Vodafone selur enska boltann á þúsund krónur á mánuði

Fjar­skipta­fyr­ir­tækið Vodafone selur nú eina verð­mæt­ustu vöru helsta sam­keppn­is­að­ila síns, Símans, á eitt þús­und krónur á mán­uði. Þetta telur fyr­ir­tækið sig geta gert eftir ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins í síð­asta mán­uði um brot Símans.

Nú geta áhugamenn um enska boltann keypt aðgang að honum á eitt þúsund krónur.
Nú geta áhuga­menn um enska bolt­ann keypt aðgang að honum á eitt þús­und krónur. Mynd: EPA

Vodafone, sem til­heyrir Sýn-sam­stæð­unni, aug­lýsir í dag í helstu prent­miðlum lands­ins að fyr­ir­tækið bjóði nú aðgang að Símanum Sport, sem á rétt­inn af sýn­ingu á enska bolt­anum, á eitt þús­und krónur út þetta keppn­is­tíma­bili. Auk þess von­ast Vodafone til að geta selt þessa vöru sam­keppn­is­að­ila síns á sama verði á næsta keppn­is­tíma­bili.

Forsaga máls­ins er sú að í lok síð­asta mán­aðar greindi Sam­keppn­is­eft­ir­litið frá því að Síminn hefði brotið gegn skil­yrðum í sáttum sem fyr­ir­tækið hefur á und­an­förnum árum gert við ­eft­ir­lit­i.

Í ákvörð­un­inni kom fram að mik­ill verð­munur og ólík við­skipta­kjör við sölu á Enska bolt­anum á Sím­anum Sport, eftir því hvort hann er boð­inn innan Heim­il­i­s­pakka Sím­ans, þar sem hann var felldur inn sam­hliða eitt þús­und króna hækkun á verði pakk­ans (alls sex þús­und krónur), eða einn og sér í stakri áskrift, þar sem hann kostar 4.500 krónur, hafi brotið gegn þeim skil­yrðum sem hvíla á fyr­ir­tæk­inu. Taldi Sam­keppn­is­eft­ir­litið að brotin séu alvar­leg og sektaði Sím­ann vegna þessa um 500 millj­ónir króna. Síminn hefur ákveðið að áfrýja ákvörð­un­inni.

Ákvörðun Vodafone um að bjóða þessa verð­mætu vöru sam­keppn­is­að­ila síns á eitt þús­und krónur á mán­uði kemur í kjöl­far ákvörð­unar Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um brot Símans. Í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu segir að verð Símans á þjón­ust­unni sem hluti af eigin vöru­fram­boði sé mun lægra en núgild­andi heild­sölu­verð til Vodafone. „Hefur Sam­keppn­is­eft­ir­litið kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að þetta leggi stein í götu keppi­nauta Símans. Af þeim sökum hefur Vodafone óskað eftir því að Síminn breyti heild­sölu­verð­lagn­ingu sinni þannig að unnt verði að bjóða neyt­endum Enska bolt­ann á kr. 1000 á mán­uði einnig á næsta keppn­is­tíma­bili án þess að umtals­vert tap hljót­ist af.“

[adspot]Heiðar Guð­jóns­son, for­stjóri Vodafone, segir það vera frá­bærar fréttir að geta boðið neyt­endum lægra verð í kjöl­far ákvörð­unar Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. „Er það von okkar að þessi verð­lækkun verði var­an­leg og að neyt­endur geti nálg­ast vör­una á þessu verði óháð því hvaða fjar­skipta­fé­lag þeir eiga við­skipti við.“

Enski bolt­inn fer aftur af stað innan skamms eftir að hafa legið í dvala frá því snemma í mars vegna COVID-19. Síminn ákvað að fella niður áskrift­ar­gjöld þeirra sem keyptu Símann Sport beint á meðan að sú staða var uppi en verð á Heim­il­i­s­pakk­anum, sem var hækkað úr fimm þús­und krónum í sex þús­und krónur á mán­uði í fyrra þegar áskrift af Símanum Sport var felld inn í hann, breytt­ist ekki. Lang­flestir áskrif­endur að Símanum Sport eru með áskrift í gegnum Heim­il­i­s­pakk­ann.

Eitt fyr­ir­tæki eykur tekjur hratt, hitt upp­lifir mik­inn sam­drátt

Hörð bar­átta hefur átt sér stað á sjón­varps­mark­aði milli þeirra fjar­skipta­fyr­ir­tækja sem keppa á honum á und­an­förnum árum. Sím­inn hefur bætt veru­lega í þá þjón­ustu sem hann selur undir hatti Sjón­varpi Sím­ans og Sýn keypti í lok árs 2017 fjölda fjöl­miðla, meðan ann­ars Stöð 2, Stöð 2 Sport, Vísi, Bylgj­una, FM957 og Xið 977 fyrir tæp­lega átta millj­arða króna.

Hjá Sím­anum voru rekstr­ar­tekjur af sjón­varps­þjón­ustu drif­kraft­ur­inn í auknum tekjum fyr­ir­tæk­is­ins í fyrra, eða 75 pró­sent þeirra. Alls juk­ust tekj­urnar af sjón­varps­þjón­ust­unni um 818 millj­ónir króna á einu ári. Þar skiptir meðal ann­ars miklu að Sím­inn náði til sín sýn­ing­ar­rétt­inum að enska bolt­anum af Sýn, sem á Vodafone.

Á sama tíma hefur fjöl­miðla­rekstur Sýnar gengið verr. Tekjur fyr­ir­tæk­is­ins vegna hans dróg­ust saman um 446 millj­ónir króna á árinu 2019 og í upp­hafi yfir­stand­andi árs færði Sýn niður við­skipta­vild sem skap­að­ist við kaup á fjöl­miðl­unum um 2,5 millj­arða króna.

Á fyrsta árs­fjórð­ungi 2020 hélt Sím­inn áfram að hagn­ast á sjón­varps­þjón­ustu, en tekjur hans á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins vegna hennar voru 1.583 millj­ónir króna og 252 millj­ónum króna meira en á sama tíma­bili í fyrra. Alls er um að ræða tekju­aukn­ingu um 18,9 pró­sent.

Á sama árs­fjórð­ungi dróg­ust tekjur Sýnar vegna fjöl­miðla­rekst­urs saman um 229 millj­ónir króna, eða ell­efu pró­sent, og voru 1.943 millj­ónir króna.

[adspot]Á örskömmum tíma hefur staðan í fjöl­miðla­sam­keppni þess­ara tveggja íslensku fjar­skipt­ar­isa gjör­breyst. Á þriðja árs­fjórð­ungi 2018 voru tekjur Sýnar vegna fjöl­miðla 76 pró­­sent hærri en tekjur Sím­ans vegna þeirrar tekju­­stoð­­ar. Á fyrstu þremur mán­uðum yfir­stand­andi árs voru þær 23 pró­sent hærri.

Við­skipta­vinum í „Heim­il­i­s­pakka“ fjölg­aði um 4.250

Áskrift­ar­sala að Sím­anum Sport, sem sýnir leiki úr ensku úrvals­deild­inni, hófst í fyrra­sum­ar. Stök áskrift var seld á 4.500 krón­ur en á sama tíma var hins vegar greint frá því að allir áskrif­endur að Sjón­­varpi Sím­ans Prem­i­um, sem voru þá þegar 35 til 40 þús­und, myndu fá aðgang að enska bolt­an­­um. Um leið var mán­að­­ar­verðið fyrir þá þjón­­ustu hækkað úr fimm þús­und krónum í sex þús­und krón­­ur. Á árs­grund­velli þýðir það að tekjur Sím­ans vegna þeirra breyt­inga juk­ust um 420 til 480 millj­ónir króna áður en að búið var að selja eina ein­ustu áskrift.

Í ljósi þess að nær ómögu­legt er að vera með Sjón­varp Sím­ans án þess að kaupa inter­net­þjón­ustu að Sím­anum þá er stærsti við­skipta­vina­hópur fyr­ir­tæk­is­ins með svo­kall­aðan „Heim­il­i­s­pakka“, sem inni­heldur inter­net, heima­síma, IPTV aðgang (mynd­lyk­il), Prem­i­um-­pakk­ann og nokkrar erlendrar stöðv­ar.

Á milli þess tíma sem Sím­inn keypti rétt­inn að enska bolt­anum og þess tíma sem áskrift að honum var bætt inn í Prem­ium áskrift­ar­leið­ina var verð­mið­inn á Heim­il­i­s­pakk­anum hækk­aður tví­veg­is, um sam­tals eitt þús­und krón­ur, ann­ars vegar í byrjun mars 2019 og hins vegar í byrjun ágúst 2019. Lang­flestir Prem­ium áskrif­endur eru með þá áskrift í gegnum Heim­il­i­s­pakk­ann.

Við­skipta­vinum Sím­ans í þeim fjölg­aði um 4.250 í fyrra. Um helm­ingur þeirrar fjölg­unar kom á fjórða árs­fjórð­ungi, þegar áhrifin af til­urð Sím­ans Sport voru að fullu að koma fram. Þeim sem keyptu inter­net af félag­inu fjölg­aði einnig um 1.700 á síð­asta ári.

Brotin til þess fallin að styrkja stöðu Sím­ans á sjón­varps­mark­aði

Áður­nefnd rann­sókn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins leiddi í ljós að þorri við­skipta­vina Sím­ans, þ.e. nærri því 99 pró­sent þeirra sem kaupa Enska bolt­ann/Sím­ann Sport á kerfum fyr­ir­tæk­is­ins, hefðu keypt sjón­varps­efnið í heild­ar­þjón­ustu, þ.e. með Heim­il­i­s­pakk­anum og/eða Sjón­varpi Sím­ans Prem­ium í stað þess að kaupa þjón­ust­una eina og sér.

Nið­ur­staða Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins var að verð­lagn­ing Sím­ans á Enska bolt­anum sem hluta af Heim­il­i­s­pakk­anum hafi lagt stein í götu keppi­nauta fyr­ir­tæk­is­ins og tak­markað mögu­leika þeirra til að laða til sín við­skipta­vini.

[links]Fram­an­greind brot voru, sam­kvæmt eft­ir­lit­inu, til þess fallin að styrkja stöðu Sím­ans á sjón­varps­mark­aði og efla enn frekar stöðu fyr­ir­tæk­is­ins á fjar­skipta­mörk­uðum þar sem staða Sím­ans er sterk fyr­ir.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið taldi í nið­ur­stöðu sinni, sem birt var í lok maí, að fram­an­greind brot væru alvar­leg og til þess fallin að skaða hags­muni almenn­ings til lengri tíma, á mörk­uðum sem skipta neyt­endur og efna­hags­lífið miklu máli. Því væru óhjá­kvæmi­legt að leggja sektir á Sím­ann vegna brot­anna og sér­stak­lega til­tekið að það væri áhyggju­efni að Sím­inn hefði á ný gerst brot­legur með alvar­legum hætti.

Í til­kynn­ing­unni sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið sendi frá sér vegna nið­ur­stöð­unnar sagði að það muni í fram­hald­inu taka til skoð­unar hvort efni séu til þess að gera breyt­ingar á þeim skil­yrðum sem nú hvíla á Sím­anum og tryggja eiga virka sam­keppni. Hafi Sím­inn jafn­framt óskað eftir sam­ræðum um end­ur­skoðun skil­yrð­anna.

Hægt er að lesa ákvörð­un­ eft­ir­lits­ins í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár