Gagnrýna harðlega skipun Svanhildar Hólm í starfshóp um samkeppni og neytendamál

Neyt­enda­sam­tökin segja það óásætt­an­legt að full­trúi atvinnu­lífs­ins fái sæti í starfs­hópi um sam­keppnis- og neyt­enda­mál en horft sé fram­hjá neyt­endum. Menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra skip­aði meðal ann­ars fram­kvæmda­stjóra Við­skipta­ráðs í hóp­inn.

Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, Lilja D. Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, og Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands.
Breki Karlsson, for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna, Lilja D. Alfreðs­dóttir, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra, og Svan­hildur Hólm Vals­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs Íslands. Mynd: Samsett

Stjórn Neyt­enda­sam­tak­anna hefur sent frá sér ályktun þar sem hún gagn­rýnir harð­lega hvernig staðið var að skipun starfs­hóps sem skoðar breyt­ingu á stofna­naum­gjörð sam­keppnis- og neyt­enda­mála á Íslandi. „Óásætt­an­legt er að full­trúi atvinnu­lífs fái sæti í nefnd­inni, en horft sé fram hjá neyt­endum líkt og sam­keppnis- og neyt­enda­mál komi þeim ekki við. Stjórn Neyt­enda­sam­tak­anna gerir kröfu um sæti við borðið til að tryggja að raddir og sjón­ar­mið neyt­enda komi fram.“

Starfs­hóp­ur­inn sem um ræðir var skip­aður 24. ágúst síð­ast­lið­inn af Lilju D. Alfreðs­dóttur, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra. Í hann voru skip­aðir þrír ein­stak­lingar: Þorgeir Örlygs­son, fyrr­ver­andi for­seti Hæsta­réttar, for­maður, Angantýr Ein­ars­son, fram­kvæmda­stjóri stjórn­sýslu- og fjár­mála­sviðs Vest­manna­eyja, og Svan­hildur Hólm Vals­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs Íslands.

Meg­in­mark­mið hóps­ins, sem á að skila til­lögum til ráð­herra fyrir 1. febr­úar 2023, er að finna leiðir til að styrkja sam­keppni inn­an­lands, tryggja stöðu neyt­enda betur í nýju umhverfi við­skipta og efla alþjóð­lega sam­keppn­is­hæfni íslensks atvinnu­lífs.

Vakið undrun víðar

Kjarninn hefur rætt við ýmsa fleiri, meðal ann­ars innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar, sem undra sig sér­stak­lega á skipan Svan­hildar í hóp­inn. Bæði vegna þess að full­trúar neyt­enda eða laun­þega eiga þar engan full­trúa og þess að Við­skipta­ráð hefur verið afar gagn­rýnið á starf­semi og umfang Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins á und­an­förnum árum.

[adspot]Í októ­ber í fyrra sendi Sam­keppn­is­eft­ir­litið frá sér til­kynn­ingu þar sem það brýndi fyrir for­svars­fólki hags­muna­sam­taka í atvinnu­líf­inu að taka ekki þátt í umfjöllun um verð­lagn­ingu og mark­aðs­hegðun fyr­ir­tækja. Þar sagði meðal ann­ars: „Ákvæði sam­keppn­islaga setja hags­muna­sam­tökum skorður í hags­muna­gæslu sinni og verða sam­tök fyr­ir­tækja því að fara afar gæti­lega þegar kemur að umræðu og fræðslu sem getur haft áhrif á mark­aðs­hegðun félags­manna. Öll þátt­taka í umræðu um verð og verð­lagn­ingu er sér­stak­lega var­huga­verð og ætti ekki að eiga sér stað á vett­vangi hags­muna­sam­taka.“

Sögðu athugasemdir „aðför að upplýstri umræðu“

Hags­muna­sam­tökin brugð­ust illa við þess­ari til­kynn­ingu. Samtök atvinnu­lífs­ins og Við­skipta­ráð sendu í kjöl­farið frá sér sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu þar sem þau sögðu athuga­semdir Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins vera „aðför að upp­lýstri umræðu“.

Í umræðu út á við væri eðli­legt að þau ræði ýmis mál er tengj­ast félags­mönnum sínum og íslensku atvinnu­lífi í heild. „Þar má til dæmis nefna umræðu sem snýr að launa­kjörum, kvöðum stjórn­valda á borð við gjöld og leyf­is­veit­ingar, hrá­vöru­verði og fleiri atriðum sem öll geta haft áhrif á almennt verð­lag. Að benda á þá stað­reynd að þróun varð­andi fyrr­greind atriði geti leitt til verð­hækk­ana felur hvorki í sér brot á sam­keppn­is­lögum né hvetur það til þeirra. Í raun er óum­flýj­an­legt að hags­muna­sam­tök fyr­ir­tækja láti sig verð­lag í land­inu varða þegar ýmsar kvaðir sem stjórn­völd setja hafa áhrif á verð­lag á þeim vörum og þjón­ustu sem félags­menn þeirra bjóða upp á.“

Engin ákvæði sam­keppn­islaga banni sam­tökum fyr­ir­tækja þátt­töku í opin­berri umræðu. „Það er mat SA og VÍ að með aðfinnslum sínum sé Sam­keppn­is­eft­ir­litið komið langt út fyrir lög­bundið hlut­verk sitt. Hversu langt má ganga? Hverjir mega tjá sig? Verða settar skorður á Seðla­bank­ann að tjá sig um verð­lag í land­inu? Eða grein­ing­ar­að­ila, t.d. innan við­skipta­bank­anna? Mega hags­muna­sam­tök fyr­ir­tækja tjá sig um vaxta­hækk­anir?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár