Stýrivextir orðnir 6 prósent: Hækka um 0,25 prósentustig

Seðla­bank­inn hefur nú hækkað vexti tíu vaxta­á­kvarð­anir í röð, alls um 5,25 pró­sentu­stig frá því í maí 2021, er stýri­vextir voru 0,75 pró­sent.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri er formaður peningastefnunefndar.
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri er for­maður pen­inga­stefnu­nefndar. Mynd: Bára Huld Beck

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að hækka stýri­vexti bank­ans um 0,25 pró­sentu­stig. Meg­in­vextir bank­ans, vextir á sjö daga bundnum inn­lánum, verða því 6 pró­sent. Stýri­vext­ir, sem ákvarða fjár­magns­kostnað heim­ila og fyr­ir­tækja, hafa nú verið hækk­aðir við síð­ustu tíu vaxta­á­kvarð­anir nefnd­ar­inn­ar, en þeir voru 0,75 pró­sent í maí í fyrra.

Í yfir­lýs­ingu pen­inga­stefnu­nefndar segir að verð­bólga hafi auk­ist á ný í októ­ber og mælst 9,4 pró­sent, verð­hækk­anir séu á breiðum grunni og und­ir­liggj­andi verð­bólga hafi áfram auk­ist. Gert er ráð fyrir því að verð­bólgan verði 9,4 pró­sent að með­al­tali núna á síð­asta árs­fjórð­ungi, en að hún taki svo smám saman að hjaðna og verði komin niður í 4,5 pró­sent á síð­asta árs­fjórð­ungi næsta árs.

[adspot]

Þar segir einnig að vís­bend­ingar séu um að kjöl­festa verð­bólgu­vænt­inga í verð­bólgu­mark­miði Seðla­bank­ans hafi veikst, og því gæti tekið lengri tíma en ella að ná verð­bólgu í mark­mið. Að auki hafi gengi krón­unnar lækkað frá því að pen­inga­stefnu­nefnd kom samn í byrjun októ­ber og verð­bólgu­á­lag á skulda­bréfa­mark­aði til lengri tíma hækkað nokkuð.

„Samkvæmt nýrri þjóð­hags­spá Seðla­bank­ans er gert ráð fyrir að hag­vöxtur verði 5,6% í ár. Horfur fyrir næsta ár hafa batnað og nú er spáð 2,8% hag­vexti í stað 1,9% í ágúst. Skýrist það af horfum um hrað­ari vöxt inn­lendrar eft­ir­spurnar en áður var talið. Spenna á vinnu­mark­aði er enn tölu­verð þótt heldur hafi dregið úr henni.

Pen­inga­stefnu­nefnd mun áfram tryggja að taum­hald pen­inga­stefn­unnar sé nægj­an­legt til að verð­bólga hjaðni í mark­mið innan ásætt­an­legs tíma. Pen­inga­stefnan mun á næst­unni ráð­ast af þróun efna­hags­um­svifa, verð­bólgu og verð­bólgu­vænt­inga. Ákvarð­anir í atvinnu­lífi, á vinnu­mark­aði og í rík­is­fjár­málum munu skipta miklu um þróun vaxta á næstu miss­erum,“ segir í yfir­lýs­ingu pen­inga­stefnu­nefnd­ar­innar.

Næsta vaxta­á­kvörðun pen­inga­stefnu­nefndar verður í febr­úar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár