Óttast kínversku augun og eyrun

Fyrir örfáum árum var nafnið Huawei nán­ast óþekkt á Vest­ur­löndum en nú er fyr­ir­tækið orðið risi í fjar­skipta­tækni. Því hefur þó verið meinað um að reisa fjar­skipta­net í ýmsum löndum af ótta við njósnir.

Huawei
Huawei Mynd: EPA

Fyrir örfáum árum var nafnið Huawei nán­ast óþekkt á Vest­ur­löndum. Nú þekkja flestir sím­ana með þessu nafni en Huawei er líka risa­fyr­ir­tæki í fjar­skipta­heim­inum. Nokkur lönd hafa lagt bann við að Huawei fái að byggja þar upp fjar­skipta­net, af ótta við hugs­an­legar njósnir. Danskt fyr­ir­tæki rifti fyrir nokkrum dögum stórum samn­ingi við kín­verska fjar­skipt­ar­is­ann.

Á níunda ára­tug síð­ustu aldar átt­uðu kín­versk stjórn­völd sig á því að grípa þyrfti til sér­stakra aðgerða ættu Kín­verjar að taka þátt í þeirri öru þróun sem þá var að eiga sér stað á fjar­skipta­mark­aðnum. Stjórn­völd í Beijing horfðu í þessum efnum einkum til sam­vinnu við erlend fyr­ir­tæki, sem mörg hver voru treg til að deila þekk­ingu sinni með Kín­verjum. Árið 1987 stofn­aði maður að nafni Ren Zhengfei fyr­ir­tækið Huawei. Nafnið hefur tvö­falda merk­ingu, getur þýtt „sterkur leikur“ og „Kína getur“. Ætlun stofn­and­ans var að til yrði kín­verskt sam­skipta­fyr­ir­tæki sem stæði erlendum fyr­ir­tækjum fylli­lega á sporði. Hann hefur þó lík­lega ekki grunað að í dag, 32 árum síðar yrði Huawei eitt stærsta fyr­ir­tæki í heim­inum á sínu sviði. Starfs­menn eru nú um 170 þús­und og starf­semin í að minnst kosti 175 löndum. Burðarás fyr­ir­tæk­is­ins er fjar­skipta­net, þjón­usta við fyr­ir­tæki og síma­fram­leiðsla. Á tímum örra breyt­inga í net-og sam­skipta­heimum hefur Huawei tek­ist að halda velli, og reyndar gott betur, og er nú meðal þeirra fremstu í þróun nýj­unga á því sem nefnt hefur verið næsta kyn­slóð í þess­ari tækni, 5G.

Ótti við njósnir

Eins og áður var nefnt teygir starf­semi Huawei sig víða um heim. Breskur hug­bún­að­ar­sér­fræð­ingur sagði í við­tali við BBC, að það væri eig­in­lega sama hvert litið væri, Huawei væri alls staðar.

Samkvæmt kín­verskum lögum ber öllum fyr­ir­tækjum þar í landi skylda til að starfa með yfir­völdum ef þörf krefur, varð­andi öryggi lands­ins eins og það er orðað. Þetta laga­á­kvæði hefur víða vakið ákveðnar grun­semdir og spurn­ingar vaknað. ,,Er hægt að treysta því að kín­versk stjórn­völd seilist ekki í upp­lýs­ingar og krefj­ist þess jafn­vel að Huawei fyr­ir­tækið veiti þeim upp­lýs­ingar? Stundi bein­línis njósnir.“ Rétt er að nefna að ekk­ert gefur til­efni til slíkra vanga­veltna, annað en þetta laga­á­kvæði. Liang Hua, stjórn­ar­for­maður Huawei, hefur margoft í við­tölum full­yrt að fyr­ir­tækið sé algjör­lega sjálf­stætt og öllum áhyggju­fullum við­skipta­vinum sé vel­komið að heim­sækja þar allar deildir Huawei og skoða rann­sókn­ar­stofur og þró­un­ar­deildir. „Við höfum engu að leyna, okkar ein­asta kapps­mál er að gera vel, helst betur en allir aðrir.“

Banna Huawei

Full­yrð­ingar stjórn­ar­for­manns Huawei og sú stað­reynd að ekk­ert hefur komið fram sem bendir til að fyr­ir­tækið gangi erinda kín­verskra stjórn­valda hafa ekki dugað til að kveða niður ótt­ann við „njósn­a­draug­inn“. Ástralía, Nýja-Sjáland, Kanada, Banda­ríkin og Japan hafa lagt bann við að Huawei komi nálægt upp­bygg­ingu og notkun hins nýja háhraða­nets 5G. Fleiri lönd íhuga nú slíkt bann, að minnsta kosti að hluta, þar á meðal Þýska­land, Pólland og Frakk­land. Breska dreif­ing­ar­fyr­ir­tækið British Telecom hefur úti­lokað Huawei frá hluta af sínu dreifi­kerfi. Ástæðan er alls staðar sú sama, ótt­inn við að kín­versk stjórn­völd fái aðgang að mik­il­vægum gögnum og upp­lýs­ingum.

Fjármálastjórinn handtekinn í Kanada

Í byrjun des­em­ber í fyrra (2018) var Wanzhou Meng, fjár­mála­stjóri Huawei hand­tekin á flug­velli í Kanada. Handtaka var gerð að kröfu banda­rískra stjórn­valda sem grun­uðu Wanzhou Meng (sem er dóttir stofn­anda Huawei) um að hafa tekið þátt í að brjóta við­skipta­bann Banda­ríkj­anna gegn Íran. Hún var síðar látin laus gegn hárri trygg­ingu og gert að dvelja í Kanada, og bera ökkla­band, en banda­rísk stjórn­völd hafa frest til 30. Janúar nk. til að leggja fram fram­sals­beiðni. Hand­takan hefur valdið mik­illi reiði stjórn­valda í Kína, en sam­skipti þeirra og Banda­ríkja­stjórnar eru mjög stirð um þessar mundir. Banda­ríska blaðið Wall Street Journal greindi frá því fyrir nokkrum dögum að banda­ríska dóms­mála­ráðu­neytið sé nú með til rann­sóknar ásak­anir um að Huawei hafi stolið hug­verkum og tækni­bún­aði frá fyr­ir­tækjum sem unnið hafi með Kín­verj­unum. Fyrr í þessum mán­uði hand­tók pólska lög­reglan tvo menn, Kínverja og Pólverja, þeir eru grun­aðir um njósnir.

Huawei í Danmörku

Árið 2014 gerði danska fjar­skipta­fyr­ir­tækið TDC, sem er hið stærsta sinnar teg­undar í Danmörku sex ára samn­ing við Huawei um rekstur og þróun 4G, svo­nefndrar fjórðu kyn­slóðar far­síma. Tveimur árum síðar skrif­aði TDC undir samn­ing við Huawei um kap­al­búnað. Nú eru TDC og Huawei í sam­ein­ingu að prófa 5G, fimmtu kyn­slóð far­síma­kerf­is­ins. Margir danskir sér­fræð­ingar undr­ast að TDC skuli, án þess að depla auga (eins og einn sér­fræð­ing­anna komst að orði) semja við kín­verska fyr­ir­tækið. Fjölmörg önnur dönsk fyr­ir­tæki, og stofn­anir, nota búnað frá Huawei. Dag­blaðið Politi­ken greindi á sínum tíma frá því að árið 2011 hefði Leyni­þjón­usta hers­ins varað við sam­starfi við Huawei, vegna hættu á njósnum. Leyni­þjón­ustan skipti síðar um skoðun og sagði ekk­ert athuga­vert við samn­inga TDC og Huawei, að upp­fylltum ákveðnum skil­yrðum.

Banedanmark rifti milljarðasamningi

Í nóv­em­ber á síð­asta ári skrif­aði Baned­an­mark (sem sér um tækni­legan rekstur danska járn­brauta­kerf­is­ins) undir sex ára samn­ing við Huawei og NetNordic, sam­starfs­fyr­ir­tæki Huawei í Danmörku. Þeim samn­ingi var skyndi­lega rift fyrir nokkrum dögum. Skýr­ingin sögð sú að í samn­ingum hefði ekki verið kveðið nægi­lega skýrt á um net­ör­yggi. Danskir fjöl­miðlar full­yrða að þrýst­ingur frá stjórn­mála­mönnum væri hin raun­veru­lega ástæða. Þeir væru loks­ins vakn­aðir af værum blundi (orða­lag Berl­ingske) og gerðu sér nú grein fyrir að ekki væri æski­legt að jafn mik­il­væg starf­semi og tækni­legur rekstur danska lesta­kerf­is­ins væri í höndum fyr­ir­tækis, sem rík­is­stjórn Kína gæti sagt fyrir verkum.

Í síð­ustu viku sagði Claus Hjort Frederik­sen varn­ar­mála­ráð­herra Dan­merkur á fundi varn­ar­mála­nefndar danska þings­ins, Fol­ket­inget, að dönsk stjórn­völd tækju umræð­una um Huawei og umsvif fyr­ir­tæk­is­ins í Danmörku mjög alvar­lega. Hann sagði jafn­framt að núver­andi lög­gjöf heim­ili ekki að banna starf­semi til­tek­inna sam­starfs­að­ila danskra fyr­ir­tækja. „Það er ástæða til að hafa áhyggjur af því þegar stór­fyr­ir­tæki, eins og Huawei, eru nátengd stjórn­völdum, slík tengsl eru ekki æski­leg og hljóta að vekja tor­tryggni.“ Ráð­herr­ann tók fram að með orðum þessum orðum væri hann ekki að gefa neitt sér­stakt í skyn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjarskiptamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár