Gera ekki athugasemd við sameiningu Nova og Símafélagsins

Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur ekki ástæðu til að aðhaf­ast vegna kaupa Nova hf. á Síma­fé­lag­inu ehf. þar sem áherslur í starf­semi félag­anna á fjar­skipta­mark­aði séu ólíkar.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið telur ekki ástæðu til að aðhaf­ast vegna kaupa Nova hf. á Síma­fé­lag­inu ehf. Þetta kemur fram í ákvörðun eft­ir­lits­ins.

Í nið­ur­stöðu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins kemur fram að starf­semi Nova feli aðal­lega í sér að veita far­síma­þjón­ustu en meg­in­starf­semi Síma­fé­lags­ins sé rekstur fasta­nets í tengslum við tal­síma- og inter­net­þjón­ustu. Því séu áherslur í starf­semi sam­runa­að­il­anna með nokkuð ólíkum hætti á fjar­skipta­mark­aði.

Markmið með sam­run­anum sé að sam­eina tvö fjar­skipta­fé­lög í eitt sem verði betur í stakk búið en áður til þess að láta að sér kveða í þjón­ustu við fyr­ir­tæki, ein­stak­linga og heim­ili. Þá fái hið sam­ein­aða félag aukin tæki­færi til að ná árangri við að veita alhliða fjar­skipta­þjón­ustu, þ.e. far­síma-, inter­net- og eftir atvikum tal­síma­þjón­ustu.

„Sam­keppn­is­eft­ir­litið getur ekki séð út frá gögnum máls­ins að við­kom­andi sam­runi leiði til þess að mark­aðs­ráð­andi staða verði til eða styrk­ist eða að sam­run­inn leiði til þess að sam­keppni rask­ist að öðru leyti með umtals­verðum hætti.“

Á þessum grund­velli telur eft­ir­litið ekki ástæðu til að aðhaf­ast frekar í tenglsum við þennan sam­runa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjarskiptamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár