Síminn eykur við forskotið á farsímamarkaði hjá þjóð sem er óð í meira gagnamagn

Á ára­tug hefur gagna­magns­notkun Íslend­inga á far­síma­neti 225fald­ast. Síminn hefur á und­an­förnum árum end­ur­heimt fyrsta sætið á list­anum yfir það fjar­skipta­fyr­ir­tæki sem er með flesta við­skipta­vini í far­síma­þjón­ustu, en mest gagna­magn flæðir um kerfi Nova.

Síminn, stærsta fjar­skipta­fyr­ir­tæki lands­ins, jók við mark­aðs­hlut­deild sína á far­síma­mark­aði í fyrra. Alls var fyr­ir­tækið með 175.995 við­skipta­vini í áskrift í lok árs 2019 og 37 pró­sent mark­aðs­hlut­deild. Hlut­deildin jókst um 1,4 pró­sentu­stig og Síminn var eina fyr­ir­tækið á far­síma­mark­aði með telj­andi mark­aðs­hlut­deild sem fjölg­aði við­skipta­vinum sínum í fyrra.

Helstu sam­keppn­is­að­il­arnir, Nova og Vodafone (sem til­heyrir Sýn-sam­stæð­unni) töp­uðu bæði mark­aðs­hlut­deild og við­skipta­vinum. Hjá Nova, sem er nú með 32,8 pró­sent mark­aðs­hlut­deild, fækk­aði við­skipta­vin­unum um rúm­lega tvö þús­und og hjá Vodafone, sem er með 27,2 pró­sent mark­aðs­hlut­deild, um tæp­lega fimm þús­und á síð­asta ári. Síminn fjölg­aði á sama tíma sínum við­skipta­vinum um tæp­lega átta þús­und.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri töl­fræði skýrslu Póst- og fjar­skipta­stofn­unar um fjar­skipta­mark­að­inn sem sýnir stöð­una í lok árs 2019.

Síminn missti forskotið en hefur endurheimt það

Staðan á mark­aðnum hefur verið að breyt­ast nokkuð ört und­an­farin ár. Á hru­nár­inu 2008 var Síminn til að mynda alls­ráð­andi á far­síma­mark­aði á Íslandi með 56,6 pró­sent hlut­deild en Nova, sem hóf starf­semi 1. des­em­ber 2007, náði því árið 2015 að verða það fjar­skipta­fyr­ir­tæki sem var með mesta mark­aðs­hlut­deild. Um tíma, árinu 2017, náðu bæði Nova og Vodafone að verða stærri en Síminn á þessum mark­aði.

Það breytt­ist 2018 þegar Síminn náði topp­sæt­inu að nýju. Í fyrra styrkti fyr­ir­tækið tak sitt á því.

[adspot]Síminn hafði alls 5,8 millj­arða króna í tekjur af far­síma­þjón­ustu í fyrra, og dróg­ust þær saman um 360 millj­ónir króna. Á fyrsta árs­fjórð­ungi 2020 batn­aði sá hluti rekstr­ar­ins hjá fyr­ir­tæk­inu og tekj­urnar juk­ust um 29 millj­ónir króma frá sama tíma­bili í fyrra.

Far­síma­tekjur Vodafone voru 3,9 millj­arðar króna í fyrra og lækk­uðu um 55 millj­ónir króna milli ára. Á fyrsta árs­fjórð­ungi 2020 lækk­uðu tekj­urnar vegna far­síma um tvær millj­ónir króna miðað við sama tíma­bil á árinu 2019. Nova hefur ekki skilað árs­reikn­ingi fyrir 2019 Fyr­ir­tækja­skráar og þar sem fyr­ir­tækið er ekki skráð á markað þá hefur það ekki sömu upp­lýs­inga­skyldu og Síminn og Sýn.

Heimurinn gjörbreyttur á tíu árum

Um liðin ára­mót voru 83,4 pró­sent allra virkra síma­korta á far­síma­neti 4G kort. Um mitt ár 2014 voru 14,8 pró­sent allra síma­korta þannig, en 4G-væð­ingin hófst af alvöru á Íslandi á því ári. 4G teng­ingar innan far­síma­nets­ins fela í sér tíu sinnum meiri hraða en 3G teng­ingar gera. Þær eru auk þess um þrisvar sinnum hrað­ari en hröð­ustu ADSL-teng­ingar.

Notkun á gagna­magni hefur marg­fald­ast sam­hliða þess­ari þróun. Nú þykir enda ekk­ert til­töku­mál að horfa til að mynda á bíó­myndir eða þætti í sím­anum sínum í gegnum far­síma­netið, en hér áður fyrr, þegar gagna­flutn­ingur var mun hæg­ari, var slíkt ómögu­legt og gat auk þess verið fok­dýrt. Þá má ekki van­meta þátt almennrar inter­net­notk­unar, hlað­varpa, notk­unar á sam­fé­lags­miðlum á borð við Facebook, Twitter og Instagram og streym­isveitna á borð við Spotify í aukn­ingu á notkun á gagna­magni.

[adspot]Árið 2009 not­uðu íslenskir far­síma­not­endur 243 þús­und gíga­bæti af gagna­magni. Í fyrra not­uðu þeir 54,8 millj­ónir gíga­bæti. Á þessum ára­tug hefur aukn­ingin því 225fald­ast.

Þessi aukn­ing er enn að eiga sér stað. Frá árs­lokum 2017 og fram til síð­ustu ára­móta rúm­lega tvö­fald­að­ist hún og á síð­asta ári einu saman jókst gagna­magn í far­síma­kerfi um 50 pró­sent.

Vert er að taka fram að mikil aukn­ing á fjölda ferða­manna, sem hefur farið úr um hálfri milljón á ári árið 2010 í 2,3 millj­ónir 2018 og um tvær millj­ónir í fyrra, spilar líka rullu í hinni miklu aukn­ingu á notkun gagna­magns, enda flestir þeirra með far­síma sem þeir nota á ferða­lögum sínum til Íslands. Það verður því athygl­is­vert að sjá upp­gjör á gagna­magns­notkun fyrir árið 2020 þegar það liggur fyrir, í ljósi þess að nær engir ferða­menn hafa verið hér frá því snemma í mars, og verða lík­ast til vart fleiri það sem eftir lifir árs.

Nova styrkir stöðu sína á toppi gagnamagnslistans

Nova hefur alltaf haft mikið for­skot þegar kemur að notkun við­skipta­vina fjar­skipta­fyr­ir­tækj­anna á gagna­magni. Þar hefur áhersla fyr­ir­tæk­is­ins á að ná í unga við­skipta­vini sem hafa alist upp innan kerfis þess, á sama tíma og tækni- og neyslu­heim­ur­inn hefur gjör­breyst og færst meira yfir í litlar tölvur í vasa not­enda, borið ávöxt. Það þarf þó að taka fram að þar er um að ræða þá notkun sem fer fram í gegnum far­síma­netið, ekki þá sem nýtt er með teng­ingu við beini (WiFi), en margir far­símar tengj­ast slíkum beini heima hjá not­anda og/eða á vinnu­stað hans. Síminn er það fyr­ir­tæki sem er með flesta við­skipta­vini þegar kemur að hefð­bundnum inter­netteng­ingum.

Nova var með 61,4 pró­sent mark­aðs­hlut­deild þegar kom að gagna­magns­notkun á far­síma­neti í fyrra og bætti vel við hlut­deild sína frá sama tíma­bili árið áður. Síminn kemur þar á eftir með 24,3 pró­sent hlut­deild en Vodafone rekur lest­ina hjá þremur stóru fjar­skipta­fyr­ir­tækj­unum með 12,2 pró­sent mark­aðs­hlut­deild.

Aðrir minni leik­endur eru svo með 2,1 pró­sent hlut­deild.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár