Tillaga að innviðafrumvarpi væntanleg í janúar

Búist er við því að til­lögur að frum­varpi um rýni í fjár­fest­ingar á mik­il­vægum innviðum vegna þjóðar­ör­yggis verði til­búnar í jan­úar á næsta ári. Sam­bæri­legar laga­breyt­ingar hafa átt sér stað í Noregi, Danmörku og Finn­landi á síð­ustu árum.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra Mynd: Bára Huld Beck

Nefnd á vegum for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins vinnur nú að til­lögum að heild­stæðri lög­gjöf um fjár­fest­ingar í þýð­inga­miklum sam­fé­lags­innviðum og tengdri starf­semi vegna þjóðar­ör­yggis. Búist er við því að nefndin skili til­lögum sínum í jan­úar á næsta ári. Þetta kemur fram í svari for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Kjarninn hefur áður fjallað um fyr­ir­hug­aða sölu íslenskra fjar­skipta­fyr­ir­tækja á innviðum, en bæði Sýn og Síminn hafa til­kynnt sölu á innviðum sínum til erlendra fjár­festa. Kaup­endur á innviðum Sýnar er banda­ríski fjár­fest­inga­sjóð­ur­inn Digital Colony, en franska sjóðs­stýr­ing­ar­fyri­tækið Ardian France SA hyggst kaupa Mílu, inn­viða­hluta Símans. Hvorug við­skiptin hafa þó enn átt sér stað, þar sem enn er beðið eftir sam­þykki frá yfir­völdum.

Morg­un­blaðið greindi frá því fyrir tveimur vikum síðan að Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra væri með lög­gjöf í und­ir­bún­ingi sem feli í sér rýni á erlendum fjár­fest­ingum í mik­il­vægum innviðum lands­ins. Þar sagði hún frum­varpið byggja á reynslu ann­arra Norð­ur­landa­þjóða.

Samkvæmt svari for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans er unnið að til­lögu að slíku frum­varpi innan sér­stakrar nefndar innan ráðu­neyt­is­ins núna. Búast megi við að þessar til­lögur verði til­búnar í jan­úar á næsta ári og að ákvörðun um fram­hald máls­ins verði tekin í kjöl­farið.

Fyrir tveimur árum síðan tók í gildi breyt­ing á norsku örygg­is­lög­unum sem heim­ilar rýni á allri fjár­fest­ingu, inn­lendri sem erlendri, á meiri en þriðj­ungs­hlut í þjóð­hags­lega mik­il­vægum innviðum. Í Danmörku tóku sömu­leiðis gildi ný lög um rýni á erlendri fjár­fest­ingu á ákveðnum sviðum í júlí, en þau taka til­lit til allra erlendra fjár­fest­inga í sér­lega við­kvæmum greinum sem skil­greind eru í lög­unum.

Í Svíþjóð eru ekki til staðar heild­ar­lög um fjár­fest­ingarýni en unnið er að til­lögum til slíkra heild­ar­laga sem liggja munu fyrir ann­að­hvort síðar á þessu ári eða því næsta. Í Finn­landi hafa um langt skeið verið í gildi reglur um rýni erlendrar fjár­fest­ingar í ákveðnum mik­il­vægum geirum, auk þess sem árið 2019 settu Finnar sér­stök lög sem fela í sér að fast­eigna­kaup aðila í ríkjum utan EES-svæð­is­ins eru háð leyfi og um leið rýni ráðu­neytis varn­ar­mála.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár