Sala á Mílu skilar Símanum 46 milljörðum

Síminn hefur selt Mílu til eins stærsta sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækis Evrópu. Hagnaður af söl­unni er 46 millj­arðar króna. Kaup­and­inn, Ardian France SA, hefur boðið íslenskum líf­eyr­is­sjóðum að taka þátt í kaup­unum og eign­ast allt að 20 pró­senta hlut í Mílu.

Míla hefur verið seld til franska fjárfesta. Útbreiðsla 5G og ljósleiðarauppbygging er meðal þess sem nýr eigandi leggur áherslu á.
Míla hefur verið seld til franska fjár­festa. Útbreiðsla 5G og ljós­leiðaraupp­bygg­ing er meðal þess sem nýr eig­andi leggur áherslu á. Mynd: Míla

Viðræðum Símans við franska sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækið Ardian France SA um kaup á Mílu, sem hófust þann 18. októ­ber sl., er nú lokið með und­ir­ritun samn­ings um kaup Ardian á öllu hlutafé í Mílu. Salan er háð fyr­ir­vara um sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Áætlaður sölu­hagn­aður er rúm­lega 46 millj­arðar króna að teknu til­liti til kostn­aðar vegna við­skipt­anna, að því er fram kemur í til­kynn­ingu frá Símanum. Þar segir að áætlað virði við­skipt­anna sé 78 millj­arðar króna, að með­töldum fjár­hags­legum skuld­bind­ingum Mílu sem kaup­and­inn yfir­tekur.

„Samkvæmt kaup­samn­ingi fær Síminn greitt á efnda­degi um 44 millj­arða króna í reiðufé og 15 millj­arða króna í formi skulda­bréfs sem Síminn veitir kaup­anda til þriggja ára. Ljóst er að sala Mílu mun hafa umtals­verð áhrif á efna­hags­reikn­ing Símans þar sem lausa­fjár­staða verður sterk og geta til innri og ytri vaxtar verður umtals­verð. Stjórn og fram­kvæmda­stjórn Símans munu vinna að til­lögu um ráð­stöfun sölu­and­virð­is­ins sem verður kynnt hlut­höfum gangi við­skiptin eftir,” segir í til­kynn­ing­unni.

Þá hefur Ardian hefur boðið íslenskum líf­eyr­is­sjóðum að taka þátt í kaup­unum og getur eign­ar­hlutur þeirra orðið allt að 20 pró­sent. Slíkt sam­starf getur bæði verið með beinni þátt­töku eða í gegnum inn­lenda fjár­fest­ing­ar­sjóði.

Virkum samráðsvettvangi um innviði verði komið á fót

Kjarna­starf­semi Mílu felst í að byggja upp og reka inn­viði fjar­skipta á lands­vísu. Líkt og Kjarn­inn hefur greint frá hefur þjóðar­ör­ygg­is­ráð fundað um sölu á innviðum.

Sam­kvæmt ráð­inu er nauð­­syn­­legt út frá þjóð­ar­­ör­ygg­is­­sjón­­ar­miði og alls­herj­­­ar­­reglu að greina áhættu­þættir og rýna í fjár­­­fest­ingu í mik­il­vægum innviðum sam­­fé­lags­ins, ekki síst erlendri fjár­­­fest­ingu. Þeirra á meðal eru inn­­viðir í net- og fjar­­skipta­­kerfi, en ráðið telur að hætta geti skap­­ast ef eig­endur geta haft áhrif á virkni þeirra. Í til­kynn­ingu Símans um söl­una á Mílu kemur fram að Síminn eigi í við­ræðum við stjórn­völd um að koma á fót sam­ráðs­vett­vangi um inn­viði.

„Við fögnum komu reynslu­mik­ils fjár­festis á borð við Ardian í íslenska fjar­skipta­geir­ann. Orðspor og þekk­ing Ardian á upp­bygg­ingu og lang­tíma rekstri á afburða innviðum víða um heim fyllir okkur trausti á bjartri og öruggri fram­tíð þess­ara grund­vall­ar­inn­viða á Íslandi. Þetta á sér­stak­lega við um lands­byggð­ina. Ardian hefur metn­að­ar­full áform um að hraða ljós­leið­ara­væð­ingu og 5G þjón­ustu um land allt. Við eigum í við­ræðum við stjórn­völd um að koma á fót virkum sam­ráðs­vett­vangi, þar sem hægt er að deila upp­lýs­ingum og leggja grunn að upp­byggi­legu sam­starfi um ýmsa mik­il­væga inn­viði lands­ins, stýr­ingu þeirra í íslenskri lög­sögu og þjóðar­ör­yggi þeim tengdum,“ er haft eftir Orra Hauks­syni í til­kynn­ingu frá Símanum.

Með sölunni losni um samkeppnisleg áhrif

Samkvæmt til­kynn­ingu vill Ardian hraða fjár­fest­ing­ar­verk­efnum Mílu og leggja sér­staka áhersla á að leggja ljós­leið­ara í sveit­ar­fé­lögum á lands­byggð­inni, sem muni auka sam­keppn­is­hæfni minni sveit­ar­fé­laga, og byggja „fram­úr­skar­andi 5G far­síma­kerfi á Íslandi með tækni­bún­aði frá sænska fram­leið­and­anum Ericsson.”

Salan á Mílu er í til­kynn­ingu sögð í sam­ræmi við stefnu Símans um að aðgreina mis­mun­andi við­skipta­módel sam­stæð­unnar og skapa grunn að auk­inni sam­keppni í staf­rænu umhverfi lands­ins. Síminn verði eftir söl­una öfl­ugt og sveigj­an­legt félag sem muni öðl­ast aukið athafna­frelsi en fyrr og lúta létt­ari reglu­stýr­ingu af hálfu hins opin­bera. Með söl­unni losni um sam­keppn­is­leg áhrif sem eft­ir­lits­stofn­anir hafa haft áhyggjur af vegna eign­ar­halds Símans á Mílu.

Vilja byggja upp framsæknara fjarskiptafyrirtæki

Ardian er í til­kynn­ingu sagt reynslu­mik­ill lang­tíma fjár­festir í grunn­innviðum og eitt stærsta sjóðs­stýr­inga­fyr­ir­tæki Evrópu. Félagið var stofnað árið 1996 af Dominique Senequier, er með höf­uð­stöðvar í París, Frakk­landi og skrif­stofur á átta öðrum stöðum í Vestur-Evrópu. Um 800 manns vinna hjá Ardian sem er með and­virði um 114 millj­arða banda­ríkja­dala í stýr­ingu. Meðal fjár­festa í Ardian eru rík­is­stofn­anir, líf­eyr­is­sjóðir, trygg­inga­fé­lög og stofn­ana­fjár­festar.

Inn­viða­deild Ardian, Ardian Infrastructure, hafi und­an­farið lagt aukna áherslu á fjár­fest­ingar í staf­rænum innviðum, auk orku- og sam­göngu­inn­viða, en félagið er reynslu­mikið í rekstri mik­il­vægra inn­viða í fjölda landa.

Dr. Daniel von der Schulenberg, fram­kvæmda­stjóri og yfir­maður Ardian Infrastructure fyrir Þýska­land, Benelux löndin og Norður-Evrópu seg­ist hlakka til sam­starfs við Símann.

„Við erum þakk­lát fyrir það tæki­færi að fjár­festa á Íslandi og hlökkum til að vinna náið með inn­lendum sam­starfs­að­ilum okkar. Norð­ur­löndin eru kjarna­svæði fyrir Ardian inn­viðateymið. Þar eru sterk grunn­gildi, vel menntað starfs­fólk og sterkir inn­viðir sem gerir svæðið sér­stak­lega áhuga­vert. Míla er lang­tíma­fjár­fest­ing og vett­vangur til vaxtar fyrir okkur. Við hyggj­umst fjár­festa jafnt og þétt í sterk­ari útbreiðslu fjar­skipta­inn­viða og hlökkum til að veita áfram hágæða þjón­ustu og teng­ingar. Við munum vinna náið með stjórn­un­arteymi Mílu að upp­bygg­ingu enn fram­sækn­ara fjar­skipta­fyr­ir­tækis. Við hlökkum einnig til sam­starfs við Símann sem mik­il­vægs fram­tíðar við­skipta­vinar og íslensku líf­eyr­is­sjóð­ina sem með­eig­enda okkar í Mílu,“ segir von der Schulenberg í til­kynn­ingu Símans.

Ardian með fjármunina og Míla þekkinguna

Þá greinir frá því í til­kynn­ing­unni að Seðla­banki Íslands eigi í sér­stökum til­vikum tví­hlíða við­skipti (kaup og sölu) fram­hjá mark­að­inum við við­skipta­vaka á gjald­eyr­is­mark­aði (Arion banka, Íslands­banka, Lands­bank­ann). “Þá er um að ræða við­skipti af stærð­argráðu sem mögu­lega valda tíma­bundnum flæð­is­frá­vikum eða óvenju­legum skamm­tíma­hreyf­ingum á gengi krón­unnar, ef þeim yrði beint inn á gjald­eyr­is­mark­að­inn. Ef af kaup­unum verður munu Síminn og Ardian vinna með Seðla­banka Íslands að fram­gangi við­skipt­anna þegar þar að kemur þannig að sem minnst áhrif verði á gjald­eyr­is­mark­aði.”

Jón Ríkharð Krist­jáns­son, fram­kvæmda­stjóri Mílu, segir í til­kynn­ingu að mik­il­vægt sé að fá svona fjár­sterkan aðila inn í upp­bygg­ingu fjar­skipta­inn­viða.

„Um leið og þetta er mikil við­ur­kenn­ing fyrir það starf sem unnið hefur verið hjá Mílu und­an­farin ár eru þetta feiki­lega spenn­andi tíma­mót fyrir félagið. Stjórn­völd hafa lengi haft þá stefnu að ljúka þurfi háhraða­netsteng­ingu um allt land en á sama tíma sagt óleyst hvernig það verði gert. Míla hefur lýst því yfir að félagið hygg­ist gera það. Um 13.000 stað­föng í bæjum og þorpum á lands­byggð­inni eru án ljós­leið­ara­teng­inga. Það er stefna nýrra eig­enda Mílu að hraða upp­bygg­ingu til þess­ara staða. Ljós­leið­ara­væð­ing er eitt stærsta byggða­mál Íslands og Ardian hefur fjár­muni og Míla þekk­ingu sem þarf til að láta verkin tala í þessum efnum. Upp­bygg­ing 5G far­síma­nets er annað umfangs­mikið verk­efni sem farið er af stað auk þess sem fjar­skipta­ör­yggi er stórt atriði sem þarf að tryggja. Það er því mjög gleði­legt að fá svona fjár­sterkan aðila í þessi mik­il­vægu verk­efni. Míla sem sjálf­stætt fyr­ir­tæki með öfl­uga eig­endur mun verða enn sterk­ari en áður og full­búið til að takast á við þessar áskor­anir sem framundan eru í að efla enn frekar íslenska fjar­skipta­inn­viði,“ er haft eftir Jóni í til­kynn­ingu sem lesa má í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár