Kjósendur Viðreisnar og Sjálfstæðisflokks hafa minnstar áhyggjur af sölunni á Mílu til Ardian

Samkvæmt nýrri könnun frá Maskínu hafa rúm 42 pró­sent lands­manna fremur miklar eða miklar áhyggjur af söl­unni á fjar­skipta­fyr­ir­tæk­inu Mílu til erlendra aðila. Kjós­endur Við­reisnar og Sjálf­stæð­is­flokks hafa mun minni áhyggjur en flestir aðrir.

Rúmlega 42 pró­sent lands­manna hafa fremur eða mjög miklar áhyggjur af því að Míla hafi verið seld erlendum aðilum, sam­kvæmt nýrri skoð­ana­könnun frá Maskínu. Tæp 30 pró­sent hafa hins vegar fremur eða mjög litlar áhyggjur, jafn­vel engar, af söl­unni á fyr­ir­tæk­inu frá Símanum til franska sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Ardian.

Tuttugu og átta pró­sent svar­enda í könn­unni, sem Maskína fram­kvæmdi dag­ana 26. októ­ber til 4. nóv­em­ber, tóku síðan þá afstöðu að áhyggjur þeirra af söl­unni væru í með­al­lagi. Svipað hlut­fall karla og kvenna sagð­ist hafa áhyggjur af söl­unni, en fleiri karlar, eða rúm­lega þriðj­ungur, sögð­ust hafa litlar áhyggjur af sölu fyr­ir­tæk­is­ins.

Eldri áhyggjufyllri

Er horft er til ald­urs­dreif­ingar kemur í ljós að áhyggjur af sölu Mílu fara vax­andi með hækk­andi aldri. Rúm 59 pró­sent svar­enda yfir 60 ára aldri sögð­ust hafa miklar áhyggjur af söl­unni og tæp 55 pró­sent þeirra sem eru 50-59 ára. Rúm 45 pró­sent fólks á aldr­inum 40-49 sagð­ist sömu­leiðis hafa miklar áhyggjur, en á meðal yngstu ald­urs­hópanna eru áhyggj­urnar minni.

Einungis rúm 17 pró­sent þeirra sem eru 18-29 ára sögð­ust hafa miklar áhyggjur af söl­unni á Mílu og 35,6 pró­sent þeirra sem eru 30-39 ára gömul. Í yngstu tveimur ald­urs­hóp­unum voru fleiri sem sögð­ust litlar eða jafn­vel engar áhyggjur hafa, eða um 36 pró­sent í báðum hópum svar­enda.

[adspot]

Fólk með grunn­skóla­próf er lík­legra til þess að hafa miklar áhyggjur af söl­unni á Mílu en þeir sem eru með fram­halds­skóla­próf eða iðn­menntun og þeir sem hafa háskóla­próf, sam­kvæmt nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar.

Kjósendur Viðreisnar og Sjálfstæðisflokks ólíklegastir til að vera með áhyggjur

Kjós­endur bæði Við­reisnar og Sjálf­stæð­is­flokks skera sig mark­vert úr þegar spurt er um áhyggjur af söl­unni á Mílu, en rúm­lega helm­ingur kjós­enda Við­reisnar seg­ist hafa litlar eða engar af söl­unni og tæp­lega helm­ingur þeirra sem segj­ast lík­legir til þess að kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Kjós­endur Mið­flokks­ins og Sós­í­alista­flokks­ins skera sig úr í hina átt­ina, en tæp 72 pró­sent þeirra sem segj­ast lík­leg til að kjósa Mið­flokk­inn hafa miklar áhyggjur af söl­unni og tæp 69 pró­sent þeirra sem lýsa því yfir að þau myndu kjósa Sós­í­alista­flokk­inn. Þar á eftir koma kjós­endur Flokks fólks­ins, en rúm 59 pró­sent þeirra segj­ast hafa miklar áhyggjur af sölu Mílu.

Á milli 44-48 pró­sent kjós­enda ann­arra flokka, Sam­fylk­ingar, Vinstri grænna, Pírata og Fram­sókn­ar­flokks, segj­ast hafa miklar áhyggjur af söl­unni á Mílu til Ardian.

Alls voru svar­endur 1338 tals­ins í þess­ari net­könnun Maskínu, sem var lögð fyrir hóp fólks sem dreg­inn var með til­viljun úr Þjóðskrá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár