Síminn er að skoða að fjármagna Mílu sérstaklega

Síminn er með það skoð­unar að fjár­magna dótt­ur­fé­lag sitt Mílu sér­stak­lega, í stað þess að fjár­magna sam­stæðu fyr­ir­tæk­is­ins sem eina ein­ingu. Afkoma Símans á fyrri helm­ingi árs lit­ast mjög af stjórn­valds­sekt frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu vegna enska bolt­ans.

Orri Hauksson er forstjóri Símans.
Orri Hauksson er for­stjóri Símans. Mynd: Nasdaq Iceland

Síminn er með það skoð­unar að fjár­magna dótt­ur­fé­lag sitt Mílu sér­stak­lega, í stað þess að fjár­magna sam­stæðu fyr­ir­tæk­is­ins sem eina ein­ingu. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu með árs­hluta­upp­gjöri Símans, sem birt var í gær.

Í til­kynn­ing­unni er haft eftir Orra Hauks­syni, for­stjóra Símans, að rekstur Mílu sé „stöð­ugur og traustur sem endranær“ og að Míla muni taka við fleiri verk­efnum frá Símanum á næstu mán­uðum svo sem rekstri far­síma­dreifi­kerfis og IP-nets og verða þannig stærra hlut­fall sam­stæð­unnar.

Míla á og rekur grunn­kerfi fjar­skipta á Íslandi, þ.e. kop­ar­kerfi , ljós­leið­ara- og örbylgju­kerfi sem nær til heim­ila, fyr­ir­tækja og stofn­ana um land allt. Samkvæmt fjár­festa­kynn­ingu Símans er áætlað að á bil­inu 90-92 þús­und heim­ili á land­inu verði ljóðs­leið­ara­tengd í árs­lok.

Tekjur vaxa en stór sekt litar afkomuna

Tekjur Símans juk­ust um 3,2 pró­sent á fyrri hluta árs 2020 miðað við sama tíma­bil í fyrra, vegna mik­ils tekju­vaxtar í sjón­varps­þjón­ustu og upp­lýs­inga­tækni. Tekjur Símans af bæði far­síma- og tal­síma­þjón­ustu dróg­ust þó saman á milli ára.

Reiki­tekjur frá erlendum ferða­mönnum minnkað þar sem fáir ferða­menn hafa komið. Þær lækka um 130 millj­ónir króna á milli ára og skýra sam­drátt­inn í far­síma­tekjum, sem ann­ars eru í hægum vexti.

Afkoma fyr­ir­tæk­is­ins var þó mun lak­ari en á fyrri hluta síð­asta árs og lit­ast mjög af 500 milljón króna stjórn­valds­sekt frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu, sem reikn­ast inn í upp­gjörið.[links]

Eins og áður hefur komið fram telur Síminn að ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, vegna meintra brota á sáttum félags­ins við eft­ir­litið hvað varðar útsend­ingar á enska bolt­anum, sé röng. Búist er við að áfrýj­un­ar­nefnd sam­keppn­is­mála úrskurði í mál­inu innan skamms.

Fram kemur í fjár­festa­kynn­ingu Símans að áhrif COVID-19 á rekst­ur­inn hafi verið minni en búist var við. Síminn hefur ekki nýtt sér nein úrræði stjórn­valda vegna heims­far­ald­urs­ins og starf­semin er sögð hafa gengið hnökra­laust fyrir sig á meðan að starfs­menn unnu heima.

Aug­lýs­inga­tekjur fyr­ir­tæk­is­ins hækk­uðu á milli ára á síð­asta árs­fjórð­ungi og eru sagðar í takt við áætlun félags­ins, sem greip til hag­ræð­ing­ar­að­gerða snemma í far­aldr­inum til að vega á móti tekju­missi. Síminn býst við því að aukið atvinnu­leysi í haust muni hafa áhrif á spurn eftir vörum fyr­ir­tæk­is­ins.

Hluthafar fengu 500 milljóna arðgreiðslur í apríl

Síminn greiddi hlut­höfum sínum út 500 milljón króna arð í apr­íl­mán­uði, en arð­greiðslan var sam­þykkt á hlut­hafa­fundi Símans í mars.

Hagnaður Símans á síð­asta ári nam 3.070 millj­ónum króna og hefur félagið þá stefnu að greiða að lág­marki 50 pró­sent af hagn­aði eftir skatt í arð eða end­ur­kaup hluta­bréfa. End­ur­kaup hluta­bréfa hófust í maí og hafa þegar verið keypt bréf fyrir 900 millj­ónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjarskiptamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár