Sífellt færri eru áskrifendur að sjónvarpsþjónustu sem notast við myndlykla

Þeim lands­mönnum sem kaupa áskriftir að sjón­varps­þjón­ustu sem þarf að nota mynd­lykil til að miðl­ast hefur fækkað um tæp­lega tíu pró­sent á tveimur árum. Sýn hefur tapað tæp­lega fjórð­ungi áskrif­enda á tveimur árum.

Neysla á afþreyingarefni hefur tekið stakkaskiptum á örfáum árum.
Neysla á afþrey­ing­ar­efni hefur tekið stakka­skiptum á örfáum árum. Mynd: Úr safni

Fjöldi áskrif­enda Vodafone, sem til­heyrir Sýn-sam­stæð­unni, sem var með sjón­varp yfir svo­kallað IP-net dróst saman um dróst saman um 18 pró­sent á árinu 2019. Í byrjun þess voru 41.388 áskrif­endur með mynd­lykla frá Vodafone en um síð­ustu ára­mót voru þeir orðnir 33.918. Frá árs­lokum 2017 hefur áskrif­enda­fjöldi fyr­ir­tæk­is­ins alls dreg­ist saman um tæpan fjórð­ung.

Þetta kemur fram í nýrri töl­fræði­skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unar um fjar­skipta­mark­að­inn 2019 sem birt var nýverið.

Vert er að taka fram að fjöldi þeirra sem er með sjón­varp yfir IP-net, sem er það sjón­varp sem miðlað er í gegnum ADSL- eða ljós­leið­ara­teng­ingar í mynd­lykla sem leigðir eru af fjar­skipta­fyr­ir­tækjum, hefur fækkað umtals­vert á und­an­förnum árum sam­hliða því að streym­isveitur á borð við Netflix, Amazon Prime og nú nýlega Viaplay hófu inn­reið sína inn á íslenskan sjón­varps­markað. Hægt er að horfa á slíkar í gegnum öpp á sjón­varpi og öðrum tækjum án þess að mynd­lykil þurfi til.

Frá árs­lokum 2017 hefur áskrif­endum sem eru með sjón­varp yfir IP-net fækkað um tæp­lega tíu þús­und, eða um tæp­lega tíu pró­sent. Á árinu 2019 einu saman fækk­aði þeim um 7.108 tals­ins.

Það tap á við­skipta­vinum er allt hjá Vodafone. Síminn, hinn leik­and­inn á þessum mark­aði, heldur sínum við­skipta­vina­fjöld milli ára og bætti við 362 nýjum. Mark­aðs­hlut­deild hans er nú 63,1 pró­sent á mark­aði fyrir sjón­varp yfir IP-net en hlut­deild Vodafone 36,9 pró­sent.

Eitt fyrirtæki eykur tekjur hratt, hitt upplifir mikinn samdrátt

Hörð bar­átta hefur átt sér stað á sjón­varps­mark­aði milli þeirra fjar­skipta­fyr­ir­tækja sem keppa á honum á und­an­förnum árum. Síminn hefur bætt veru­lega í þá þjón­ustu sem hann selur undir hatti Sjón­varpi Símans og Sýn keypti í lok árs 2017 fjölda fjöl­miðla, meðan ann­ars Stöð 2, Stöð 2 Sport, Vísi, Bylgj­una, FM957 og Xið 977 fyrir tæp­lega átta millj­arða króna.

Hjá Símanum voru rekstr­ar­tekjur af sjón­varps­þjón­ustu drif­kraft­ur­inn í auknum tekjum fyr­ir­tæk­is­ins í fyrra, eða 75 pró­sent þeirra. Alls juk­ust tekj­urnar af sjón­varps­þjón­ust­unni um 818 millj­ónir króna á einu ári. Þar skiptir meðal ann­ars miklu að Síminn náði til sín sýn­ing­ar­rétt­inum að enska bolt­anum af Sýn.

[adspot]Á sama tíma hefur fjöl­miðla­rekstur Sýnar gengið verr. Tekjur fyr­ir­tæk­is­ins vegna hans dróg­ust saman um 446 millj­ónir króna á árinu 2019 og í upp­hafi yfir­stand­andi árs færði Sýn niður við­skipta­vild sem skap­að­ist við kaup á fjöl­miðl­unum um 2,5 millj­arða króna.

Á fyrsta árs­fjórð­ungi 2020 hélt Síminn áfram að hagn­ast á sjón­varps­þjón­ustu, en tekjur hans á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins vegna hennar voru 1.583 millj­ónir króna og 252 millj­ónum króna meira en á sama tíma­bili í fyrra. Alls er um að ræða tekju­aukn­ingu um 18,9 pró­sent.

Á sama árs­fjórð­ungi dróg­ust tekjur Sýnar vegna fjöl­miðla­rekst­urs saman um 229 millj­ónir króna, eða ell­efu pró­sent, og voru 1.943 millj­ónir króna.

Á örskömmum tíma hefur staðan í fjöl­miðla­sam­keppni þess­ara tveggja íslensku fjar­skipt­ar­isa gjör­breyst. Á þriðja árs­fjórð­ungi 2018 voru tekjur Sýnar vegna fjöl­miðla 76 pró­sent hærri en tekjur Sím­ans vegna þeirrar tekju­stoð­ar. Á fyrstu þremur mán­uðum yfir­stand­andi árs voru þær 23 pró­sent hærri.

160 prósent aukning hjá Nova á tveimur árum

Þegar kemur að inter­netteng­ingum þá er Síminn líka stærstur. Hlut­deild hans á mark­aði er 47,6 pró­sent sem er mjög svipað hlut­fall og verið hefur und­an­farin ár. Fyr­ir­tæk­inu virð­ist ganga ágæt­lega að bæta við sig þeim við­skipta­vinum sem bæt­ast við á hverju ári og halda stöðu sinni. Á árinu 2019 fjölg­aði þeim til að mynda um 2.662 tals­ins og voru 66.273 í lok þess.

[links]Nova seldi lengi vel ekki inter­net­þjón­ustu með öðrum hætti en í gegnum far­síma­kerfi. Á því varð breyt­ing á árinu 2016 þegar að fyr­ir­tæk­ið til­kynnti að það ætl­aði að hefja ljós­leið­ara­þjón­ust­u. Síðan þá hefur hlut­deild fyr­ir­tæk­is­ins vaxið hratt. Hún var 3,3 pró­sent um mitt ár 2017 en 12,4 pró­sent í lok árs 2019. Alls hefur þeim við­skipta­vinum sem kaupa inter­net­þjón­ustu hjá Nova fjölgað um 160 pró­sent frá lokum árs 2017.

Hringdu hefur líka komið sér ágæt­lega fyrir á inter­net­mark­aðnum og er með 7,8 pró­sent hlut­deild, sem hefur hald­ist nán­ast óbreytt síð­ast­liðin tvö ár, en þó þannig að fyr­ir­tækið hefur bætt við sig nýjum við­skipta­vinum á hverju ári.

Eina fyr­ir­tækið sem Póst- og fjar­skipta­stofnun fjallar um í skýrsl­unni, og selur inter­netteng­ingar, sem hefur verið að missa mark­aðs­hlut­deild og við­skipta­vini er Vodafone, sem til­heyrir Sýnar-sam­stæð­unni. Staða fyr­ir­tæk­is­ins batn­aði umtals­vert í lok árs 2017 þegar það tók yfir inter­net­starf­semi 365 og fékk með tæp­lega 15 þús­und við­skipta­vini. Þá voru þeir alls 49.557 tals­ins en hefur síðan fækkað um 8.583 á tveimur árum, eða um 17,3 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár