„Skaðleg undirverðlagning“ á enska boltanum, segir forstjóri Símans

For­stjóri Símans segir að ef end­ur­sölu­að­ilar enska bolt­ans vilji selja vör­una með tapi sé það þeirra mál, eins langt og það nær. Hins vegar sé um „skað­lega und­ir­verð­lagn­ingu“ að ræða af hálfu Vodafone. Nova ætlar líka að bjóða bolt­ann á 1.000 krónur.

Orri Hauksson, forstjóri Símans.
Orri Hauksson, for­stjóri Símans. Mynd: Nasdaq Iceland

Síminn ákveður ekki á hvaða verði end­ur­sölu­að­ilar á mark­aði selja vörur fyr­ir­tæk­is­ins í smá­sölu, segir Orri Hauksson for­stjóri Símans, í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans. Hann segir þó að ný mark­aðs­her­ferð Vodafone, um að hægt sé að kaupa enska bolt­ann á 1.000 krónur út tíma­bilið sé „skað­leg und­ir­verð­lagn­ing“ af hálfu aðila sem hafi verið útnefndur mark­aðs­ráð­andi í áskrift­ar­sjón­varpi og sjón­varps­dreif­ingu.

Kjarninn innti Símann um við­brögð við þeim tíð­indum morg­uns­ins að Vodafone, sem er hluti Sýnar-sam­stæð­unnar, ætl­aði að byrja að bjóða enska bolt­ann til sölu í gegnum sitt sjón­varps­dreifi­kerfi á 1.000 krónur út tíma­bilið, sem lýkur í sumar eftir hlé vegna heims­far­ald­urs­ins.

Nova sendi síðan út frétta­til­kynn­ingu um hádeg­is­bil þar sem fram kemur að fyr­ir­tækið ætli einnig að bjóða upp á enska bolt­ann á 1.000 krónur í gegnum sína sjón­varps­þjón­ustu. [links]

„Dómarinn hefur flautað, sem er mik­il­vægt svo sam­keppni þrí­fist á mark­aðnum. Aðal­at­riðið er að allir neyt­endur sitji við sama borð og það er jákvætt að Sam­keppn­is­eft­ir­litið sé vak­andi fyrir því,“ er haft eftir Margréti Tryggva­dóttur, for­stjóra Nova, í frétta­til­kynn­ingu.

Þeirra mál að selja vöruna með tapi, eins langt og það nær

„Við seljum þessa til­teknu vöru, Símann Sport, í heild­sölu á mun hærra verði en 1.000 kr. Ef aðilar vilja selja vör­una með tapi er það þeirra mál, eins langt og það nær,“ segir Orri í svari sínu, og heldur áfram:

„Það sem vekur hins vegar athygli hér er að það er aðili sem hefur verið útnefndur mark­aðs­ráð­andi í áskrift­ar­sjón­varpi ann­ars vegar og sjón­varps­dreif­ingu hins vegar sem kýs að beita und­ir­verð­lagn­ingu. Í slíkum til­fellum heitir það skað­leg und­ir­verð­lagn­ing,“ segir Orri, sem síðan skýrir út að Síminn selji engum Símann Sport á 1.000 krónur í smá­sölu.[adspot]

„Sjón­varps­þjón­ustan Premium, sem inni­heldur m.a. Símann Sport auk urmuls ann­ars efnis sem kemur inn og út, kostar 6.000 kr. og er seld 12 mán­uði árs­ins. Síminn Sport er seldur stakur á 4.500 í smá­sölu af okkar hálfu og er inn­heimt fyrir vör­una 9-10 mán­uði á ári, eftir því hvenær verið er að spila í ensku úrvals­deild­inni,“ segir Orri, en Síminn fékk nýlega 500 millj­óna króna sekt frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu fyrir einmitt það að láta Símann Sport fylgja með í Premium-pakk­anum. Síminn hefur áfrýjað sekt­ar­á­kvörð­un­inni.

Orri segir aðal­at­riðið nú vera að „ekki sé verið að gefa neyt­endum falskar tíma­bundnar vænt­ingar og leika laga­lega eða mark­aðs­lega sam­kvæm­is­leiki“ sem rugli alla í rím­inu.

„Hitt má líka hafa í huga að eftir að Síminn keypti sýn­ing­ar­rétt­inn að ensku úrvals­deild­inni og hóf sýn­ingar snar­lækk­aði verðið frá því að Sýn og for­verar voru með þennan rétt ára­tugum saman. Það er mun meiri dreif­ing á þessu efni núna en fyrr og aðgengi yfir öll kerfi alls staðar á land­inu. Við vildum frekar selja vör­una ódýrt og koma til sem flestra, m.a. til að geta höfðað til aug­lýsenda, frekar en hafa hana áfram dýra fyrir fáa. Það tókst og af því erum við stolt,“ segir Orri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjarskiptamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár