„Ég ræddi þetta mál við Breka Karlsson“

Menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra segir við Kjarnann að hörð gagn­rýni úr ranni Neyt­enda­sam­tak­anna á skipan nýs starfs­hóps um stofna­naum­gjörð sam­keppnis- og neyt­enda­mála hafi komið sér á óvart.

Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna og Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra.
Breki Karlsson for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna og Lilja Alfreðs­dóttir menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra. Mynd: Samsett

Lilja Alfreðs­dóttir menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra segir að hörð gagn­rýni stjórnar Neyt­enda­sam­tak­anna á skipan nýs starfs­hóps sem á að skoða breyt­ingu á stofna­naum­gjörð sam­keppnis- og neyt­enda­mála hér á landi hafi komið sér á óvart.

Hún seg­ist hafa rætt við Breka Karlsson for­mann Neyt­enda­sam­tak­anna um fyr­ir­hug­aða skipan starfs­hóps­ins og hann hafi ekki sett fram þær athuga­semdir þá sem síðar hafa komið fram.[links]

Í ályktun sem stjórn Neyt­enda­sam­tak­anna sendi frá sér í vik­unni sagði að það væri „óá­sætt­an­legt“ að full­trúi atvinnu­lífs fengi sæti í nefnd­inni, en eng­inn full­trúi neyt­enda. Svan­hildur Hólm fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs Íslands er einn þriggja full­trúa í nefnd­inni.

Taldi stjórnin að með þess­ari skipan væri horft „fram hjá neyt­endum líkt og sam­keppn­is- og neyt­enda­mál komi þeim ekki við“ og gerði stjórn Neyt­enda­sam­tak­anna kröfu um sæti við borðið „til að tryggja að raddir og sjón­ar­mið neyt­enda komi fram“.

Breki hafi verið upplýstur og ekki gert neinar athugasemdir

Í sam­tali við Kjarnann kvaðst Lilja endi­lega vilja bregð­ast við þess­ari gagn­rýni frá stjórn Neyt­enda­sam­tak­anna.

„Nú er það svo að ráðu­neytið er að stór­auka sam­vinnu við Neyt­enda­sam­tökin. Það vill þannig til að ég ræddi þetta mál við Breka Karlsson og sagði honum að nefndin yrði frekar fáliðuð, þar sem hún væri að fjalla ekki almennt um neyt­enda­mál, heldur að fjalla um stofna­naum­gjörð, eins og kveður á um í stjórn­ar­sátt­mál­anum,“ segir Lilja.

[adspot]

Auk þess segir hún að Breki hafi verið „algjör­lega upp­lýstur“ um það að nefndin yrði „í nánu sam­starfi við sam­tökin“ þrátt fyrir að eiga ekki mann við borðið.

„Hann gerði enga athuga­semd við þetta þegar við fórum yfir þetta á sínum tíma. Þannig að við­brögð hans hafa komið mér á óvart og ég held ég geti full­yrt það að sam­vinna og sam­starf við Neyt­enda­sam­tökin sé með allra mesta móti,“ segir Lilja við Kjarnann.

Starfs­hóp­ur­inn sem um ræðir var skip­aður af Lilju 24. ágúst. Þor­geir Örlygs­son, fyrr­ver­andi for­seti Hæsta­rétt­ar er for­mað­ur hóps­ins og Ang­an­týr Ein­ars­son, fram­kvæmda­stjóri stjórn­sýslu- og fjár­mála­sviðs Vest­manna­eyja­bæjar situr einnig í honum, ásamt Svan­hildi Hólm.

Meg­in­mark­mið hóps­ins, sem á að skila til­lögum til ráð­herra fyrir 1. febr­úar 2023, er að finna leiðir til að styrkja sam­keppni inn­an­lands, tryggja stöðu neyt­enda betur í nýju umhverfi við­skipta og efla alþjóð­lega sam­keppn­is­hæfni íslensks atvinnu­lífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár