Heildartekjur fjarskiptafyrirtækja jukust um 6,1 milljarð í fyrra og voru 72,4 milljarðar

Far­síma­á­skriftum fjölg­aði aftur í fyrra eftir að hafa fækkað í fyrsta sinn frá 1994 á árinu 2020. Tekjur fjar­skipta­fyr­ir­tækj­anna af sölu á far­síma­þjón­ustu juk­ust gríð­ar­lega sam­hliða þess­ari þróun.

Far­síma­á­skriftum á Íslandi fjölg­aði á ný í fyrra eftir að hafa fækkað á árinu 2020. Það var í fyrsta sinn frá árinu 1994 sem það gerð­ist og nokkuð ljóst að ástæða þess var kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn.

Alls voru áskrift­irnar 497.019 um síð­ustu ára­mót og þeim fjölg­aði um 4,5 pró­sent milli ára. Samhliða þess­ari þróun stórjuk­ust tekjur fjar­skipta­fyr­ir­tækja vegna far­síma­þjón­ustu. Þær voru 14 millj­arðar króna árið 2020 en 17,5 millj­arðar króna í fyrra. Alls juk­ust heild­ar­tekjur fyr­ir­tækj­anna um 6,1 millj­arð króna í fyrra og voru 72,4 millj­arðar króna. Aukn­ingin í far­síma­tekjum var því ábyrg fyrir 57 pró­sent af allri tekju­aukn­ing­unni.

Þrjú fyr­ir­tæki – Síminn, Vodafone sem til­heyrir Sýn-sam­stæð­unni og Nova – skipta far­síma­mark­að­inum bróð­ur­lega á milli sín. Sam­an­lögð mark­aðs­hlut­deild þess­ara þriggja fyr­ir­tækja var 95,7 pró­sent á síð­asta ári. Það er nán­ast sama hlut­deild og þau höfðu ári áður.

[adspot]Athygl­is­vert er að mark­aðs­hlut­deild hvers fyr­ir­tækis hefur varla hagg­ast árum saman. Síminn er stærstur á mark­að­inum með 36,8 pró­sent við­skipta­vina, Nova kemur þar næst með 32,7 pró­sent og Vodafone er minnstur risanna þriggja með 26,2 pró­sent hlut­deild.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri töl­fræði­skýrslu Fjar­skipta­stofu um fjar­skipta­mark­að­inn sem sýnir stöð­una í lok árs 2021.

Snjallsímabyltingin

Fyrsta aðgengi­lega töl­fræði­skýrsla Fjar­skipta­stofu, sem hét áður Póst- og fjar­skipta­stofn­un, um fjar­skipta­mark­að­inn kom út árið 2005. Þar voru birtar tölur um fjölda skráðra GSM-á­skrifta aftur til árs­ins 1994, þegar þær voru 2.119 tals­ins. Næstu árin fjölg­aði þeim jafnt og þétt og voru orðnar 284.521 árið 2005.

­[links]Með snjall­síma­bylt­ing­unni, sem kom til eftir að fyrsti iPhone-inn var kynntur til leiks sum­arið 2007, breyt­ist hlut­verk sím­ans umtals­vert og hann fór að nýt­ast í mun fleiri hluti en áður. Nú til dags er þessi litla tölva í vasa okkar flestra helsta tækið sem notað er til að nálg­ast afþr­ey­ingu, sam­fé­lags­miðla og frétt­ir. Hún er auk þess mynda­vél, halla­mál, veð­ur­fræð­ing­ur, nær­ing­ar­ráð­gjafi og ýmis­legt ann­að.

Árið 2007 var heild­ar­fjöldi GSM-á­skrifta kom­inn í tæp­lega 312 þús­und hér­lend­is. Árið 2010 var fjöld­inn kom­inn í 375 þús­und og 2014 fór hann yfir 400 þús­und.

Fjöld­inn náði því að vera tæp­lega 476 þús­und árið 2019 en, líkt og áður sagði, skrapp hann saman árið 2020 í fyrsta sinn frá því að farið var að halda utan um þessar töl­ur.

Í fyrra bætt­ust svo við 21.480 nýjar áskriftir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár