Stærstu fjarskiptafyrirtækin afar óhress með nýtt frumvarp um fjarskiptainnviði

Stærstu einka­reknu fjar­skipta­fyr­ir­tæki lands­ins hafa sett fram nokkuð hvassa gagn­rýni á stjórn­ar­frum­varp sem snertir m.a. á erlendri fjár­fest­ingu í fjar­skipta­innviðum. Síminn segir að ráð­herra fái alltof víð­tækar heim­ildir ef frum­varpið verði að lögum.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra mælti fyrir frumvarpinu á þingi 13. desember og virðist ætlan stjórnvalda að láta það verða að lögum sem allra fyrst.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir vís­inda-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra mælti fyrir frum­varp­inu á þingi 13. des­em­ber og virð­ist ætlan stjórn­valda að láta það verða að lögum sem allra fyrst. Mynd: Bára Huld Beck

Stærstu einka­reknu fjar­skipta­fyr­ir­tæki lands­ins sam­ein­ast í nokkuð hvassri gagn­rýni á nýtt stjórn­ar­frum­varp, sem myndi leiða til breyt­inga á fjar­skipta­lögum, lögum um Fjar­skipta­stofu og lögum um fjár­fest­ingu erlendra aðila í atvinnu­rekstri. Þetta má lesa í umsögnum þeirra um málið, sem sendar voru til Alþingis fyrir helgi.

Frum­varpið, sem Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttur við­skipta-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra leggur fram, er sagt lagt til vegna end­ur­mats stjórn­valda á áætl­unum og við­bún­aði í kjöl­far orð­inna og mögu­legra breyt­inga á eign­ar­haldi fjar­skipta­inn­viða, eins og sölu Símans á Mílu til franska fjár­fest­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Ardian.

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu segir að það sé „frum­skylda rík­is­valds­ins“ að gera við­eig­andi ráð­staf­anir til að tryggja öryggi og áreið­an­leika fjar­skipta á land­inu með til­liti til þjóðar­ör­yggis og almanna­hags­muna. Með frum­varp­inu er lagt til að „ítar­legri kröfur verði gerðar til fjar­skipta­fyr­ir­tækja um áhættu­stýr­ingu og við­búnað, ekki síst að því er útvistun rekstr­ar­þátta út fyrir íslenska lög­sögu varðar“.

Sekt sem geti orðið 4 prósent af veltu

Á meðal þess sem finna má í frum­varp­inu er heim­ild fyrir Fjar­skipta­stofu til þess að leggja á stjórn­valds­sektir, sem geta numið allt að 4 pró­sentum af heild­ar­veltu fjar­skipta­fyr­ir­tækis, ef Fjar­skipta­stofa telur að fjar­skipta­fyr­ir­tæki hafi ekki afhent „réttar, full­nægj­andi og upp­færðar upp­lýs­ingar“ um m.a. eig­endur, stjórn­ar­menn, fram­kvæmda­stjóra og eft­ir­lits- og stjórn­kerfi innan fjar­skipta­fyr­ir­tækis.[links]

Í umsögn Símans segir að þetta ákvæði og til­gangur þess sé „með öllu óskilj­an­legur“ og að það feli í sér að Fjar­skipta­stofu sé veitt ótak­markað vald til að kalla eftir „per­sónu­legum upp­lýs­ingum um ein­stak­linga sem hafa enga þýð­ingu“, jafn­vel upp­lýs­ingum sem fyr­ir­tæki „eigi engan rétt til þess að fá“ frá eigin starfs­mönnum. Sýn seg­ist gera við þetta „veru­legar athuga­semdir“ og Nova mót­mælir þessum fyr­ir­ætl­unum og kallar ákvæðið „mats­kennt“.

Ráðherra geti stöðvað eða afturkallað erlenda fjárfestingu

Í frum­varp­inu má einnig finna ákvæði um að ráð­herra geti bundið erlenda fjár­fest­ingu skil­yrðum „í því skyni að koma í veg fyrir að hún geti ógnað öryggi lands­ins“ eða gengið gegn alls­herj­ar­reglu og almanna­ör­yggi. Ef brotið sé gegn þessum skil­yrðum sem ráð­herra setji, verði ráð­herra svo „heim­ilt að taka ákvörðun um að hlut­að­eig­andi erlendi fjár­fest­ing skuli ganga til baka að við­lögðum dag­sektum, eftir að hafa skorað á hlut­að­eig­andi að bæta úr broti.“

Dag­sekt­unum skal sam­kvæmt frum­varp­inu fylgja lög­veð í rétt­indum erlenda fjár­fest­is­ins í því fyr­ir­tæki sem fjár­fest­ingin varða og ráð­herra gæti enn fremur, sam­kvæmt frum­varp­inu, lýst atkvæð­is­rétt fjár­festis í við­kom­andi fyr­ir­tæki óvirkan – auk þess sem ráð­herra gæti „kraf­ist inn­lausnar á eignum og rétt­indum fjár­festis í við­kom­andi atvinnu­fyr­ir­tæki“.

[adspot]

Í frum­varp­inu segir að lög­unum sé ætla að gilda aftur í tím­ann, um „erlendar fjár­fest­ingar sem áttu sér stað fyrir gild­is­töku þeirra ef frestur ráð­herra til að stöðva þær“ á grund­velli ákvæða laga um fjár­fest­ingu erlendra aðila í atvinnu­rekstri hafi ekki verið útrunn­inn við birt­ingu lag­anna í Stjórn­ar­tíð­indum. Í lög­unum sem vísað er til talað um að ráð­herra skuli kunn­gjöra ákvörðun sína um stöðvun fjár­fest­ingar „innan átta vikna frá því að honum berst vit­neskja um hlut­að­eig­andi fjár­fest­ingu“.

Bæði Sýn og Nova hafa lokið sölu á óvirkum fjar­skipta­innviðum til erlendra aðila að und­an­förnu og segja í umsögnum sínum um málið að tíma­frestir hins opin­bera til að grípa til íhlut­unar séu liðnir. Sýn telur þó þörf á að árétta það í umsögn sinni að þessi grein lag­anna muni ekki ná til sölu óvirkra fjar­skipta­inn­viða félags­ins og hið sama gerir Nova, en í umsögn félags­ins segir að salan á óvirkum fjar­skipta­innviðum félags­ins geti „ekki talist gefa til­efni til þeirra breyt­inga sem lagðar eru til í frum­varp­inu“.

„Fjarstæðukennt“ segir Síminn

Síminn, sem hefur skrifað undir sam­komu­lag um sölu á dótt­ur­fé­lagi sínu Mílu til franska sjóðs­ins Ardian fyrir 78 millj­arða íslenskra króna, segir að með þessu ákvæði í lög­unum sé verið að fela ráð­herra „mikið og opið vald“ um það hvenær hægt sé að binda erlenda fjár­fest­ingu skil­yrðum. „Ráðherra getur lagt til hvaða skil­yrði sem er,“ segir í umsögn Símans.

Þar segir enn fremur að með sam­þykkt frum­varps­ins myndi ráð­herra fá „óheft vald“ hvað þetta varðar og „fullt vald til að svipta við­kom­andi aðila eign­ar­rétt­indi út í hið óend­an­lega og raun­ver­lega án til­lits til þess hvort meint brot gegn óskil­greindum skil­yrðum hafi ein­hverja þýð­ingu“. Auk þess komi engar bætur fyrir það ef atkvæða­réttur hlut­hafa yrði lýstur óvirkur, sem þó sé veru­legt inn­grip í eign­ar­rétt aðila.

„Ráðherra gæti þannig lýst atkvæð­is­rétt óvirkan en ekki tekið fyr­ir­tækið yfir. Þá er vart hægt að ímynda sér meira inn­grip inn í eign­ar­rétt­inn en að svipta aðila eign sinni,“ segir í umsögn Símans, sem telur að með þessu yrði gengið gegn ákvæðum stjórn­ar­skrár.

Félagið seg­ist sömu­leiðis telja „fjar­stæðu­kennt“ að vera með heim­ild til þess að láta kaup ganga til baka, enda gæti þeirri heim­ild verið „beitt mörgum árum eftir [að] við­skiptin voru fram­kvæmd og við­kom­andi fyr­ir­tæki var selt“ við gjör­ó­líkar aðstæður.

„Þá er ekki síður ásýnd Íslands gagn­vart erlendum fjár­festum vara­söm þar sem vald­heim­ildir virð­ast sem opin tékki til þess að taka yfir fyr­ir­tæki ef þau eru ekki þókn­an­leg ríkj­andi vald­höfum. Það er ósjaldan sem ríkj­andi vald­hafar nýta sér óljósar heim­ildir, byggðar á þjóðar­ör­yggi og almanna­hags­munum , til þess að koma óþægi­legum aðilum frá,“ segir í umsögn Símans.

Síminn gagn­rýnir einnig að ekki hafi verið leitað umsagnar hjá víð­ari hópi íslenskra fyr­ir­tækja hvað þessar breyt­ingar varði, enda snerti skil­yrðin um erlenda fjár­fest­ingu öll fyr­ir­tæki lands­ins, þrátt fyrir að verið sé að ráð­ast í laga­breyt­ing­arnar vegna breyt­inga á eign­ar­haldi fjar­skipta­inn­viða.

Á hraðferð í gegnum þingið

Afar skammur tími var gef­inn til umsagnar um frum­varpið, en það var lagt fram á þingi 10. des­em­ber, tekið til fyrstu umræðu 13. des­em­ber og umsagn­ar­beiðnir sendar út til fyr­ir­tækja sem laga­breyt­ing­arnar snerta í síð­ustu viku. Í umsögn Sýnar segir að tölvu­póstur hafi borist frá nefnd­ar­sviði Alþingi með ósk um umsögn þann 15. des­em­ber og frestur hafi verið gef­inn til 17. des­em­ber.

Sýn segir því að gera þurfi þann fyr­ir­vara við umsögn fyr­ir­tæk­is­ins að ekki hafi gef­ist ráð­rúm til að fara yfir alla anga frum­varps­ins – og að félagið setji í raun spurn­inga­merki við hrað­ann á því að „keyra svo umfangs­mikið frum­varp gegnum þing­lega með­ferð.“

Í umsögn Nova segir sömu­leiðis að tím­inn sem gef­inn hafi verið fyrir félagið til að rýna í frum­varpið og setja fram athuga­semdir hafi verið „alltof skammur“.

Í umræðum um frum­varpið á þingi, sem fram fóru að kvöldi dags þann 13. des­em­ber, kom einnig fram gagn­rýni á þann skamma tíma sem Alþingi var veitt til að fara yfir málið og kall­aði Andrés Ingi Jónsson þing­maður Pírata hrað­ann á máls­með­ferð­inni „ólíð­andi fram­komu“ rík­is­stjórn­ar­innar við þingið.

Síminn segir í sinni umsögn um málið að það sé „brýnt að hætta við fyr­ir­hug­aða laga­setn­ingu“ enda sé „engin brýn þörf á henni“ og að það sé „áríð­andi að vinna þau efn­is­at­riði sem eru í frum­varp­inu af meiri yfir­vegun og með mál­efna­legum hætti“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjarskiptamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár