Fjögurra prósenta sektarheimild Fjarskiptastofu verði felld á brott og frestað

Þing­nefnd leggur til að ný sekt­ar­heim­ild Fjar­skipta­stofu, sem stærstu fjar­skipta­fyr­ir­tæki lands­ins og hags­muna­sam­tök hafa gagn­rýnt harð­lega, verði felld á brott úr frum­varpi sem liggur fyrir þing­inu og ákvörðun um hana frestað þar til síðar.

Vilhjálmur Árnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins (t.h.) er formaður umhverfis- og samgöngunefndar.
Vil­hjálmur Árnason þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins (t.h.) er for­maður umhverfis- og sam­göngu­nefndar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Meiri­hluti umhverfis- og sam­göngu­nefndar Alþingis leggur til að því verði frestað að setja inn í lög ákvæði þess efnis að Fjar­skipta­stofa fái heim­ild til að leggja stjórn­valds­sekt á fyr­ir­tæki sem nemi allt að 4 pró­sentum af heild­ar­veltu þeirra, ef stofn­unin telur þau ekki hafa afhent „rétt­ar, full­nægj­andi og upp­færðar upp­lýs­ing­ar“ um m.a. eig­end­ur, stjórn­ar­menn, fram­kvæmda­stjóra og eft­ir­lits- og stjórn­kerfi innan fjar­skipta­fyr­ir­tæk­is.

Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nefnd­ar­á­liti meiri­hlut­ans um stjórn­ar­frum­varp um breyt­ingu á lögum um fjar­skipti, lögum um Fjar­skipta­stofu og lögum um fjár­fest­ingu erlendra aðila í atvinnu­rekstri. Meiri­hlut­inn leggur til að umrætt sekt­ar­á­kvæði „komi til frek­ari skoð­unar við und­ir­bún­ing fram­lagn­ingar eða þing­lega með­ferð frum­varps til heild­ar­laga um fjar­skipti,“ sem til stendur að ráð­ast í.[links]

Stærstu fjar­skipta­fyr­ir­tæki lands­ins, Síminn, Sýn og Nova, höfðu gagn­rýnt þessa nýju fyr­ir­hug­uðu sekt­ar­heim­ild nokkuð harð­lega í umsögnum sínum um málið, eins og Kjarninn sagði frá í des­em­ber. Samtök atvinnu­lífs­ins, Við­skipta­ráð og Samtök iðn­að­ar­ins lögð­ust einnig gegn sekt­ar­heim­ild­inni í sam­eig­in­legri umsögn sinni um málið og sögðu hags­muna­sam­tökin þrjú að órök­stutt væri af hverju miðað væri við allt að 4 pró­sent af heild­ar­veltu, auk þess sem orða­lag sekt­ar­á­kvæð­is­ins væri óskýrt.

Samkeppniseftirlitið jákvætt

Sekt­ar­heim­ildin í því formi sem hún var lögð til var hins vegar það sem Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu þótti einna jákvæð­ast við frum­varpið. Benti stofn­unin á það í umsögn sinni að sekt­ar­heim­ildir hefðu hingað til hámarkast af 10 milljón króna stjórn­valds­sektum í garð brot­legra fyr­ir­tækja, eftir því sem eft­ir­litið kæm­ist næst. Sam­keppn­is­eft­ir­litið var hlynnt því að sektir myndu taka mið af efna­hags­legum styrk­leika fyr­ir­tækja.

[adspot]

„Sekt­ar­heim­ildir eft­ir­lits­stjórn­valda sem hlut­fall af veltu þess fyr­ir­tækis er ger­ist brot­legt við við­kom­andi lög og reglur, eru til þess fallnar að hafa almenn og sér­tæk varn­að­ar­á­hrif á við­kom­andi mark­aði og auka þar með hlít­ingu fyr­ir­tækja vegna við­kom­andi reglna sem lög­gjaf­inn hefur ákveðið. Með sam­bæri­legum hætti eru sekt­ar­heim­ildir með til­tölu­lega lágu hámarks­þaki, eins og í til­viki Fjar­skipta­stofu, ekki til þess fallnar að hafa slík áhrif,“ sagði í umsögn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Nefndin bendir á að dagsektarheimild sé til staðar

Í nefnd­ar­á­liti meiri­hlut­ans segir að á fundum nefnd­ar­innar hafi komið fram „mikil gagn­rýni á orða­lag og efni ákvæð­is­ins“ og að bent hafi verið á að í grein­ar­gerð með frum­varp­inu væri fjár­hæð stjórn­valds­sekta „hvergi rök­studd en ljóst væri að fjár­hæð sekt­anna sem hlut­fall af heild­ar­veltu síð­asta rekstr­ar­árs gæti verið óhóf­lega há.“

Þá rekur meiri­hluti nefnd­ar­innar að fram hafi komið hjá þeim sem komu á fundi nefnd­ar­innar að stjórn­valds­sektir væru „refsi­kennd við­ur­lög“ og því yrði að „gera ríkar kröfur um skýr­leika slíkra ákvæða en ljóst væri að það hvenær upp­lýs­ingar væru full­nægj­andi eða réttar væri háð mati hverju sinni.“

Nefndin segir að einnig hafi verið bent á það af fund­ar­gestum að stjórn­valds­sektir væru ekki hefð­bundin eft­ir­litsúr­ræði og eðli­legra væri að „leggja á dag­sektir til að knýja á um þær upp­lýs­ingar sem óskað er eftir fremur en stjórn­valds­sektir“. Nefndin bendir síðan á að heim­ild til álagn­ingar dag­sekta sé þegar til staðar í lögum um Fjar­skipta­stofu, sem sam­þykkt voru á þingi í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjarskiptamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár