Sekt Símans fyrir brot á samkeppnissátt lækkuð úr 500 í 200 milljónir króna

Áfrýj­un­ar­nefnd sam­keppn­is­mála hefur stað­fest að Síminn hafi brotið gegn sátt með því að bjóða betri við­skipta­kjör við sölu á Enska bolt­anum til þeirra sem eru með Heim­il­i­s­pakka Símans.

Enski boltinn er afar vinsælt sjónvarpsefni.
Enski bolt­inn er afar vin­sælt sjón­varps­efni. Mynd: EPA

Áfrýj­un­ar­nefnd sam­keppn­is­mála hefur stað­fest að Síminn hafi brotið gegn sátt sem félagið gerði við Sam­keppn­is­eft­ir­litið árið 2015 um að tvinna ekki saman fjar­skipta­þjón­ustu og línu­legri sjón­varps­þjón­ustu. Það hafi Síminn gert með því að bjóða ólík við­skipta­kjör við sölu á Enska bolt­anum á Sím­anum Sport, eftir því hvort hann var boð­inn innan Heim­il­i­s­pakka Sím­ans eða einn og sér í stakri áskrift.

Sekt Símans var þó lækkuð úr 500 millj­ónum króna í 200 millj­ónir króna.

Í úrskurði áfrýj­un­ar­nefndar er tekið fram að brot Símans sé alvar­legt og að hátt­semi fyr­ir­tæk­is­ins hafi verið í and­stöðu við ákvæði sátt­ar­innar sem það hafi und­ir­geng­ist að hafa í heiðri í starf­semi sinni.

[adspot]Í frétt um úrskurð­inn á vef Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins segir að Símanum hafi ekki getað dulist að mark­aðs­setn­ing og sala fyr­ir­tæk­is­ins á sjón­varps­rásinni Símanum Sport kynni að fara í bága við sátt­ina. „Við ákvörðun á fjár­hæð sektar vegna brots­ins er tekið fram að Síminn hafi áður gerst sekur um sam­bæri­legt brot sem hafi varðað stjórn­valds­sekt og taldi nefndin með vísan til þessa að sekt vegna þessa brots skyldi vera 200 m. kr.“

Í úrskurði áfrýj­un­ar­nefndar var aftur á móti talið að Sam­keppn­is­eft­ir­litið þyrfti að rann­saka nánar stöðu Símans á mark­aði að því er snerti þá hátt­semi sem í ákvörðun eft­ir­lits­ins var talin brjóta gegn sátt­inni frá 23. jan­úar 2015. Af þeim sökum var þeim þætti máls­ins vísað til nýrrar með­ferðar hjá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu.

[links]Í til­kynn­ingu sem Síminn sendi til Kaup­hallar Íslands í kvöld er nið­ur­staðan túlkuð á annan hátt. Þar segir að áfrýj­un­ar­nefndin hafi fellt ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins að hluta úr gildi. „Síminn fagnar því að stjórn­valds­sekt sú er Símanum var gert að greiða sé lækkuð umtals­vert. Það sýnir að hið meinta brot á skil­yrðum sem Símanum voru sett á fyrri árum var ekki með þeim hætti er Sam­keppn­is­eft­ir­litið úrskurð­aði um.“

Bæði Síminn og Sam­keppn­is­eft­ir­litið segj­ast nú munu fara betur yfir for­sendur úrskurð­ar­ins og meta næstu skref, en hægt er að bera úrskurð­inn undir dóm­stóla.

Úrskurður áfrýj­un­ar­nefndar sam­keppn­is­mála mun hafa áhrif á afkomu Símans árið 2020 þar sem lækkun sektar verður færð á síð­asta fjórð­ung árs­ins. Áður birt EBITDA spá Símans fyrir árið 2020 var 9,9 – 10,3 millj­arðar. Vinnu við árs­upp­gjör er ekki lokið, en sam­kvæmt fyrstu drögum er útlit fyrir að EBITDA árs­ins verði í kringum 10,4 – 10,5 millj­arða króna að teknu til­liti til úrskurðar áfrýj­un­ar­nefndar. Sá fyr­ir­vari er gerður að end­ur­skoðun árs­upp­gjörs er í gangi og stjórn félags­ins hefur ekki fjallað um nið­ur­stöðu árs­ins.

Tekjur Sím­ans af sjón­varps­þjón­ustu juk­ust um 13,8 pró­sent á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2020 miðað við sama tíma­bil árið áður. Alls voru tekj­urnar vegna sjón­varps­þjón­ustu 4,6 millj­arðar króna á tíma­bil­inu eða 560 millj­ónum krónum hærri en á fyrstu þremur árs­fjórð­ungum árs­ins á undan. Vert er að taka fram að Síminn tók við sýn­inga­rétti á enska bolt­anum frá upp­hafi tíma­bils­ins 2019/2020 og því eru tekjur vegna hans að öllu leyti inni á árinu 2020, en að litlu leyti á árinu 2019.

Aug­lýs­inga­tekjur Sím­ans vaxið um 22 pró­sent milli ára, sem verður að telj­ast ágætt í ljósi þess að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hefur valdið umtals­verðum tekju­sam­drætti í aug­lýs­inga­sölu flestra fjöl­miðla­fyr­ir­tækja það sem af er árinu 2020.

Þá hafa tekjur af Prem­i­um-­þjón­ustu Sím­ans auk­ist um 18 pró­sent frá því sem þær voru á þriðja árs­fjórð­ungi í árið 2019.

Alls juk­ust tekjur Sím­ans um 572 millj­ónir króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2020 miðað við sama tíma­bil árið áður. Það þýðir að nær öll tekju­aukn­ingin er til­komin vegna sjón­varps­þjón­ust­unn­ar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár