ASÍ gagnrýnir líka skipan Svanhildar Hólm í starfshóp þegar „launafólk sé látið sitja hjá“

Bæði Neyt­enda­sam­tökin og ASÍ hafa nú gagn­rýnt harð­lega skipan full­trúa atvinnu­lífs­ins í starfs­hóp um sam­keppnis- og neyt­enda­mál en horft sé fram­hjá neyt­endum og launa­fólki. Menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra segir að gagn­rýni komi sér á óvart.

Kristján Þórður Snæbjörnsson er starfandi forseti ASÍ.
Kristján Þórður Snæ­björns­son er starf­andi for­seti ASÍ. Mynd: Bára Huld Beck

Alþýðu­sam­band Íslands (ASÍ) gagn­rýnir í i yfir­lýs­ingu að launa­fólk eigi ekki full­trúa i starfs­hópi sem Lilja D. Alfreðs­dóttir, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra, skip­aði nýverið og er ætlað að gera til­lögur að úrbótum á stofna­naum­hverfi sam­keppnis- og neyt­enda­mála. „Engin rök hníga að því að full­trúi fyr­ir­tækja eigi sæti í slíkum starfs­hópi en launa­fólk sé látið sitja hjá,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Stjórn Neyt­enda­sam­tak­anna sendi frá sér sam­bæri­lega yfir­lýs­ingu í vik­unni þar sem sagði að það væri óásætt­an­legt að full­trúi atvinnu­lífs fái sæti í nefnd­inni, en horft sé fram hjá neyt­endum líkt og sam­keppnis- og neyt­enda­mál komi þeim ekki við. „Stjórn Neyt­enda­sam­tak­anna gerir kröfu um sæti við borðið til að tryggja að raddir og sjón­ar­mið neyt­enda komi fram.“

Lilja skip­aði starfs­hóp­inn 24. ágúst síð­ast­lið­inn. Í hann voru skip­aðir þrír ein­stak­ling­ar: Þor­geir Örlygs­son, fyrr­ver­andi for­seti Hæsta­rétt­ar, for­mað­ur, Ang­an­týr Ein­ars­son, fram­kvæmda­stjóri stjórn­sýslu- og fjár­mála­sviðs Vest­manna­eyja, og Svan­hildur Hólm Vals­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs Íslands.

Meg­in­mark­mið hóps­ins, sem á að skila til­lögum til ráð­herra fyrir 1. febr­úar 2023, er að finna leiðir til að styrkja sam­keppni inn­an­lands, tryggja stöðu neyt­enda betur í nýju umhverfi við­skipta og efla alþjóð­lega sam­keppn­is­hæfni íslensks atvinnu­lífs.

Ráðherra segir gagnrýni koma á óvart

Lilja sagði í sam­tali við Kjarnann í gær að gagn­rýni Neyt­enda­sam­tak­anna hafi komið sér á óvart. „„Nú er það svo að ráðu­neytið er að stór­auka sam­vinnu við Neyt­enda­sam­tök­in. Það vill þannig til að ég ræddi þetta mál við Breka Karls­son og sagði honum að nefndin yrði frekar fálið­uð, þar sem hún væri að fjalla ekki almennt um neyt­enda­mál, heldur að fjalla um stofna­naum­gjörð, eins og kveður á um í stjórn­ar­sátt­mál­an­um.“

[adspot]Auk þess sagði hún að Breki hafi verið „al­gjör­lega upp­lýst­ur“ um það að nefndin yrði „í nánu sam­starfi við sam­tök­in“ þrátt fyrir að eiga ekki mann við borð­ið. „Hann gerði enga athuga­semd við þetta þegar við fórum yfir þetta á sínum tíma. Þannig að við­brögð hans hafa komið mér á óvart og ég held ég geti full­yrt það að sam­vinna og sam­starf við Neyt­enda­sam­tökin sé með allra mesta mót­i.“

Vakið undrun víðar

Kjarn­inn hefur rætt við ýmsa fleiri, meðal ann­ars innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­inn­ar, sem undra sig sér­stak­lega á skipan Svan­hildar í hóp­inn. Bæði vegna þess að full­trúar neyt­enda eða laun­þega eiga þar engan full­trúa og þess að Við­skipta­ráð hefur verið afar gagn­rýnið á starf­semi og umfang Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins á und­an­förnum árum.

Í októ­ber í fyrra sendi Sam­keppn­is­eft­ir­litið frá sér til­kynn­ingu þar sem það brýndi fyrir for­svars­fólki hags­muna­sam­taka í atvinnu­líf­inu að taka ekki þátt í umfjöllun um verð­lagn­ingu og mark­aðs­hegðun fyr­ir­tækja. Þar sagði meðal ann­ars: „Ákvæði sam­keppn­islaga setja hags­muna­sam­tökum skorður í hags­muna­gæslu sinni og verða sam­tök fyr­ir­tækja því að fara afar gæti­lega þegar kemur að umræðu og fræðslu sem getur haft áhrif á mark­aðs­hegðun félags­manna. Öll þátt­taka í umræðu um verð og verð­lagn­ingu er sér­stak­lega var­huga­verð og ætti ekki að eiga sér stað á vett­vangi hags­muna­sam­taka.“

Sögðu athuga­semdir „að­för að upp­lýstri umræðu“

Hags­muna­sam­tökin brugð­ust illa við þess­ari til­kynn­ingu. Sam­tök atvinnu­lífs­ins og Við­skipta­ráð sendu í kjöl­farið frá sér sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu þar sem þau sögðu athuga­semdir Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins vera „að­för að upp­lýstri umræð­u“.

[links]Í umræðu út á við væri eðli­legt að þau ræði ýmis mál er tengj­ast félags­mönnum sínum og íslensku atvinnu­lífi í heild. „Þar má til dæmis nefna umræðu sem snýr að launa­kjörum, kvöðum stjórn­valda á borð við gjöld og leyf­is­veit­ing­ar, hrá­vöru­verði og fleiri atriðum sem öll geta haft áhrif á almennt verð­lag. Að benda á þá stað­reynd að þróun varð­andi fyrr­greind atriði geti leitt til verð­hækk­ana felur hvorki í sér brot á sam­keppn­is­lögum né hvetur það til þeirra. Í raun er óum­flýj­an­legt að hags­muna­sam­tök fyr­ir­tækja láti sig verð­lag í land­inu varða þegar ýmsar kvaðir sem stjórn­völd setja hafa áhrif á verð­lag á þeim vörum og þjón­ustu sem félags­menn þeirra bjóða upp á.“

Engin ákvæði sam­keppn­islaga banni sam­tökum fyr­ir­tækja þátt­töku í opin­berri umræðu. „Það er mat SA og VÍ að með aðfinnslum sínum sé Sam­keppn­is­eft­ir­litið komið langt út fyrir lög­bundið hlut­verk sitt. Hversu langt má ganga? Hverjir mega tjá sig? Verða settar skorður á Seðla­bank­ann að tjá sig um verð­lag í land­inu? Eða grein­ing­ar­að­ila, t.d. innan við­skipta­bank­anna? Mega hags­muna­sam­tök fyr­ir­tækja tjá sig um vaxta­hækk­an­ir?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár