Kaup Ardian á Mílu í uppnámi

Franski fjár­fest­inga­sjóð­ur­inn Ardian, sem hugð­ist kaupa allt hlutafé í Mílu af Símanum, hefur upp­lýst Símann um að þær breyt­ingar sem til þurfi til að fá sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins fyrir kaup­unum séu of íþyngj­andi.

Í október síðastliðnum undirrituðu Ardian France SA og Síminn hf. kaupsamning kaup og sölu alls hlutafjár Mílu ehf.
Í októ­ber síð­ast­liðnum und­ir­rit­uðu Ardian France SA og Síminn hf. kaup­samn­ing kaup og sölu alls hluta­fjár Mílu ehf. Mynd: Míla

Í októ­ber síð­ast­liðnum und­ir­rit­uðu Ardian France SA og Síminn hf. kaup­samn­ing kaup og sölu alls hluta­fjár Mílu ehf., með áætl­uðum sölu­hagn­aði upp á 46 millj­arða króna fyrir Símann, með hefð­bundnum fyr­ir­vara um sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Í síð­asta mán­uði upp­lýsti Síminn svo að Ardian hefði óskað eftir sátta­við­ræðum við Sam­keppn­is­eft­ir­litið og skilað inn til­lögum að skil­yrðum til þess að mæta sam­keppn­is­legum áhyggjum þess.

[adspot][links]Nú hefur Ardian hins vegar til­kynnt Símanum að það væri mat fjár­fest­inga­sjóðs­ins að til­lög­urnar sem hann hefði lagt til væru of íþyngj­andi og þess eðlis að þær fælu í sér nei­kvæð áhrif í skiln­ingi kaup­samn­ings­ins. Það væri mat Ardian að ef sam­run­inn verði sam­þykktur af hálfu sam­keppn­is­yf­ir­valda með fyr­ir­liggj­andi skil­yrðum fæli það í sér að eitt af skil­yrðum þess að við­skiptin gangi í gegn sam­kvæmt kaup­samn­ingnum telj­ist ekki upp­fyllt. Ardian hafi því upp­lýst að félagið væri ekki reiðu­búið til þess að ljúka við­skipt­unum á grund­velli óbreytts kaup­samn­ings.

Að því er fram kemur í til­kynn­ingu Símans hf. mun fyr­ir­tækið ræða við Ardian um atriði sem varða kaup­samn­ing aðil­anna sam­hliða við­ræðum Ardian við Sam­keppn­is­eft­ir­litið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjarskiptamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár