Síminn stefnir Samkeppniseftirlitinu

Síminn vill að úrskurður áfrýj­un­ar­nefnd­ar­nefndar sam­keppn­is­mála verði felldur úr gildi. Samkvæmt honum var félag­inu gert að greiða 200 millj­ónir króna í sekt fyrir að bjóða betri kjör við sölu á Enska bolt­anum til þeirra sem eru með Heim­il­i­s­pakka Símans.

Málið snýst um hvernig Síminn seldi aðgang að Enska boltanum. Manchester City sigraði í ensku úrvaldsdeildinni á síðustu leiktíð.
Málið snýst um hvernig Síminn seldi aðgang að Enska bolt­anum. Manchester City sigr­aði í ensku úrvalds­deild­inni á síð­ustu leik­tíð. Mynd: EPA

Síminn hefur ákveðið að stefna Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu til að fella úr gildi úrskurð áfrýj­un­ar­nefndar sam­keppn­is­mála frá því í jan­úar þess efnis að félagið hafi brotið gegn sátt með því að bjóða betri við­skipta­kjör við sölu á Enska bolt­anum til þeirra sem eru með Heim­il­i­s­pakka Símans.

Áfrýj­un­ar­nefndin stað­festi nið­ur­stöðu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um að brotið hafi verið gegn sátt­inni en lækk­aði sekt­ina sem lögð var á Símann veru­lega, úr 500 í 200 millj­ónir króna. Í nið­ur­stöðu áfrýj­un­ar­nefnd­ar­innar sagði að það væri mat hennar að brot Símans væri alvar­legt og að Símanum hafi ekki getað dulist að hátt­semin kynni að fara í bága við ákvæði

Í stefnu Símans, sem Kjarninn hefur undir höndum og er dag­sett 23. júní 2021, kemur fram að félagið telji nið­ur­stöðu áfrýj­un­ar­nefnd­ar­innar efn­is­lega ranga og vill að hún verði felld úr gildi. Félagið vill enn fremur fá þær 200 millj­ónir króna sem það hefur þegar greitt í stjórn­valds­sekt til baka með drátt­ar­vöxtum.

Ætlað brot gegn sátt frá 2015

Forsaga máls­ins er sú að árið 2015 gerði Síminn sátt við Sam­keppn­is­eft­ir­litið um að tvinna ekki saman fjar­skipta­þjón­ustu og línu­legri sjón­varps­þjón­ustu. Haustið 2018 vann Síminn svo útboð um sýn­ing­ar­rétt­inn á Enska bolt­anum árið 2018 til þriggja ára og hefur sýnt leiki hans frá því ágúst 2019.

Í aðdrag­anda þess var stofnuð sér­stök sjón­varps­stöð, Síminn Sport, sem sýna átti leiki úr ensku úrvals­deild­inni. Stök áskrift að henni var seld á 4.500 krónur. Á sama tíma var hins vegar greint frá því að allir áskrif­endur að Sjón­varpi Sím­ans Premium, sem voru þá þegar 35 til 40 þús­und, myndu fá aðgang að enska bolt­an­um. Um leið var mán­að­ar­verðið fyrir þá þjón­ustu hækkað úr fimm þús­und krónum í sex þús­und krón­ur.

[adspot]Sá sem hafði verið með sýn­ing­ar­rétt­inn á Enska bolt­anum áður, fjar­skipta- og fjöl­miðla­fyr­ir­tækið Sýn, kvart­aði til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins vegna þessa.

Rannsókn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins leiddi í ljós að þorri við­skipta­vina Símans, þ.e. nærri því 99 pró­sent þeirra sem keyptu Enska bolt­ann/Símann Sport á kerfum fyr­ir­tæk­is­ins, hefðu keypt sjón­varps­efnið í heild­ar­þjón­ustu, þ.e. með Heim­il­i­s­pakk­anum og/eða Sjón­varpi Símans Premium í stað þess að kaupa þjón­ust­una eina og sér. Þannig hafi verð fyrir Símann Sport/Enska bolt­ann aðeins verið 1.000 krónur á mán­uði þegar þjón­ustan var seld sem hluti af Heim­il­i­s­pakk­anum og Sjón­varpi Símans Premium, en 4.500 krónur þegar hún var seld án þess að önnur þjón­usta væri keypt sam­hliða.

Nið­ur­staða Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins var því sú að verð­lagn­ing Símans á Enska bolt­anum sem hluta af Heim­il­i­s­pakk­anum hafi lagt stein í götu keppi­nauta fyr­ir­tæk­is­ins og tak­markað mögu­leika þeirra til að laða til sín við­skipta­vini.

Því hefði Síminn brotið gegn sátt­inni sem gerð var 2015 með því að bjóða ólík við­skipta­kjör við sölu á Enska bolt­anum á Sím­anum Sport, eftir því hvort hann var boð­inn innan Heim­il­i­s­pakka Sím­ans eða einn og sér í stakri áskrift.

Vegna þessa ætti Síminn að greiða 500 milljón króna sekt í rík­is­sjóð.

Margháttaðar ástæður taldar til

Síminn skaut þeirri nið­ur­stöðu til áfrýj­un­ar­nefndar sam­keppn­is­mála sem stað­festi í byrjun árs nið­ur­stöðu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um að brotið hafi verið gegn sátt, en að eft­ir­litið þyrfti að rann­saka nánar stöðu Símans á mark­aði að því er snerti þá hátt­semi sem í ákvörðun eft­ir­lits­ins var talin brjóta gegn sátt­inni frá 2015. Af þeim sökum var þeim þætti máls­ins vísað til nýrrar með­ferðar hjá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu.

[links]Síminn taldi þetta sýna að áfrýj­un­ar­nefndin hefði fellt ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins að hluta úr gildi. Í til­kynn­ingu sem félagið sendi til Kaup­hallar Íslands í kjöl­far nið­ur­stöðu áfrýj­un­ar­nefnd­ar­innar sagði: „Síminn fagnar því að stjórn­valds­sekt sú er Símanum var gert að greiða sé lækkuð umtals­vert. Það sýnir að hið meinta brot á skil­yrðum sem Símanum voru sett á fyrri árum var ekki með þeim hætti er Sam­keppn­is­eft­ir­litið úrskurð­aði um.“

Í stefnu félags­ins eru færðar fjöl­margar máls­á­stæður fyrir því að Síminn telji nið­ur­stöðu Sam­keppn­is­yf­ir­valda ekki halda. Í fyrsta lagi séu tugir þús­unda við­skipta­vina Símans að kaupa sömu fjar­skipta­þjón­ustu og er inni­falin í Heim­il­i­s­pakk­anum án þess að kaupa jafn­framt Heim­il­i­s­pakk­ann eða þá sjón­varps­þjón­ustu sem sé inni­falin í honum. Í öðru lagi sé óum­deilt að um 13 þús­und heim­ili séu með aðgang að ensku úrvals­deild­inni í línu­legri dag­skrá án þess að vera með Heim­il­i­s­pakk­ann. Sá fjöldi nær yfir þá sem kaupa þjón­ust­una í gegnum Símann sem staka þjón­ustu eða í gegnum önnur fjar­skipta­fyr­ir­tæki, eins og t.d. Sýn. Í þriðja lagi sé gefi dreif­ing nýrra við­skipta­vina Símans eftir að hann hóf sölu á aðgangi að Enska bolt­anum til kynna að verð­lagn­ing Heim­il­i­s­pakk­ans sé ekki slík að hún jafn­gildi skil­yrði við kaup á fjar­skipta­þjón­ustu sé jafn­framt keypt sjón­varps­þjón­usta.

Í fjórða lagi telur Síminn að sú verð­lagn­ing sem liggi til grund­vallar Heim­il­i­s­pakk­anum geti ekki verið slík að við kaup á fjar­skipta­þjón­ustu sé það gert að skil­yrði að sjón­varps­þjón­usta fylgi með í kaup­unum. Í fimmta lagi byggir Síminn á því að fella beri úrskurð áfrýj­un­ar­nefndar sam­keppn­is­mála úr gildi þar sem hún hafi brotið gegn rann­sókn­ar­reglu stjórn­sýslu­laga. Í sjötta lagi telur Síminn að með stjórn­valds­úr­lausn­unum sem um ræðir hafi verið brotið gegn jafn­ræð­is­reglu stjórn­sýslu­laga með svo alvar­legum hætti að óhjá­kvæmi­legt sé að fella þær úr gildi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár