„Verðbólgan var ekki fundin upp á Tene“

Þing­maður Við­reisnar segir að ekki sé hægt að rök­styðja stýri­vaxta­hækk­anir með sól­ar­landa­ferðum Íslend­inga til Tenerife. „Verð­bólgan var ekki fundin upp á Tene.“ For­sæt­is­ráð­herra segir að horfa verði á stóru mynd­ina.

Þorbjörg Sigríður Gunnarsdóttir, þingmaður Viðreisnar.
Þorbjörg Sigríður Gunn­ars­dóttir, þing­maður Við­reisnar. Mynd: Eyþór Árnason

„Hvers vegna þarf þrefalt hærri stýri­vexti hér en í Evrópu til að vinna gegn verð­bólgu sem er sú næst lægsta í álf­unni?“

Þannig hljóð­aði spurn­ing Þor­bjargar Sigríðar Gunn­laugs­dóttur, þing­manns Við­reisnar, til Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag.

[links]Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands ákvað í gær að hækka stýri­vexti bank­ans um 0,25 pró­sentu­stig. Meg­in­vextir bank­ans, vextir á sjö daga bundnum inn­lán­um, verða því 6 pró­sent. Stýri­vext­ir, sem ákvarða fjár­­­magns­­kostnað heim­ila og fyr­ir­tækja, hafa nú verið hækk­­aðir við síð­­­ustu tíu vaxta­á­kvarð­­anir nefnd­­ar­inn­­ar, en þeir voru 0,75 pró­­sent í maí í fyrra.

Þorbjörg tók dæmi um birt­ing­ar­mynd þeirrar þró­unar sem hækkun stýri­vaxta, tíu sinnum í röð, hefur haft. Þannig hefur greiðslu­byrði heim­ilis með 50 milljón króna óverð­tryggt land til 40 ára á breyti­legum vöxtum hækkað úr 180 krónum á mán­uði í 330 þús­und krónur. Greiðslu­byrðin hefur því auk­ist um 150 þús­und krónur á mán­uði.

„Horf­urnar eru dökkar, áhrifin á heim­ilin eru þung, á fyr­ir­tækin og allt sam­fé­lagið. Og auð­vitað er þessi staða erfið inn í kjara­samn­inga,“ sagði Þorbjörg. Hún benti á að vextir hér á landi eru hærri en í Evrópu þrátt fyrir að verð­bólgan sé það ekki.

[adspot]„Verð­bólgan ytra er í hæstu hæðum, það þekkjum við, meðal ann­ars vegna inn­rásar Rússa í Úkraínu og orku­kreppu sem fylgir. En þrátt fyrir það eru strýri­vextir hér þrefalt hærri en stýri­vextir evr­ópska seðla­bank­ans, þrefalt hærri en á hinum Norð­ur­lönd­unum.“

Þá sagði hún útlit fyrir að hús­næð­is­vextir verði áfram tölu­vert hærri á Íslandi en í nágranna­ríkj­unum. „Þetta er gömul saga og ný, saga sem gleymd­ist að ræða þegar lág­vaxa­skeiðið svo­kall­aða var boðað og ástæðan er ekki bara sú að þjóðin leyfi sér að fara í sum­ar­frí á sól­ina á Tenerife. Verð­bólgan var ekki fundin upp á Tene. En vegna þess­ara íslensku aðstæðna er líka aukin þörf á aðhaldi í rík­is­fjár­málum, á ábyrgri efna­hags­stjórn, án hennar eru heim­ili lands­ins dæmd til að bera eina þung­ann af þessu verð­bólgu­skeiði.“

Þorbjörg spurði í fram­hald­inu for­sæt­is­ráð­herra hvers vegna stýri­vextir hér þurfi að vera þrefalt hærri en í Evrópu til að vinna gegn verð­bólgu sem er sú næst lægsta í álf­unni?

Tveir valkostir í boði: Seðlabankinn eða Evrópusambandið

Verð­bólga jókst á ný í októ­ber og mælist nú 9,4 pró­sent. Í yfir­lýs­ingu pen­inga­stefnu­nefndar segir að gert er ráð fyrir því verð­bólgan verði 9,4 pró­sent að með­al­tali núna á síð­asta árs­fjórð­ungi, en að hún taki smám saman að hjaðna og verði komin niður í 4,5 pró­sent á síð­asta árs­fjórð­ungi næsta árs.

Katrín sagði að ræða þurfi málið í stærra sam­hengi.

„Ísland er lítið hag­kerfi, okkar gjald­mið­ill er lít­ill, við sjáum meiri sveiflur í slíku hag­kerfi en stærri hag­kerfum. Það getur verið kostur og það getur verið galli.“

„Ef við ætlum að ræða um gjald­miðil og pen­inga­stefnu þurfum við að ræða stóra sam­hengið.“

Katrín sagði tvo val­kosti í boði. Annars vegar að styrkja þau tæki sem til eru til þess að stýra íslenska hag­kerf­inu eins og gert hefur verið, til að mynda með því að veita Seðla­bank­anum auknar heim­ildir til inn­gripa á hús­næð­is­mark­aði.

Hins vegar er val­kost­ur­inn aðilda að Evr­ópu­sam­band­inu og upp­taka evru. „Það felur auð­vitað miklu meira í sér en ein­göngu breyt­ingar á pen­inga­stefn­unni, það er bara miklu stærra mál en svo.“

Katrín fund­aði með aðilum vinnu­mark­að­ar­ins í morgun til að ræða áhrif vaxta­hækk­un­ar­innar á kjara­við­ræður sem nú standa yfir. „Ég tel að það væri mik­ill hagur okkar allra, almenn­ings í þessu landi, ef unnt verður að halda frið á vinnu­mark­aði. Í þeim efnum hafa stjórn­völd lýst sig reiðu­búin til sam­tals, til þess að leggja sitt af mörkum til að greiða fyrir mögu­legum kjara­samn­ingum.“

En Katrín ítrek­aði að ef ræða ætti pen­inga­stefnu almennt þurfi að ræða það í stærra sam­hengi.

Erum að ræða stóru myndina

Þorbjörg Sigríður sagði að það væri hún að gera. „Gjald­mið­ill­inn er hluti af stóru mynd­inni, tví­mæla­laust, og um hann er mjög lítið rætt. Það hefur verið rætt um það ára­tugum saman að styrkja þessi tæki sem hæstv. for­sæt­is­ráð­herra vísar til. Staðan er eftir sem áður alltaf sú, og hefur verið lengi, að við búum við þetta vaxta­stig sem er bein afleið­ing af því hver gjald­mið­ill­inn okkar er,“ sagði Þorbjörg, sem sagð­ist sakna þess að heyra ekki svar for­sæt­is­ráð­herra við spurn­ing­unni af hverju þörf er á þrefalt hærri stýri­vöxtum hér en ann­ars staðar í Evrópu.

Þorbjörg sagði rík­is­stjórn­ina bera mikla ábyrgð á að halda verð­bólg­unni í skefjum með aðhaldi í rík­is­rekstr­inum með því að vera ekki í þenslu­hvetj­andi aðgerðum. „Rík­is­stjórnin verður að axla sinn hlut í þessu máli. Eitt sterkasta fram­lag hæstv. for­sæt­is­ráð­herra núna gagn­vart kjara­samn­ing­unum væri að stýra rík­is­fjár­mál­unum með þeim hætti að mark­mið um að ná tökum á verð­bólg­unni geti náðst fram,“ sagði Þorbjörg.

Katrín sagði rík­is­stjórn­ina vera að leggja sitt af mörkum til þess að beita aðhaldi í rík­is­rekstri í fjár­laga­frum­varp­inu sem lagt hefur verið fram.

„Seðla­bank­inn hefur verið að beita sínum tækjum og ég vil bara ítreka það að Seðla­bank­inn er sjálf­stæður. Hann hefur verið að beita stýri­vaxta­tæk­inu vegna lög­gjafar sem kom til að frum­kvæði þess­arar rík­is­stjórnar. Þá fékk Seðla­bank­inn víð­tæk­ari stýri­tæki gagn­vart hús­næð­is­mark­aðnum og það er stór­mál þegar kemur að hag­stjórn í þessu landi, stór­mál sem ekki hefur verið nægj­an­lega rætt hér í þessum sal né ann­ars staðar,“ sagði Katrín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár