Shein „fjárfestir“ í bættum vinnuaðstæðum í fataverksmiðjum

Kín­verski tískuris­inn Shein við­ur­kennir að reglur um vinnu­tíma hafi verið brotnar í verk­smiðjum sem fyr­ir­tækið nýtir sér. Við­ur­kenn­ingin nær þó aðeins til tveggja af yfir þrjú þús­und fata­verk­smiðjum sem fram­leiða háhraðat­ískuflíkur fyrir Shein.

Það virðist alltaf vera útsala á Shein. Tískurisinn hefur nú viðurkennt að hafa brotið gegn reglum um vinnutíma í tveimur fataverksmiðjum. Eftir standa rúmlega þrjú þúsund verksmiðjur í Kína.
Það virð­ist alltaf vera útsala á Shein. Tískuris­inn hefur nú við­ur­kennt að hafa brotið gegn reglum um vinnu­tíma í tveimur fata­verk­smiðjum. Eftir standa rúm­lega þrjú þús­und verk­smiðjur í Kína. Mynd: Skjáskot: Shein

Kín­verska fata­fyr­ir­tækið Shein við­ur­kennir að hafa brotið gegn reglum um vinnu­tíma og heitir því að verja 15 millj­ónum Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um tveimur millj­örðum króna, í að bæta vinnu­að­stæður starfs­manna í fata­verk­smiðjum sem fram­leiða fatnað sem Shein selur.

En það er stórt en. Shein við­ur­kennir aðeins að hafa brotið gegn reglum um vinnu­tíma í tveimur verk­smiðjum af mörg þús­und sem fyr­ir­tækið á í við­skiptum við.

Algóriþmar og leitarvélabestun

Við­skipta­módel Shein er með þeim hætti að tískuris­inn rekur ekki eina ein­ustu verslun. Öll við­skipti fara fram á net­inu. Shein á heldur ekki fata­verk­smiðjur heldur gerir fyr­ir­tækið samn­ing við þriðja aðila í Kína, yfir þrjú þús­und fata­verk­smiðjur, sem fram­leiða fá ein­tök af flíkum. Tak­markað magn af vörum er síðan birt á heima­síðu Shein og algóriþmar fylgj­ast með við­brögðum neyt­enda. Ef ákveðið bik­iní slær til dæmi í gegn á TikTok gerir Shein stærri pant­anir og fram­leiðir meira.

Shein stærir sig af þessu fyr­ir­komu­lagi og segir við­skipta­módel sitt byggt á „þeim for­sendum að fram­leiða aðeins þær vörur í því magni sem sam­svarar raun­veru­legri eft­ir­spurn og minnka þannig fram­leiðslu­úr­gang“.

[links]Þetta við­skipta­módel kall­ast „test and repeat“, þó svo að Shein kjósi ekki að nota þá skil­grein­ingu. Matt­hew Brenn­an, rit­höf­undur og sér­fræð­ingur í kín­verskum tækni­mál­um, segir í sam­tali við Vox að Shein sé stöðugt að safna og greina gögn við­skipta­vina og noti síðan upp­lýs­ing­arnar til að hanna fatnað eftir því sem er í tísku hverju sinni.

Eigandi Shein, Chris Xu, var eng­inn sér­stakur tísku­fröm­uður en hann sér­hæfði sig í leit­ar­véla­bestun (e. search engine optim­ization) og er tækni­m­iðuð nálgun í mark­aðs­setn­ingu talin ein helsta ástæða þess hvað fyr­ir­tækið hefur vaxið hratt. Shein er í dag metið á 100 millj­arða Banda­ríkja­dala. Það er meira en sam­an­lagt virði tískurisanna H&M og Zara.

Í ítar­legri frétta­skýr­ingu um Shein í Kjarn­anum í sumar vís­aði Rakel Guð­munds­dóttir í rann­sóknir sem sýnt hafa að vörur frá Shein inni­halda skað­leg efni. Af þeim vörum sem rann­sak­aðar voru inn­­i­hélt ein vara af hverjum fimm umtals­vert magn eit­­­ur­efna, meðal ann­­­ars blý, PFAS og þalöt. Shein hefur sótt í sig veðrið í net­verslun á Íslandi og er með átta pró­sent hlut­deild í net­verslun Íslend­inga á fatn­aði í erlendum net­versl­unum.

Það eru þó ekki allir sem taka Shein fagn­andi hér á landi og hefur hringrás­ar­versl­unin Hringekjan til að mynda tekið allar vörur frá Shein úr end­ur­sölu vegna magns eit­ur­efna í flíkum og Rauði kross­inn vill ekki sjá flíkur frá Shein í versl­unum sínum. Fötum frá Shein á þó enn að skila í fata­söfn­un­ar­gáma.

Fá fimm krónur fyrir hverja framleidda flík og vinna 18 tíma vinnudag

Verk­smiðj­urnar sem Shein skiptir við skipta þús­undum. Shein hefur nú við­ur­kennt að langur vinnu­tími starfs­manna í verk­smiðjum í Kína brjóti gegn gild­andi reglu­gerðum. En aðeins í tveimur verk­smiðjum í Guangzhou-hér­aði í Kína.

Shein við­ur­kenndi brotin eftir að starfs­fólk í tveimur verk­smiðjum steig fram í bresku heim­ild­ar­mynd­inni Inside the Shein Machine: UNTOLD og greindu frá gríð­ar­löngum vinnu­dögum og fáum, ef ein­hverjum, frí­dögum.

Fjöl­miðla­fólk á vegum Channel 4 sótti um störf hjá fata­verk­smiðjum sem eru með samn­ing við Shein og mynd­uðu starf­sem­ina með fal­inni mynda­vél. Dæmi eru um starfs­fólk sem vinnur allt að 18 klukku­stundir á dag, alla daga vik­unnar og fær greitt fyrir hverja flík sem það fram­leiðir, þrjú penní, eða sem nemur um fimm krónum. Þá fá þau aðeins einn frí­dag í mán­uði.

Shein réðst í sjálfstæða rannsókn

Heim­ild­ar­myndin kom út í októ­ber og í kjöl­farið réðst Shein í sjálf­stæða rann­sókn á vinnu­að­stæðum starfs­fólks í verk­smiðjum sem Shein á í við­skiptum við. Nið­ur­stöð­urnar liggja nú fyrir og eru þær að aðeins í tveimur verk­smiðjum er vinnu­tím­inn lengri en reglur í hér­að­inu kveða á um.

Í einni verk­smiðj­unni var vinnu­dag­ur­inn allt að 13 og hálfur tími á dag og tveir til þrír frí­dagar í mán­uði og í annarri verk­smiðju var vinnu­dag­ur­inn 12 klukku­stundir og engir skil­greindir frí­dagar í mán­uði.

„Þetta er styttri vinnu­tími en haldið er fram í heim­ild­ar­mynd­inni en samt sem áður lengri en svæð­is­bundnar reglur kveða á um,“ segir í yfir­lýs­ingu Shein, sem hefur hætt við­skiptum við verk­smiðj­urnar tvær og gefið þeim frest til ára­móta til að end­ur­skipu­leggja vinnu­fyr­ir­komu­lag starfs­manna sinna.

En eftir standa þús­undir ann­arra verk­smiðja í Kína sem Shein á við­skiptum við. Verk­smiðjur sem ekki hafa verið gerðar heim­ilda­myndir um. Að minnsta kosti ekki ennþá.

Segja laun hærri en meðallaun starfsfólks í fataframleiðslu

Shein hefur hafnað öllum öðrum stað­hæf­ingum sem fram koma í heim­ilda­mynd­inni, meðal ann­ars hvað varðar laun, sem Shein full­yrðir að séu hærri en lág­marks­laun í Guangzhou-hér­aði og hærri en með­al­laun starfs­fólks í fata­fram­leiðslu almennt í þessum hluta Kína.

„Það er ekki rétt sem fram kemur að verk­smiðjur haldi eftir launum starfs­manna eða dragi frá launum þeirra með ólög­mætum hætti,“ segir í yfir­lýs­ingu Shein, sem segir það heldur ekki rétt að starfs­fólk fái greitt eftir fjölda flíka sem það fram­leiðir heldur fái það greitt fyrir „hvert fram­leiðslu­ferli flík­ur­innar“.

Í nýaf­stað­inni „Black Friday-útsölu“ Shein var hægt að kaupa flíkur á eitt penní. Það eru 0,73 krónur. Og þrefalt minna en starfs­maður verk­smiðj­unnar í Guangzhou-hér­aði fékk greitt fyrir að fram­leiða flík­ina.

Fjárfestingaáætlun sem á að tryggja bættar vinnuaðstæður

Shein full­yrðir að tveggja millj­arða króna fjár­fest­ing­ar­á­ætlun fyr­ir­tæk­is­ins sem snýr að bættum vinnu­að­stæðum starfs­fólk sem fram­leiðir flíkur tískuris­ans muni ná til mörg hund­ruð verk­smiðja á næstu þremur til fjórum árum.

Adam Winston, yfir­maður umhverfis- og sam­fé­lags­mála hjá Shein á heims­vísu segir fyr­ir­tækið hafa unnið mark­visst að áætlun um upp­runa­á­byrgðir (e. responsi­ble sourcing programme) til að bæta vel­ferð og vinnu­að­stæður starfs­fólks sem fram­leiðir vörur Shein.

Shein hefur einnig komið á fót kerfi sem gerir starfs­fólki fata­verk­smiðj­anna kleift að senda inn nafn­lausar ábend­ingar eða kvart­anir með tölvu­pósti, sím­tali eða í gegnum WeChat. „Það er hluti af áætlun okkar til að sinna eft­ir­liti og við­halda rétt­indum starfs­fólks,“ segir Winston.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár