„Langþráður draumur“ um gagnkvæmt reiki milli fjarskiptafyrirtækja í augsýn

Áhersla verður lögð á að stoppa upp í þau göt þar sem ekki er net­sam­band og setja upp 10 mega­bæta inter­net á öllum þjóð­vegum lands­ins. 24 af 31 tíðni­heim­ildum falla úr gildi á næsta ári og verða end­ur­nýj­aðar til 20 ára. Fyrir þær fást 750 millj­ónir.

Fjarskiptastofa leggur áherslu á að koma upp 10 megabæta farneti á þjóðvegum landsins.
Fjar­skipta­stofa leggur áherslu á að koma upp 10 mega­bæta far­neti á þjóð­vegum lands­ins. Mynd: EPA

Fjar­skipta­stofa fær heim­ild til að mæla fyrir um sam­starf og samnýt­ingu í skil­málum tíðni­heim­ilda, nái frum­varp til laga um fjar­skipti sem nú liggur fyrir Alþingi fram að ganga. Sú heim­ild, sam­hliða upp­bygg­ing­ar­skuld­bind­ingum fjar­skipta­fyr­ir­tækja myndi hafa það í för með sér að gagn­kvæmt reiki milli fjar­skipta­fyr­ir­tækja á þjóð­vegum lands­ins yrði að veru­leika. Það þýðir að not­endur ólíkra fjar­skipta­fyr­ir­tækja hefðu sama aðgang að far­nets­þjón­ustu, það er inter­netteng­ingu í gegnum 4G eða 5G, á þjóð­vegum lands­ins.

Í lok mars á næsta ári falla úr gildi 24 af 31 tíðni­heim­ildum sem ætl­aðar eru til að veita almenna far­nets­þjón­ustu. Tíðnir fyrir far­nets­þjón­ustur eru raf­seg­ul­bylgjur í lofti sem not­aðar eru fyrir þráð­lausar gagna­send­ingar en Fjar­skipta­stofa sér um úthlutun þeirra. Á vef stofn­un­ar­innar segir að fjar­skipta­tíðnir innan íslensks yfir­ráða­svæðis og númer úr íslenska núm­era­skipu­lag­inu séu auð­lindir undir stjórn íslenska rík­is­ins. Úthlutun fjar­skipta­tíðna felur í sér tíma­bundna heim­ild til skil­yrtra afnota sem hvorki leiðir til eign­ar­réttar né var­an­legs nýt­ingar- og ráðu­stöf­un­ar­réttar.

Til stendur að end­ur­nýta tíðnirétt­indin sem eru við það að falla úr gildi til langs tíma eða til 20 ára og við það tæki­færi ætlar Fjar­skipta­stofa að end­ur­skoða skil­mála tíðnirétt­inda og koma á ákveðnum skuld­bind­ingum um útbreiðslu og gæði þjón­ust­unnar.

750 milljónir i auðlindagjald

Sérstaka gjald­skrá er fyrir tíðnirétt­indin má finna í kynn­ingu frá Fjar­skipta­stofu og áætlað er að um 750 millj­ónir króna geti skilað sér í formi auð­linda­gjalds fyrir tíðni­heim­li­d­irnar sem til stendur að end­ur­nýja á næsta ári. Tekj­urnar renna í fjar­skipta­sjóð sem hefur það hlut­verk að stuðla að upp­bygg­ingu fjar­skipta­mála á grund­velli fjar­skipta­á­ætl­unar.

Að sögn Björns Geirs­sonar, sviðs­stjóra hjá Fjar­skipta­stofu, er gjaldið hóf­legt ef miðað er við höfða­tölu. Hann nefnir sem dæmi að á Ítalíu er verðið fyrir til­tekið tíðni­svið 36 evru­sent á hvern íbúa en hér á landi er verðið 0,6 evru­sent. Í töflu frá Fjar­skipta­stofu þar sem upp­hæð auð­linda­gjalda í nokkrum löndum er borin saman sést að verðið er nokkuð rokk­andi, í Noregi er það til dæmis 0,2 evru­sent á íbúa en í Þýska­landi er verðið 17 evru­sent á íbúa.

Spurður út í fylgni milli auð­linda­gjalds og verð­lags fjar­skipta­fyr­ir­tækja segir Björn: „Því meiri sem gjald­takan er eða auð­linda­gjöldin, því lík­legra er að það skili sér út í verð­lag til neyt­enda. Þannig að með því að halda þessu hóf­stilltu þá er það til þess fallið að halda verð­lagn­ing­unni í hófi.“

Björn segir hóf­stillta gjald­töku auð­linda­gjalds einkum skýr­ast af því að á móti skuld­binda fjar­skipta­fyr­ir­tækin sig til að ráð­ast í kostn­að­ar­sama upp­bygg­ingu. „Við gerum ráð fyrir því að gera kröfu um upp­bygg­ingu á háhraða­neti sem er þá slit­laust far­síma­sam­band á öllu þjóð­vega­kerf­inu. Það er áætlað að muni kosta 2,2 millj­arða að gera ráð fyrir 100 pró­sent slit­lausri far­nets­notkun með 30 mega­bæta hraða. Þannig að það er kostn­aður sem leggst á fjar­skipta­fyr­ir­tækin. Það er ekki bæði hægt að gera miklar kröfur um kostnað og að vera með mikla auð­linda­gjald­töku á sama tíma.“

Áhersla verður lögð á að koma upp 10 mega­bæta hraða til­tölu­lega fljótt á þjóð­vegum lands­ins að sögn Björns og kostn­aður við það er met­inn verða um 850 millj­ónir króna.

Viðskiptavinir ólíkra fjarskiptafyrirtækja sitji við sama borð

Líkt og áður segir fær Fjar­skipta­stofa heim­ild til að mæla fyrir um sam­starf og samnýt­ingu í kerf­inu nái nýtt frum­varp til laga um fjar­skipti fram að ganga. Það er algjör for­senda fyrir þessu upp­bygg­ing­ar­verk­efni að sögn Björns. „Ástæðan er sú að það eru holur í þjóð­vega­kerf­inu í dag, þú dettur úr sam­bandi víðs vegar í vega­kerf­inu. Það þekkja það allir að það vantar far­síma­sam­band á sumum stöðum. Það er til­tölu­lega dýrt að holu­fylla þetta. Það er ekk­ert eitt fyr­ir­tæki sem mun ráð­ast í það verk­efni. Þá spyr maður sig: Er skyn­sam­legt að láta hvert og eitt fyr­ir­tæki fara út í þetta verk­efni? Þá nátt­úr­lega þre­fald­ast kostn­að­ur­inn við þetta, þannig að við lítum á þetta sam­starfs- og samnýt­ing­ar­verk­efni þannig að öll fyr­ir­tækin taki þátt í þess­ari fram­kvæmd sam­eig­in­lega og kostn­að­ur­inn þá skipt­ist með jöfnum hætti á milli fyr­ir­tækj­anna.“

Fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar munu einnig gera gagn­kvæmt reiki að mögu­leika sem mun hafa það í för með sér að við­skipta­vinir ólíkra fjar­skipta­fyr­ir­tækja munu hafa sama aðgengi að inter­neti á vegum úti, ólíkt því sem nú er. „Það getur gerst að það séu tveir í bíl og annar hjá Símanum og hinn hjá Vodafone eða Nova og svo dettur sá út hjá Vodafone eða Nova en sá hjá Símanum helst inni – eða öfugt. Það er verið að reyna að ráða bót á þessu,“ segir Björn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjarskiptamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár