Ætti ríkið að greiða hverri nýrri kynslóð „heimanmund“ til þess að byrja ævina á?

Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði, veltir fyrir sér þriðju leið­inni sem sam­eini hag­kvæmni hús­næð­is­mark­aðar og rétt­læt­is­kennd okkar gagn­vart því að allir eigi rétt á þaki yfir höf­uðið.

Gylfi Zoega, prófessor í hagfræði sem situr í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands.
Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði sem situr í pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands. Mynd: Skjáskot/RÚV

Ætti hver Íslend­ingur að geta sett nafn sitt á lista sem veitir honum tæki­færi til að kaupa opin­bert hús­næði þegar hann verður 20 ára? Húsnæði sem væri fjár­magnað af lánum frá líf­eyr­is­sjóðum fyrir öllu kaup­verð­inu til langs tíma á föstum vöxtum? Húsnæði sem síðar væri hægt að selja á mark­aði fyrir hærra ferð með þeim afleið­ingum að ríkið gæfi hverri nýrri kyn­slóð „heiman­mund“ til þess að byrja ævina á?

[links]Þessu veltir Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði við Háskóla Íslands og ytri með­limur í pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands, fyrir sér í grein sem birt­ist í síð­asta tölu­blaði Vís­bend­ingar.

Í grein sinni fjallar Gylfi um deilur um pen­inga­stefnu og vaxta­kjör, sem mikið er fjallað um í umræð­unni á Íslandi í tengslum við tíðar stýri­vaxta­hækk­anir Seðla­banka Íslands, en hann hefur nú hækkað vexti tíu sinnum í röð og upp í sex pró­sent. „Ef ein­stak­lingur A á eina milljón í banka og ein­stak­lingur B skuldar eina milljón þá þykir rétt­látt að B greiði A vexti fyrir lánið. Ef verð­bólga er nú 10 pró­sent þá rýrnar banka­inni­stæðan um 10 pró­sent á ári að raun­virði og lánið sömu­leiðis. Varla telst það rétt­lát að A gefi B skulda­fyr­ir­gefn­ingu án sam­þykkis. Þess vegna er mark­aðs­lausnin sú að B greiði A vexti sem eru hærri en 10 pró­sent til þess að verð­bólgan valdi ekki A tjóni og komi B til góða. Hag­kvæmn­is­rökin eru þau að lægri vextir myndu valda því að A tæki sína milljón út úr bank­anum og B gæti ekki fengið lán. En ef B þarf að greiða meira en 10 pró­sent á ári í vexti þá getur reynt á greiðslu­þol.“

[adspot]Kjarni máls­ins sé hvort það séu mann­rétt­indi að eiga rétt á því að gera átt eða leigt hús­næði. „Á ungt fólk sem vill stofna fjöl­skyldu rétt á því að geta keypt sér hús­næði á við­ráð­an­legu verði? Og eiga þeir sem hafa keypt sér hús­næði rétt á því að vaxta­kjör séu ekki síbreyti­leg og háir vextir valdi ekki búsifjum? Kjarni máls snýst um það hvort það séu mann­rétt­indi að hafa þak yfir höf­uðið. Alveg eins og það eru mann­rétt­indi að geta leitað sér lækn­is­þjón­ustu, sótt skóla, fengið bætur vegna örorku eða forð­ast fátækt í ell­inni.“

Mark­aðs­rökin fyrir því að hafa allt hús­næði á mark­aði séu þau að hátt hús­næð­is­verð kalli á meiri hús­bygg­ingar og meira fram­boð. Leiguþak sem setji hámark á leigu á mark­aði leiði sam­kvæmt þeim rök­umtil þess að færri hús verði byggð og skortur mynd­ist.

Þriðja leiðin

Gylfi segir það vett­vang stjórn­mála að rök­ræða um hvar rétt­indi borg­ar­anna endi og mark­að­ur­inn taki við. Hann veltir því fyrir sér í grein­inni hvort það sé til þriðja leið sem sam­einar hag­kvæmni mark­aðs og rétt­læt­is­kennd okkar?

„Í borg­rík­inu Singapúr, þar sem segja má að ríki menntað ein­veldi, hefur verið reynt að leysa þann vanda sem hér hefur verið lýst. Lausnin felst í því að ríkið, þ.e.a.s. hið opin­bera, fjár­magnar bygg­ingu nýs hús­næðis sem síðan er selt ungu kyn­slóð­inni á hóf­legu verði sem mið­ast við ráð­stöf­un­ar­tekjur ungs fólks.

Hér á landi gætu líf­eyr­is­sjóðir veitt ungu fólki lang­tíma­lán á föstum vöxtum til þess að fjár

magna hús­næð­is­kaupin. Lánin gætu nægt fyrir öllu kaup­verð­inu.“

Í grein Gylfa ímyndar hann sér að hver Íslend­ingur sem verði 20 ára geti sett nafn sitt á lista yfir vænt­an­lega kaup­endur opin­bers hús­næðis og þegar röðin kemur að við­kom­andi þá getur hann tekið lán hjá líf­eyr­is­sjóði á föstum vöxtum. „Ungu fólki og nýjum fjöl­skyldum væri þannig tryggt hús­næði á við­ráð­an­legu verði og byrði af hús­næð­is­lánum væri við­ráð­an­leg fyrir flesta. Síðan væri hægt að selja hús­næðið á mark­aði og þá vænt­an­lega fyrir hærra verð. Þannig gæfi ríkið hverri nýrri kyn­slóð „heiman­mund“ eða höf­uð­stól til þess að byrja ævina á. Enginn kostn­aður væri fyrir sam­fé­lagið ef fyr­ir­tæki í opin­berri eigu byggðu húsin, annar en sá að unnt væri að selja eign­irnar á mark­aði fyrir hærra verð. Ríkið fengi hins vegar bygg­ing­ar­kostnað end­ur­greiddan en fórn­ar­kostn­aður þess að selja ungu fólki á sann­gjörnu verði í stað þess að selja á mark­aði væri fjár­fest­ing í afkomu­ör­yggi ungs fólk og bættum lífs­kjörum, kannski fleiri börnum, en umfram allt ham­ingju­sam­ari ungum kyn­slóðum sem hugs­uðu fal­lega til lands og þjóðar.“

Hægt er að lesa grein Gylfa Zoega í heild sinni með því að ger­­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár