­kvæmt honum skiptir miklu máli fyrir lífs­kjör Íslend­inga að til sé ódýr inn­lend leið til að miðla greiðslum. Til þess að svo megi verða segir hann að stjórn­völd þurfi þá að koma slíkri greiðslu­miðlun á fót eða ákvarða hvaða verð fjár­mála­fyr­ir­tæki megi rukka fyrir hana. Reynist það ómögu­legt ætti að hafa beint eft­ir­lit með miðl­un­inni líkt og tíðkast í öðrum löndum.

Mikill hagnaður en hvað græða viðskiptavinir?

Gylfi segir einnig að mik­ill hagn­aður bank­anna í fyrra veki athygli, sem hefði verið mun minni ef rík­is­stjórnin hefði ekki styrkt fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu og tengdum greinum. „En þá er varla sjálf­sagt að eig­endur bank­anna haldi veislu í lok far­sóttar með arð­greiðslum vegna góðs gengis á tímum þegar sam­fé­lagið var lamað,“ bætir hann við.

Á sama tíma og arð­semi bank­anna hefur verið mikil hafa þeir einnig lækkað rekstr­ar­kostnað sinn með því að skera niður í starf­semi úti­bú­anna sinna. „En hvar liggur ábat­inn af minni kostn­aði bank­anna? Hefur vaxta­munur verið minnk­aður eða þjón­ustu­gjöld lækuð,“ spyr Gylfi og bætir svo við: „Full ástæða er fyrir Sam­keppn­is­eft­ir­lit að rann­saka hegðun bank­anna eins og eft­ir­litið fór ofan í saumana á rekstri olíu­fé­lag­anna fyrir nokkrum árum.“

Hægt er að lesa grein Gylfa í heild sinni með því að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár