Risastór sekt vegna vöndlunar á enska boltanum orðin að engu

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hefur kveðið upp þann dóm að Sam­keppn­is­eft­ir­litið hafi ekki náð að rök­styðja háa sekt á hendur Símanum nægi­lega vel. Áhrifin á neyt­endur og mark­aði hafi verið lítið greind af hálfu eft­ir­lits­ins.

Tómas Þór Þórðarsson íþróttafréttamaður hefur leitt umfjöllun Símans Sport um enska boltann undanfarin ár.
Tómas Þór Þórð­ars­son íþrótta­f­rétta­maður hefur leitt umfjöllun Símans Sport um enska bolt­ann und­an­farin ár. Mynd: Af vef Símans

Í gær urðu miklar vend­ingar í máli sem staðið hefur yfir árum saman á milli Símans og Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, er Hér­aðs­dómur Reykja­víkur komst að þeirri nið­ur­stöðu að fella skyldi niður þá 200 millj­óna króna stjórn­valds­sekt sem lögð hafði verið á Símann vegna meintra brota fyr­ir­tæk­is­ins gegn skil­yrðum í sátt við Sam­keppn­is­eft­ir­litið.

Áfrýj­un­ar­nefnd sam­keppn­is­mála lækk­aði sekt­ina niður í áður­nefnda upp­hæð með úrskurði þann 13. jan­úar 2021, en í maí árið 2020 hafði Sam­keppn­is­eft­ir­litið talið rétt að slengja 500 millj­óna króna sekt á Símann, sem skaut mál­inu til áfrýj­un­ar­nefnd­ar­innar í beinu fram­haldi.

Síminn skaut svo mál­inu til dóm­stóla sum­arið 2021 – og nú er nið­ur­staðan komin: 500 millj­óna sektin, sem er með hærri sektum sem nokkru sinni hafa verið lagðar á í sam­keppn­is­máli á Íslandi, er orðin að engu.

Svo virð­ist að minnsta kosti vera sem stendur, en Sam­keppn­is­eft­ir­litið segir á vef sínumað það hygg­ist fara ítar­lega yfir for­sendur dóms­ins og taka í fram­haldi ákvörðun um hvort mál­inu verði áfrýjað til Lands­réttar. Dómur hér­aðs­dóms í mál­inu er ítar­legur og settur fram á 63 blað­síðum.

[adspot]

Brotið sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið, og svo áfrýj­un­ar­nefnd sam­keppn­is­mála, töldu Símann hafa framið, fólst í því að hafa farið gegn skil­málum sáttar sem félagið gerði við Sam­keppn­is­eft­ir­litið árið 2015 um að tvinna ekki saman fjar­skipta­þjón­ustu og línu­legri sjón­varps­þjón­ustu.

Það átti Sím­inn að hafa gert með því að bjóða ólík við­­skipta­­kjör við sölu á enska bolt­­anum á sjón­varps­stöð­inni Sím­­anum Sport, eftir því hvort hann var boð­inn innan svo­kall­aðs Heim­il­i­s­­pakka Sím­ans eða einn og sér í stakri áskrift.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið réð­ist í rann­sókn á mál­inu eftir kvörtun frá fjar­skipta­fyr­ir­tæk­inu Sýn, sem er einn helsti keppi­nautur Símans á bæði fjar­skipta- og sjón­varps­af­þreyt­ing­ar­mark­aði.[links]

Eftir að Síminn byrj­aði að sýna frá enska bolt­anum haustið 2019 hækk­aði fyr­ir­tækið verðið á bæði Heim­il­i­s­pakka sínum og sjón­varps­þjón­ust­unni Sjónvarp Símans Premium um þús­und krónur frá því sem áður hafði verið. Neyt­endur þurftu hins vegar að greiða 4.500 krónur fyrir það eitt að vera með áskrift að fót­bolt­ar­ásum Símans Sport, ef þeir voru ekki með annað hvort Heim­il­i­s­pakk­ann frá Símanum eða Sjónvarp Símans Premium.

Sekt Símans þótti ósönnuð

Í dómi hér­aðs­dóms segir að dóm­ari telji rétt að fella sekt­ina úr gildi, þar sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið hafi ekki fært við­hlít­andi rök fyrir sekt­inni á Símann. Að mati dóm­ara kaus Sam­keppn­is­eft­ir­litið að „greina málið fyrst og fremst út frá orða­lagi í ákvæði sátt­ar­innar, fremur en að leiða fram áhrif hátt­semi [Símans] á mark­að­inn, á við­skipta­vini [Símans] og keppi­nauta.“

Dómarinn taldi þannig að Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefði ekki risið undir sönn­un­ar­byrði sinni um sekt Símans svo full­nægt væri grund­vall­ar­rétt­indum sam­kvæmt 70. gr. stjórn­ar­skrár­innar (sem kveður á um að hver skuli sak­laus þar til sekt hans hafi verið sönnuð) og 6. gr. mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu (sem kveður m.a. á um hið sama).

Viðskiptavinum ekki settir afarkostir um kaup á Heimilispakkanum

Í dómnum er meðal ann­ars kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að með því að setja Símann Sport inn Sjónvarp Símans Premium, sem svo var boðið sem hluti af Heim­il­i­s­pakk­anum, hafi Síminn ekki sett við­skipta­vinum afar­kosti um að kaupa áskrift af Sjón­varpi Símans Premium sem hluta af Heim­il­i­s­pakk­anum.

„Við­skipta­vin­ur­inn sem hefur áhuga á hinni títt­nefndu ensku knatt­spyrnu­keppni þyrfti að greiða umtals­vert meira fyrir aðgang að efn­isveit­unni heldur en ef hann keypti efnið stakt, sem hann gerir eðli máls sam­kvæmt ekki ef hann hefur ekki áhuga á efni efn­isveit­unnar. Velji við­skipta­vin­ur­inn að kaupa áskrift að Sjón­varpi Símans Premium væri hann á hinn bóg­inn búinn að leggja í kostnað sem næmi þriðj­ungi af verði Heim­il­i­s­pakk­ans áður en hann kæm­ist í tæri við þá hags­muni sem verja eigi við­skipta­vin­inn gegn; að fjar­skipta­við­skipti yrðu skil­yrt við kaup sjón­varps­þjón­ustu sem mis­notuð væri í þessu skyni í and­stöðu við [skil­yrði sátt­ar­innar frá 2015]. Ekki verður séð að við þessar aðstæður væri raskað þeim hags­munum sem eru vernd­ar­and­lag þessa ákvæðis,“ segir í dómi Hér­aðs­dóms Reykja­víkur.

Þar er einnig fjallað um þá við­skipta­vini sem „engan áhuga hafa á knatt­spyrnu karla í efstu deild á Englandi“ og sýn­ist dóm­ara hags­munir þeirra ekki vera sér­stak­lega vernd­aðir af skil­málum sátt­ar­innar frá 2015.

Dómari bendir á að skil­yrði ákvæð­is­ins gangi í raun út á að sjón­vars­þjón­usta sé fal­boðin með því skil­yrði að fjar­skipta­þjón­usta sé keypt. „Ef við­skipta­vin­ur­inn vill ekki sjón­varps­efnið er slíku skil­yrði ekki til að dreifa þannig að fari í bága við [ákvæði sátt­ar­innar]. Við­kom­andi er á engan hátt þving­aður í eitt­hvað sem hann kærir sig ekki um. Hvort hann sætti sig við að þurfa að borga hærra verð þrátt fyrir að hafa hvorki gagn né gaman af við­kom­andi sjón­varps­efni er síðan hags­muna­mat sem hann stendur frammi fyrir, hvort sé fjár­hags­lega hag­stæð­ara að halda áskrift­inni eða segja henni upp og leita ann­arra til­boða á mark­aði án þess að svo óæski­legt sjón­varps­efni fylgi,“ segir í dómnum.

Fjölgun í bæði fjarskiptaþjónustu og sjónvarpsþjónustu

Þar er einnig farið yfir að ekk­ert liggi „fyrir um það í mál­inu að ljón séu þannig í vegi að það sé hvorki raun­hæft né mögu­legt fyrir við­skipta­vin að kaupa þjón­ustu [Símans] án vöndl­unar, annað hvort án sjón­varps­þjón­ustu eða án fjar­skipta­þjón­ustu,“ sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið hafi sjálft lagt til grund­vallar að hafi haft þýð­ingu við túlkun sam­bæri­legs ákvæðis í máli sem varð­aði keppi­naut Símans.

Dómari segir töl­fræði­legar upp­lýs­ingar um kaup á þjón­ustu frá Símanum raunar tala því máli að við­skipta­vinir getið valið ýmsa kosti í þeim efnum og að í máls­skjölum komi fram að þeim sem ein­ungis keyptu fjar­skipta­þjón­ustu, sem og áskrif­endum Sjón­varps Símans Premimum ein­göngu, hafi fjölgað, en ekki ein­ungis áskrif­endum Heim­il­i­s­pakk­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár