Tekjur Símans af sjónvarpsþjónustu jukust um 818 milljónir í fyrra

Áhrif kaupanna á sýn­ing­ar­rétti enska bolt­ans, og þeirra breyt­inga sem Síminn réðst í sam­hliða inn­leið­ingu hans í sjón­varps­þjón­ustu sína, eru afar áber­andi í upp­gjöri félags­ins fyrir síð­asta ár.

Gylfi Sigurðsson er stærsta íslenska stjarnan í enska boltanum, sem Síminn keypti sýningarréttinn að í fyrra. Hann leikur með Everton.
Gylfi Sig­urðs­son er stærsta íslenska stjarnan í enska bolt­anum, sem Síminn keypti sýn­ing­ar­rétt­inn að í fyrra. Hann leikur með Everton. Mynd: EPA


Rekstr­ar­tekjur Símans af sjón­varps­þjón­ustu voru 75 pró­sent af auknum tekjum félags­ins á síð­asta árs­fjórð­ungi 2019, sam­an­borið við sama tíma­bil árið áður. Alls juk­ust rekstr­ar­tekj­urnar af sjón­varpi um 263 millj­ónir króna á síð­ustu þremur mán­uðum síð­asta árs og voru 1.567 millj­ónir króna.

Ástæðan er ein­föld: enski bolt­inn sem Síminn selur í gegnum nýlega vöru, Símann Sport. Síminn keypti rétt­inn af sýn­ingu hans árið 2018 og fékk yfir­ráð yfir honum við upp­haf yfir­stand­andi tíma­bils, sem hófst í ágúst 2019. Því var síð­asti árs­fjórð­ungur 2019 sá fyrsti sem félagið seldi Símann Sport í heilan slíkan.

Eini starfs­þátt­ur­inn utan sjón­varps­þjón­ustu sem skil­aði tekju­aukn­ingu hjá Símanum var upp­lýs­inga­tækni sem jókst um 133 millj­ónir króna og gagna­flutn­ingur sem jókst um 58 millj­ónir króna.

Þegar horft er á árið 2019 í heild juk­ust rekstr­ar­tekjur Símans vegna sjón­varps­þjón­ustu um 818 millj­ónir króna. Rekstr­ar­tekjur af öllum hinum starfs­þáttum félags­ins sam­an­lagt dróg­ust hins vegar saman um 287 millj­ónir króna, og er þar talið með 427 milljón króna tekju­aukn­ing í upp­lýs­inga­tækni. Því hefðu rekstr­ar­tekjur Símans, sem voru tæp­lega 29,1 millj­arðar króna og juk­ust alls um 531 milljón króna í fyrra, dreg­ist saman ef ekki hefði verið fyrir aukn­ing­una í sjón­varps­þjón­ust­unni.

Viðskiptavinum í „Heimilispakka“ fjölgaði um 4.250

Áskrift­ar­sala að Símanum Sport, sem sýnir leiki úr ensku úrvals­deild­inni, hófst í fyrra­sumar. Stök áskrift var seld á 4.500 krón­ur en á sama tíma var hins vegar greint frá því að allir áskrif­endur að Sjón­varpi Sím­ans Premium, sem voru þá þegar 35 til 40 þús­und, myndu fá aðgang að enska bolt­an­um. Um leið var mán­að­ar­verðið fyrir þá þjón­ustu hækkað úr fimm þús­und krónum í sex þús­und krón­ur. Á árs­grund­velli þýðir það að tekjur Símans vegna þeirra breyt­inga juk­ust um 420 til 480 millj­ónir króna áður en að búið var að selja eina ein­ustu áskrift.

[adspot]Í ljósi þess að nær ómögu­legt er að vera með Sjónvarp Símans án þess að kaupa inter­net­þjón­ustu að Símanum þá er stærsti við­skipta­vina­hópur fyr­ir­tæk­is­ins með svo­kall­aðan „Heim­il­i­s­pakka“, sem inni­heldur inter­net, heima­síma, IPTV aðgang (mynd­lykil), Premium-pakk­ann og nokkrar erlendrar stöðvar.

Á milli þess tíma sem Síminn keypti rétt­inn að enska bolt­anum og þess tíma sem áskrift að honum var bætt inn í Premium áskrift­ar­leið­ina var verð­mið­inn á Heim­il­i­s­pakk­anum hækk­aður tví­vegis, um sam­tals eitt þús­und krónur, ann­ars vegar í byrjun mars 2019 og hins vegar í byrjun ágúst 2019. Lang­flestir Premium áskrif­endur eru með þá áskrift í gegnum Heim­il­i­s­pakk­ann.

Við­skipta­vinum Símans í þeim fjölg­aði um 4.250 í fyrra. Um helm­ingur þeirrar fjölg­unar kom á fjórða árs­fjórð­ungi, þegar áhrifin af til­urð Símans Sport voru að fullu að koma fram. Þeim sem keyptu inter­net af félag­inu fjölg­aði einnig um 1.700 á síð­asta ári.

Ný arðgreiðslustefna þýðir hraðari útgreiðsla á eigin fé

Hagnaður af rekstri Símans í fyrra var tæp­lega 3,1 millj­arður króna, en hafði verið 282 millj­ónir króna árið 2018. Eignir félags­ins námu 65,5 millj­örðum króna í árs­lok og eigið fé þess var 36,6 millj­arðar króna á sama tíma. Því var eig­in­fjár­hlut­fallið 55,9 pró­sent.

Í fyrra greiddi Síminn 330 millj­ónir króna í arð til hlut­hafa sinna í takti við arð­greiðslu­stefnu sem fól í sér að fram­kvæmd yrði annað hvort arð­greiðslur eða end­ur­kaup á bréfum sem nemi 20 til 50 pró­sent af hagn­aði félags­ins eftir skatt.

[links]Nú hefur hins vegar verið sam­þykkt ný arð­greiðslu­stefna innan Símans en umtals­verðar breyt­ingar urðu í hlut­hafa­hópi félags­ins í fyrra. Fjár­fest­inga­fé­lagið Stoðir, sem er líka á meðal stærstu eig­enda Arion banka og trygg­inga­fé­lags­ins TM, hóf stór­tæk upp­kaup á bréfum í Símanum á árinu 2019 og er nú stærsti hlut­haf­inn með 14,05 pró­sent eign­ar­hlut. Jón Sig­urðs­son, starf­andi stjórn­ar­for­maður Stoða, tók sömu­leiðis við sæti stjórn­ar­for­manns Símans á síð­asta ári.

Samkvæmt nýrri arð­greiðslu­stefnu sem sett hefur verið af stjórn Símans stefnir félagið nú að því að greiða hlut­höfum árlega arð eða fram­kvæma end­ur­kaup sem nemur að lág­marki 50 pró­sent af hagn­aði eftir skatta. Á kom­andi aðal­fundi, sem verður hald­inn 12. mars næst­kom­andi, verður því óskað eftir heim­ild til að greiða út 500 millj­ónir króna í arð, að lækka hlutafé félags­ins um 500 millj­ónir króna að nafn­virði og að kaupa allt að tíu pró­sent af hlutafé Símans á næstu 18 mán­uðum.

Mark­aðsvirði Símans er sem stendur rétt yfir 50 millj­arðar króna og því felur nýja stefnan í sér að kaupa hluta­bréf af eig­endum fyrir um fimm millj­arða króna á einu og hálfu ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár