Lækkun bankaskatts á að skila sér til almennings

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra hefur lagt fram frum­varp um lækkun banka­skatts.

Í frum­varpi Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, er lagt til að banka­skattur verði lækk­aður úr 0,376 pró­sent af heild­ar­skuldum í 0,145 pró­sent, en horft er til þess að lækk­unin skili sér til almenn­ings í gegnum betri kjör hjá fjár­mála­stofn­unum.

Verði frum­varpið að lögum munu skatt­tekjur rík­is­ins drag­ast saman um 18 millj­arða króna á árunum 2020 til 2023.

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu er vitnað til þess að í stjórn­ar­sátt­mála sé vikið að því, að unnið verði að frek­ari skil­virkni í fjár­mála­kerf­inu með það að leið­ar­ljósi að lækka kostnað neyt­enda. „Í fjár­mála­á­ætlun rík­is­ins fyrir árin 2016–2020 komu fyrst fram þau áform að skatt­hlut­fallið 0,376% héld­ist óbreytt árin 2017–2019 á meðan fram­leiðslu­spenna og þensla vegna eft­ir­spurnar gengi yfir í hag­kerf­inu og rík­is­sjóður væri enn að greiða niður skuldir sem mynd­uð­ust eftir fjár­mála­hrunið. Hlut­fallið yrði síðan lækkað í fjórum jöfnum skrefum á árunum 2020–2023 niður í 0,145%. Sams konar áform komu fram í næstu tveimur fjár­mála­á­ætl­unum,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Íslenska ríkið er stærsti eig­andi fjár­mála­fyr­ir­tækja á Íslandi, og ræður yfir á bil­inu 70 til 80 pró­sent af þeirri þjón­ustu sem í boði er. Ríkið á Íslands­banka að öllu leyti, og ríf­lega 98 pró­sent hlut í Lands­bank­anum, sem jafn­framt er stærsti bank­inn á mark­aðnum.

Samtök fjár­mála­fyr­ir­tækja hafa kvartað tölu­vert undan banka­skatt­an­inum, og sagt að hann dragi úr sam­keppn­is­hæfni íslenska banka­kerf­is­ins og leiði til verri kjara fyrir almenn­ing. Með lækkun skatts er komið til móts við þessi við­horf, og á hann að skila sér í betri kjörum - t.d. lægri útlána­vöxtum - til íslenskra heim­ila og fyr­ir­tækja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár