Leggur fram frumvarp um að afnema tolla á innflutningi á frönskum kartöflum

Þrátt fyrir að eng­inn inn­lendur fram­leið­andi fram­leiði franskar kart­öflur lengur er 76 pró­sent tollur á inn­flutn­ing þeirra. Ráð­herrar hafa kastað mál­inu á milli sín en nú er komið fram frum­varp um að afnema þennan toll.

Franskar kartöflur njóta tollverndar á Íslandi þrátt fyrir að enginn innlendur aðili framleiði þær. Fyrir vikið kosta þær miklu meira úti í búð en þær þyrftu að kosta.
Franskar kart­öflur njóta toll­verndar á Íslandi þrátt fyrir að eng­inn inn­lendur aðili fram­leiði þær. Fyrir vikið kosta þær miklu meira úti í búð en þær þyrftu að kosta. Mynd: Hvatinn.is

Jóhann Páll Jóhanns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, hefur lagt fram frum­varp þar sem lagt er til að tollur á inn­flutn­ing á frönskum kart­öflum verði afnumin með öllu.

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu kemur fram að franskar kart­öflur beri sem stendur 76 pró­sent toll, sem er hæsti pró­sentu­tollur á mat­vöru í íslensku toll­skránni. „Samkvæmt frí­versl­un­ar­samn­ingum við Kanada og Evr­ópu­sam­bandið eru franskar kart­öflur þaðan fluttar inn á lægri tolli, eða 46 pró­sent, og veldur því að neyt­endur greiða hærra verð fyrir vör­una sem því nemur. Hinn 24. ágúst sl. birt­ist frétt þess efnis að Þykkva­bæjar ehf. hefði hætt fram­leiðslu á frönskum kart­öflum. Þar með hefur fram­leiðslu á frönskum kart­öflum á Íslandi verið hætt og standa því engin rök lengur til slíkrar toll­verndar. Er því lagt til að inn­flutn­ings­tollur á franskar kart­öflur verði afnum­inn neyt­endum og fyr­ir­tækjum til heilla.“

Köstuðu málinu á milli sín

Félag atvinnu­rek­enda sendi Svandísi Svav­ars­dóttur mat­væla­ráð­herra og Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra erindi 24. ágúst síð­ast­lið­inn og hvatti þau til að beita sér fyrir nið­ur­fell­ingu tolls­ins, sem lagður er á inn­fluttar franskar kart­öflur.

[adspot]Í til­kynn­ingu sem birt­ist á vef félags­ins í síð­asta mán­uði sagði að rökin fyrir að fella toll­inn niður væru aug­ljós. „Hann var lagður á til að vernda inn­lenda fram­leiðslu. Lengi vel hefur hann verndað eitt fyr­ir­tæki, Þykkva­bæjar, sem fram­leiddi franskar kart­öflur – reyndar úr inn­fluttum kart­öflum að stórum hluta. Hinn 24. ágúst til­kynnti fyr­ir­tækið að það væri hætt fram­leiðsl­unni. Hæsti pró­sentu­tollur toll­skrár­innar verndar þá ekk­ert lengur. Hann er bara úreltur og ósann­gjarn skattur á verzlun, veit­inga­rekstur og neyt­endur í land­inu, sem nemur 300-400 millj­ónum króna á ári.“

Þar sagði enn fremur að svar hafi borist frá ráðu­neyti Svan­dísar tveimur dögum síðar. Í því kom fram að mat­væla­ráð­herra hefði ekki aðkomu að ákvörðun tolls fyrir umrædda vöru þar sem hún beri ein­ungis verð­toll. Slíkur inn­flutn­ingur heyri undir vald­svið fjár­mála­ráð­herra.

Í fréttum Stöðvar 2 föstu­dag­inn 9. sept­em­ber sagði Bjarni Bene­dikts­son hins vegar að málið væri ekki á sínu borði, heldur hjá Svandísi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár