Greiðslubyrði 50 milljón króna óverðtryggðs láns aukist um næstum 1,5 milljónir á ári

Sá sem býr við íþyngj­andi hús­næð­is­kostnað getur í dag tekið 42 pró­sent lægri upp­hæð að láni til að kaupa hús­næði en hann gat í maí í fyrra. Ástæðan eru hærri vextir.

Húsnæðismarkaðurinn hefur kólnað ansi hratt síðustu misseri.
Hús­næð­is­mark­að­ur­inn hefur kólnað ansi hratt síð­ustu miss­eri. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Greiðslu­byrði óverð­tryggðs íbúða­láns með breyti­legum vöxtum upp á 50 millj­ónir króna er nú um 311.500 krónur. Í maí í fyrra, áður en stýri­vaxta­hækkun Seðla­banka Íslands hófst, var greiðslu­byrði láns að sömu upp­hæð 188.500 krónur. Hún hefur því hækkað um 123 þús­und krónur á mán­uði eða tæp­lega 1,5 millj­ónir króna á ári. Greiðslu­byrðin hefur auk­ist um 65 pró­sent.

Þetta má sjá úr tölum sem birtar eru í nýj­ustu mán­að­ar­skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) um íbúða­mark­að­inn. Þar kemur fram að greiðslu­byrði óverð­tryggðra lána sé nú 62.300 krónur fyrir hverjar tíu millj­ónir sem teknar eru að láni en hafi verið 37.700 krónur í maí í fyrra. Seðla­banki Íslands hækk­aði stýri­vexti sína í gær upp í sex pró­sent og því má búast við að íbúða­lána­vextir hækki enn frekar í nán­ustu fram­tíð. Þetta var í tíunda sinn í röð sem Seðla­bank­inn hækk­aði vexti, en þeir voru 0,75 pró­sent í maí í fyrra. Fyrir vikið eru íbúða­lána­vextir hærri en þeir hafa verið í tólf ár, eða frá árinu 2010, skömmu eftir banka­hrunið þegar enn var verið að end­ur­reisa föllnu bank­ana og íslenskt atvinnu­líf.

Næstum helmingur óverðtryggðra lána á breytilegum vöxtum

Í umfjöllun HMS segir að 46 pró­sent af öllum útistand­andi óverð­tryggðum íbúð­ar­lánum séu á breyti­legum vöxtum. Það þýðir að rúm­lega helm­ingur þeirra er á föstum vöxtum sem voru upp­haf­lega til þriggja eða fimm ára.

[adspot]Stór hluti af þeim lánum eru með vaxta­end­ur­skoðun á næstu árum. Alls verða vextir óverð­tryggðra lána upp á 340 millj­­­arða króna end­­­ur­­­skoð­aðir á árunum 2023 og 2024 og vextir á lánum upp á 250 millj­­­arða króna koma til end­­­ur­­­skoð­unar árið 2025. Þorri þeirra lána eru óverð­­­tryggð.

Því er ljóst að stór hluti heim­ila í land­inu annað hvort býr við veru­lega auk­inn hús­næð­is­kostnað eða sér fram á veru­lega aukn­ingu.

Dregur úr getu til að skuldsetja sig

HMS bendir á að hærri vextir þýði að heim­ilin geti ekki skuld­sett sig jafn mikið og áður því geta þeirra til skuld­setn­ingar fer eftir greiðslu­byrði lána. Nú dugi sama greiðslu­geta skemur en áður. Þá á eftir að taka inn í dæmið að íbúða­verð í fjöl­býli á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þar sem næstum tveir af hverjum þremur lands­mönnum búa, hefur hækkað um 21,5 pró­sent síð­ast­liðið ár.

Algengt er að tala um íþyngj­andi hús­næð­is­kostnað ef hann er hærri en 25 pró­sent af tekjum eða 40 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekjum, þ.e. tekjum eftir skatt. Ef miðað er við greiðslu­byrði lána sem jafn­gildir 25 pró­sent af meðal skatt­skyldum launa­greiðslum dugar það nú til þess að taka allt að 25,3 milljón króna óverð­tryggt lán. Í maí 2021 hefði sama við­mið dugað til að taka lán upp á 43,9 millj­ónir króna. Við­kom­andi gæti því tekið 42 pró­sent lægri upp­hæð að láni nú en fyrir yfir­stand­andi vaxta­hækk­un­ar­ferli Seðla­bank­ans.

Fjármálaleg skilyrði heimila versnað

Í nýjasta riti Pen­inga­mála Seðla­banka Íslands, sem kom út á mið­viku­dag, kemur fram að fjár­mála­leg skil­yrði heim­ila lands­ins hafi versnað. Vaxta­gjöld heim­ila í hlut­falli við ráð­stöf­un­ar­tekjur hafi hækkað frá því í fyrra eftir mikla lækkun í kjöl­far lækk­unar vaxta í heims­far­aldr­inum Vaxta­gjöldin eru þó enn undir sögu­legu með­al­tali þrátt fyrir mikla hækkun vaxta í ár enda hafa ráð­stöf­un­ar­tekjur hækkað umtals­vert.

[adspot]Í rit­inu segir að áhrif vaxta­hækk­ana á greiðslu­byrði skuldugra heim­ila gætir fyrr nú en áður þar sem lið­lega fjórð­ungur íbúða­lána ber breyti­lega óverð­tryggða vexti og óverð­tryggð lán á föstum vöxtum séu að stærstum hluta með fasta vexti til ein­ungis þriggja ára. „Greiðslu­byrði lán­tak­enda sem festu vexti á fast­eigna­lánum þegar vextir voru í sögu­legu lág­marki mun því að öðru óbreyttu aukast þegar tíma­bil fastra vaxta rennur út. Á sama tíma hefur hlutur verð­tryggðra íbúða­lána af nýjum lánum auk­ist þótt verð­tryggðir vextir hafi einnig hækkað frá fyrri hluta árs í takt við almennt hækk­andi raun­vexti.“

Hlut­deild verð­tryggðra lána af útistand­and­andi lánum er nú um 56 pró­sent.

Greiðslu­byrði þeirra er lægri en óverð­tryggðra fyrstu árin eftir að lánin eru tekin, en eykst svo skarpt séu þau látin lifa allan sinn líf­tíma. Í verð­bólgu­á­standi líkt og nú ríkir, þar sem verð­bólgan er 9,4 pró­sent, leggj­ast hins­vegar miklar verð­bætur á höf­uð­stól lána.

Í skýrslu HMS segir að greiðslu­byrði 50 milljón króna láns til 30 ára á verð­tryggðum vöxtum sé nú um 192 þús­und krónur, eða um 119.500 krónum lægri en í dæm­inu um óverð­tryggt lán á breyti­legum vöxtum sem tekið var hér í upp­hafi.

Gerðu greiningu um þróunina frá byrjun árs 2020

Seðla­bank­inn skil­aði minn­is­blaði til fjár­laga­nefndar fyrr í mán­uð­inum þar sem hann reikn­aði út aukn­ingu á greiðslu­byrði allra lána frá byrjun árs 2020 og fram í ágúst 2022.

[links]Í byrjun þess tíma­bils voru stýri­vextir bank­ans þrjú pró­sent en í lok þess komnir upp í 5,5 pró­sent. Þar var því ekki verið að reikna þá auknu greiðslu­byrði sem orðið hefur frá því í maí í fyrra, þegar vextir voru 0,75 pró­sent og höfðu aldrei verið lægri, heldur yfir mun lengra tíma­bil. Nið­ur­staða grein­ingar bank­ans var sú að greiðslu­byrði allra íbúða­lána, óverð­tryggðra og verð­tryggðra, hefði auk­ist að með­al­tali um 13 til 14 þús­und krónur á mán­uði að með­al­tali, eða um rúm­lega 160 þús­und krónur á ári.

Í grein­ing­unni kom líka fram að greiðslu­byrði lána hefði minnkað hjá 20 til 25 pró­sent lán­tak­enda á umræddu tíma­bili, og í meira mæli hjá tekju­hærri en tekju­lægri. Greiðslu­byrði hefur hækkað mest hjá þeim sem eru með óverð­tryggð lán á breyti­legum vöxt­um. Á mynd­inni má sjá að greiðslu­byrði margra af íbúða­lánum hefur hækkað um tugi þús­unda króna á mán­uði.

Þá ber að nefna að skulda­staða heim­ila í hús­næði er afar mis­mun­andi. Því lægri sem lánin eru því minni áhrif hafa vaxta­hækk­anir á afborg­an­ir. Frá upp­hafi árs 2020 hefur íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þar sem flestir lands­menn búa, hækkað um 50 pró­sent. Þeir eru að koma inn á íbúða­mark­að­inn á þessum tíma hafa því þurft að taka mun hærri lán en áður og verða því fyrir meiri áhrifum af verð­bólgu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár