Samkeppniseftirlitið sektar Símann um 500 milljónir

Samkvæmt Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu hefur Síminn brotið gegn skil­yrðum í sáttum sem fyr­ir­tækið hefur á und­an­förnum árum gert við eft­ir­litið. Það telur að brotin séu alvar­leg og sektar Símann vegna þessa um 500 millj­ónir króna. Síminn ætlar að áfrýja.

Síminn hefur brotið gegn skil­yrðum í sáttum sem fyr­ir­tækið hefur á und­an­förnum árum gert við Sam­keppn­is­eft­ir­litið, að því er fram kemur í ákvörðun eft­ir­lits­ins sem birt var í dag. Síminn mun áfrýja ákvörð­un­inni til áfrýj­un­ar­nefndar sam­keppn­is­mála en fyr­ir­tækið telur hana skað­lega fyrir sam­keppni í land­inu.

Í ákvörð­un­inni kemur fram að mik­ill verð­munur og ólík við­skipta­kjör við sölu á Enska bolt­anum á Símanum Sport, eftir því hvort hann er boð­inn innan Heim­il­i­s­pakka Símans eða einn og sér í stakri áskrift, hafi brotið gegn þeim skil­yrðum sem hvíla á fyr­ir­tæk­inu. Telur Sam­keppn­is­eft­ir­litið að brotin séu alvar­leg og sektar Símann vegna þessa um 500 millj­ónir króna.

„Skil­yrð­unum sem Síminn braut er ætlað að vinna gegn því að Síminn geti, í ljósi sterkrar stöðu sinnar á mik­il­vægum mörk­uðum fjar­skipta, nýtt hið breiða þjón­ustu­fram­boð sitt til þess að draga að sér og halda við­skiptum á þann hátt að keppi­nautar þeirra geti ekki boðið sam­keppn­is­hæft verð eða þjón­ustu. Er skil­yrð­unum ætlað að koma í veg fyrir að Síminn geti með þessum hætti tak­markað sam­keppni almenn­ingi til tjóns,“ segir í til­kynn­ingu eft­ir­lits­ins á vef­síðu þess.

Þau skil­yrði sem Síminn hefur brotið gegn sam­kvæmt Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu eru eft­ir­far­andi:

  • Skilyrði 19. og 20. gr. í sátt frá 23. jan­úar 2015 sem gerir Símanum skylt að aðgreina ólíka þjón­ustu­þætti m.a. þannig að þeir séu nægi­lega aðgreindir og óháðir hverjir öðrum í verði og öðrum skil­málum. Sú sátt er að stofni til frá árinu 2013 og var gerð vegna sjö rann­sókna sem þá voru yfir­stand­andi, sem og vegna ítrek­aðra brota Símans sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið hafði stað­reynt á árunum þar á undan. Nánari umfjöllun um þetta er að finna hér.
  • Skilyrði 3. gr. í sátt frá 15. apríl 2015 sem bannar Símanum að selja fjar­skipta­þjón­ustu og línu­legt áskrift­ar­sjón­varp tvinnað saman eða á kjörum sem jafn­gilda slíkri hegðun. Þetta ákvæði er að stofni til úr sátt frá árinu 2005. Þá skuld­batt Síminn sig til að grípa ekki til til­tek­inna aðgerða þegar fyr­ir­tækið tók yfir Íslenska sjón­varps­fé­lagið (Skjáinn). Sáttin frá 2005 var end­ur­skoðuð árið 2015 en fyr­ir­mælin í 3. gr. héldu sér, sbr. nánar hér. Á árinu 2012 stað­festi Hæsti­réttur þá nið­ur­stöðu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins að Síminn hefði brotið sömu fyr­ir­mæli í sátt­inni frá 2005 og stað­reynt er í ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins í dag.

Fram kemur hjá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu að fram­an­greindar sáttir hafi verið gerðar á grund­velli sam­keppn­islaga sem heim­ili Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu að ljúka rann­sókn mála ef fyr­ir­tæki und­ir­ritar sátt og skuld­bindur sig til fram­búðar ann­að­hvort að fram­kvæma eitt­hvað eða grípa ekki til til­tek­inna aðgerða í því skyni að verja eða efla sam­keppni. Áfrýj­un­ar­nefnd sam­keppn­is­mála hafi slegið því föstu að það sé „mjög brýnt“ að fyr­ir­tæki virði slík lof­orð.

Það er nið­ur­staða Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins að Síminn hafi brotið 3. gr. í sátt frá 15. apríl 2015 með því að bjóða Heim­il­i­s­pakk­ann – með marg­vís­legri fjar­skipta­þjón­ustu – og Símann Sport/Enska bolt­ann (línu­legt áskrift­ar­sjón­varp) með miklum verð­mun og ólíkum við­skipta­kjörum, eftir því hvort umrædd þjón­usta og þá sér­stak­lega Enski bolt­inn var seld saman eða sitt í hvoru lagi. Þannig hafi verð fyrir Símann Sport/Enska bolt­ann aðeins verið 1.000 krónur á mán­uði þegar þjón­ustan var seld sem hluti af Heim­il­i­s­pakk­anum og Sjón­varpi Símans Premium, en 4.500 krónur þegar hún var seld án þess að önnur þjón­usta væri keypt sam­hliða.

Það er jafn­framt nið­ur­staða Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins að Síminn hafi með hátt­semi sinni brotið 19. og 20. gr. í sátt frá 23. jan­úar 2015 sem meðal ann­ars kveða á um aðgrein­ingu þjón­ustu­þátta og mögu­leika við­skipta­vina til að kaupa hluta við­kom­andi þjón­ustu af öðrum án þess að það hafi áhrif á kjör ann­arrar þjón­ustu sem keypt er af Símanum.

Brotin til þess fallin að styrkja stöðu Símans á sjónvarpsmarkaði

Rannsókn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins leiddi í ljós að þorri við­skipta­vina Símans, þ.e. nærri því 99 pró­sent þeirra sem kaupa Enska bolt­ann/Símann Sport á kerfum fyr­ir­tæk­is­ins, hefðu keypt sjón­varps­efnið í heild­ar­þjón­ustu, þ.e. með Heim­il­i­s­pakk­anum og/eða Sjón­varpi Símans Premium í stað þess að kaupa þjón­ust­una eina og sér.

Nið­ur­staða Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins er að verð­lagn­ing Símans á Enska bolt­anum sem hluta af Heim­il­i­s­pakk­anum hafi lagt stein í götu keppi­nauta fyr­ir­tæk­is­ins og tak­markað mögu­leika þeirra til að laða til sín við­skipta­vini.

Fram­an­greind brot eru, sam­kvæmt eft­ir­lit­inu, til þess fallin að styrkja stöðu Símans á sjón­varps­mark­aði og efla enn frekar stöðu fyr­ir­tæk­is­ins á fjar­skipta­mörk­uðum þar sem staða Símans er sterk fyrir.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur að fram­an­greind brot séu alvar­leg og til þess fallin að skaða hags­muni almenn­ings til lengri tíma, á mörk­uðum sem skipta neyt­endur og efna­hags­lífið miklu máli. Því sé óhjá­kvæmi­legt að leggja sektir á Símann vegna brot­anna. Sé það áhyggju­efni að Síminn hafi á ný gerst brot­legur með alvar­legum hætti.

Fyrir Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu liggur að taka afstöðu til fleiri kvart­ana sem borist hafa á liðnum mán­uðum vegna hátt­semi á fjar­skipta­mark­aði. Í til­kynn­ing­unni segir að Sam­keppn­is­eft­ir­litið muni í fram­hald­inu taka til skoð­unar hvort efni séu til þess að gera breyt­ingar á þeim skil­yrðum sem nú hvíla á Símanum og tryggja eiga virka sam­keppni. Hafi Síminn jafn­framt óskað eftir sam­ræðum um end­ur­skoðun skil­yrð­anna.

Hægt er að lesa ákvörð­un­ina í heild sinni hér.

Ákvörðunin mikil vonbrigði

Síminn sendi frá sér til­kynn­ingu í kjöl­far ákvörð­un­ar­innar þar sem fram kemur að fyr­ir­tækið telji hana „ekki aðeins mikil von­brigði heldur einnig skað­lega fyrir sam­keppni í land­inu“.

Að mati Símans skýtur það afar skökku við, nú þegar loks sé til staðar hörð sam­keppni um sýn­ingu á íþrótta­efni hér á landi, að Sam­keppn­is­eft­ir­litið telji rétt að beita Símann háum fjár­sektum vegna sams konar pakka­til­boða og tíðk­uð­ust yfir ára­tuga­skeið af þeim aðila sem hefur verið mark­aðs­ráð­andi á áskrift­ar­sjón­varps­mark­aði um ára­bil, 365 – sem nú er Sýn – en þetta mál sé einmitt til­komið vegna kvört­unar Sýnar.

„Í ákvörð­un­inni felst ekki að Síminn hafi brotið gegn sam­keppn­is­lögum heldur er Síminn tal­inn hafa brotið að formi til gegn til­teknum skil­yrðum í til­teknum ákvörð­unum Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins frá fyrri árum. Á meint brot að hafa falist í því að Síminn bauð enska bolt­ann á of góðum kjörum að mati Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, inn í pakka­til­boðum.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur ítrekað ákveðið að sama hátt­semi Sýnar og áður 365 miðla væri ekki athuga­verð. Gat Síminn því ekki annað en verið í góðri trú um verð­lagn­ingu á umræddri þjón­ustu félags­ins.

Verð á enska bolt­anum hefur ekki aðeins lækkað til neyt­enda eftir að Síminn tók við sýn­ing­ar­rétt­inum heldur hafa fleiri heim­ili aðgang að þjón­ust­unni en nokkru sinni fyrr. Annað íþrótta­efni sem aðrir bjóða upp á hefur einnig lækkað á sama tíma, vænt­an­lega vegna auk­innar sam­keppni frá Símanum, og því neyt­endum til hags­bóta en ekki skaða,“ segir í til­kynn­ingu Símans.

Neytendur hér á landi aldrei áður haft jafn greiðan aðgang að enska boltanum

Þá kemur fram að þegar Síminn hóf und­ir­bún­ing að sýn­ingum frá ensku úrvals­deild­inni hafi verið horft til þess að gera vör­una sem aðgengi­leg­asta öllum á sem besta mögu­lega verði. Það hafi gengið eftir enda Síminn Sport aðgengi­leg á öllum dreifi­kerfum lands­ins, gömlum sem nýjum og opin öllum áskrif­endum óháð því hvar við­kom­andi kýs að hafa fjar­skipta­þjón­ustu sína.

„Neyt­endur hér á landi hafa aldrei áður haft jafn greiðan aðgang að enska bolt­anum, á jafn hag­kvæmu verði. Það kann nú að breyt­ast því ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins virð­ist við fyrstu skoðun geta leitt til þess að Símanum verði nauð­ugur einn kostur að hækka áskrift að sjón­varps­efni veru­lega.“

Að lokum segir að þessi ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins muni hafa nei­kvæð áhrif á afkomu Símans þar sem sektin verði gjald­færð á öðrum árs­fjórð­ungi. Ný EBITDA spá Símans fyrir árið 2020 sé 9,9 til 10,3 millj­arðar króna að teknu til­liti til sekt­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár