Samskiptaforrit lokar samskiptarás mótmælenda í Íran

Telegram hefur lokað sam­skiptarás mót­mæl­enda sem fyr­ir­tækið segir hvetja til ofbeldis. Írönsk stjórn­völd hóta fyr­ir­tæk­inu að úthýsa for­rit­inu í eitt skipti fyrir öll úr land­inu ef það hlýði ekki kröfum þeirra.

Telegram er smáforrit þar sem notendur nýta í samskipti sín á milli.
Telegram er smá­forrit þar sem not­endur nýta í sam­skipti sín á milli. Mynd: EPA

Telegram lok­aði tíma­bundið spjall­rás sem kall­aði eftir ofbeld­is­fullum mót­mælum gegn rík­is­stjórn Írans síð­ast­lið­inn sunnu­dag.

Telegram fram­leiðir vin­sælt skila­boða­smá­forrit og er það notað víða í Íran. Rúmlega 40 millj­ónir manns nota for­ritið í land­inu en það er um helm­ingur íbú­anna. Samkvæmt heim­ildum frétta­mið­ils­ins Recode hefur það haft mikil áhrif á sam­skipti í mót­mæl­unum í Íran gegn rík­is­stjórn Aya­tollah Khamenei.

Umfangs­mikil mót­mæli hafa verið í land­inu und­an­farna daga og viku. Tugir hafa verið drepnir og hund­ruðir fang­els­aðir. Ali Khamenei æðstiklerkur Írans hefur sagt óvini rík­is­ins að baki mót­mæl­anna en upp­haf­lega beindust mót­mælin gegn versn­andi efna­hag og hækk­andi mat­væla­verði en hafa þau nú beinst gegn stjórn­völdum sjálfum. 

Fram­kvæmda­stjórar fyr­ir­tæk­is­ins hafa fengið athuga­semdir frá írönskum stjórn­völdum þess efnis að þeir verði að fylgj­ast með not­endum smá­forrits­ins og sér­stak­lega mót­mæl­endum.

Mohammad-Javad Azari Jahromi, fjar­skipta­ráð­herra Írans, sendi skila­boð til fram­kvæmda­stjóra og stofn­anda fyr­ir­tæk­is­ins, Pavel Durov, á Twitter á laug­ar­dag­inn síð­ast­lið­inn, þar sem hann hvatti Telegram til að taka í taumana.

Durov svar­aði um hæl og sagði að ákall um ofbeldi væri ekki liðið hjá Telegram og ef þetta yrði stað­fest þá væri ekki um annað að ræða en að loka sam­skiptarásinni. Ekki skipti máli stærð hennar eða póli­tísk tengsl.

Aðrir sam­fé­lags­miðlar á borð við Facebook og Twitter hafa sömu­leiðis þurft að skil­greina hvaða orð­ræða sé í lagi á miðlum þeirra og hvað falli undir brot á reglum þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjarskiptamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár