Tíu staðreyndir um íslenska banka sem eru enn að græða fullt af peningum

Stóru bank­arnir þrír áttu mjög gott ár í fyrra og juku hagnað sinn um 170 pró­sent milli ára. Í ár hefur ekki gengið alveg jafn vel, en samt prýði­lega. Vaxta­munur eykst umtals­vert og tugir millj­arða króna hafa verið greiddir út til hlut­hafa.

Bankastjórar þriggja stærstu banka landsins.
Banka­stjórar þriggja stærstu banka lands­ins. Mynd: Samsett

Um 50 milljarða hagnaður á níu mánuðum

Allir stóru bank­­arnir þrír; Lands­bank­inn, Arion banki og Íslands­banki, birtu upp­gjör sitt vegna fyrstu níu mán­aða árs­ins í lið­inni viku. Þar kemur fram að sam­an­lagður hagn­aður þeirra á tíma­bil­inu var 50,2 millj­arðar króna. Arion banki hagn­að­ist um 20,4 millj­arða króna, Íslands­banki um 18,5 millj­arða króna og Lands­bank­inn um 11,3 millj­arða króna. Ástæða þess að hagn­aður rík­is­bank­ans er minni en hinna er að uppi­stöðu vegna þess að hann á óbeint stóran hlut í Marel, sem hefur hrunið í verði það sem af er ári. Sá liður í efna­hags­reikn­ingi bank­ans hefur lækkað um 7,6 millj­arða króna það sem af er ári. Arion banki seldi auk þess Valitor á árinu og bók­færði 5,6 millj­arða króna sölu­hagnað.

Gangi bönk­unum jafn­vel á síð­asta árs­fjórð­ungi og þeim hefur gengið hingað til á árinu mun sam­eig­in­legur hagn­aður þeirra vera um 67 millj­arðar króna á yfir­stand­andi ári.

Það er minna en þeir högn­uð­ust um í fyrra, þegar þeir höl­uðu inn 81,2 millj­örðum króna. Þann fyr­ir­vara verður þó að hafa á þeim hagn­aði að hann var gríð­ar­legur, eða 170 pró­sent meira en bank­arnir þrír högn­uð­ust um árið 2020.

Bank­arnir þrír urðu allir til á grund­velli neyð­ar­laga sem sett voru haustið 2008, í kjöl­far banka­hruns­ins. Þá voru eignir fall­inna banka fluttar með handafli yfir á nýjar kenni­töl­ur. Sam­an­lagður hagn­aður stóru bank­anna frá hruni er 800,4 millj­arðar króna. Mestur var hann árið 2015, en þá lit­aði umfangs­mikil eigna­sala upp­gjör­ið.

Virði útlánasafna eykst hjá tveimur bönkum

Hinn mikli hagn­aður bank­anna í fyrra var að stóru leyti til­kom­inn vegna þess að virð­is­mat á útlána­safni þeirra jókst um sam­tals 13,2 millj­arða króna. Auk þess stækk­uðu útlána­söfn þeirra mikið, aðal­lega vegna þess að þeir hafa aukið við lán­veit­ingar til íbúð­ar­kaupa.

Hjá tveimur bönkum hefur þró­unin varð­andi virð­is­breyt­ingu haldið áfram. Hún var jákvæð um 2,7 millj­arða króna hjá Lands­bank­anum á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og um 2,2 millj­arða króna hjá Íslands­banka. Virð­is­breyt­ing lán var hins vegar nei­kvæð um 267 millj­ónir króna á tíma­bil­inu hjá Arion banka.

Vaxtamunur um og yfir þrjú prósent

Vaxta­munur bank­anna þriggja – mun­ur­inn á því sem þeir borga fyrir að fá fjár­magn að láni og því sem þeir rukka fyrir að lána heim­ilum og fyr­ir­tækjum – er nú 2,8 til 3,2 pró­sent. Mestur er hann hjá Arion banka. Þetta er umtals­vert meiri vaxta­munur en var í fyrra, þegar hann var 2,3 til 2,8 pró­sent, og á árinu 2020, þegar hann var að með­al­tali 2,7 pró­sent. Þetta er við­snún­ingur frá fyrri árum en frá 2016 lækk­aði vaxta­mun­ur­inn nokkuð stöðugt.

[adspot]Vegna þessa hafa hreinar vaxta­tekjur bank­anna auk­ist gríð­ar­lega á milli ára, og farið úr 77,3 millj­örðum króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2021 í 94,2 millj­arða króna á sama tíma­bili í ár. Það er aukn­ing upp á 16,9 millj­arða króna, eða 22 pró­sent.

Þessi þróun hefur átt sér stað þrátt fyrir að rík­is­stjórn Íslands hafi ákveð­ið, sem efna­hags­legt við­bragð við kór­ónu­veiru­far­aldr­in­um, að lækka banka­skatt á heild­­ar­skuldir þeirra banka sem skulda yfir 50 millj­­arða króna úr 0,376 í 0,145 pró­­sent árið 2020. Ein helsta rök­semd­ar­færsla for­svars­manna fjár­mála­kerf­is­ins fyrir því að lækka banka­skatt­inn hefur verið sú að það skili minni vaxta­mun. Að pen­ing­arnir sem ríkið gefi eftir í tekjum, um sex millj­arðar króna á ári, muni skila sér til neyt­enda. Það virð­ist þó ekki vera raunin miðað við þann vaxta­mun sem er hjá bönk­un­um.

Stórsókn á íbúðalánamarkað

Sam­setn­ing á útlána­safni bank­anna þriggja hefur hefur tekið tölu­verðum breyt­ingum síð­ustu ár þar sem útlán til heim­ila námu tæp­lega 55 pró­sent af heild­ar­út­lánum til heim­ila og fyr­ir­tækja um mitt þetta ár en hlut­fallið var 45 pró­sent í lok árs 2019. Langstærstur hluti útlána til heim­ila eru íbúða­lán, en með­al­vextir íbúða­út­lána til heim­ila eru lægri en á fyr­ir­tækja­lánum. Hlut­deild banka í úti­stand­andi íbúða­lánum er nú yfir 70 pró­­­sent en var 55 pró­­­sent í byrjun árs 2020.

Í síð­asta Fjár­mála­stöð­ug­leika­riti Seðla­banka Íslands sagði að öðru óbreyttu ætti vaxta­munur bank­anna að lækka eftir því sem hlut­fall íbúða­lána eykst í útlána­söfn­unum. Ólíklegt sé því að vaxta­munur bank­anna þriggja muni ná fyrri gildum nema álag hækki.

Þóknanatekjur jukust um tólf prósent

Annar stór póstur í tekju­­mó­d­eli banka eru þókn­ana­­tekj­­ur, stundum líka kall­aðar þjón­ust­u­­tekj­­ur. Þar er um að ræða þókn­­anir fyrir t.d. eigna­­stýr­ingu og fyr­ir­tækja­ráð­­gjöf. Alls inn­heimtu bank­arnir þrír 30 millj­arða króna í hreinar slíkar tekjur frá byrjun árs og út sept­em­ber­mánuð. Það er rúm­lega tólf pró­sent meira en þeir fengu í greinar þókn­ana­tekjur á sama tíma­bili 2021.

Til að setja auk­inn hagnað bank­anna af þókn­ana­tekjum í sam­hengi má benda á að þær juk­ust gríð­ar­lega í fyrra, og því er eft­ir­tekt­ar­vert að þær haldi áfram að vaxa í ár. Hjá Lands­bank­anum juk­ust þær um fjórð­ung milli 2020 og 2021, hjá Íslands­banka um 22,1 pró­sent og hjá Arion banka um heil 26,7 pró­sent.

Arðsemin yfir markmiði hjá öllum nema Landsbanka

Bankar halda á miklu magni af eigin fé. Það magn sem þeir þurfa að halda á, til að geta til dæmis tek­ist á við áföll og virð­is­rýrnun lána, var aukið veru­lega eftir banka­hrunið til að koma í veg fyrir að sama staða kæmi upp á ný. Eigið fé við­skipta­bank­anna þriggja var sam­an­lagt 671,3 millj­arðar króna í lok sept­em­ber.

Sá mæli­kvarði sem stjórn­endur banka nota til að mæla árangur sinn er ekki endi­lega hversu mik­ill hagn­aður er í krónum talið, heldur hver hlut­falls­leg arð­semi þessa eigin fjár er. Stjórnir við­skipta­banka á Íslandi gera kröfu um að arð­semi eigin fjár sé að minnsta kosti tíu pró­sent, og í sumum til­fellum hærri. Arion gerir til að mynda kröfu um að hún sé yfir 13 pró­sent. Sögu­lega þá náði hún að vera sam­eig­in­lega rúm­lega ell­efu pró­sent að með­al­tali hjá bönk­unum þremur á árunum 2009 til 2018, en þar vigtar inn í að ein­skiptis­tekjur vegna t.d. sölu eigna voru umtals­verðar á fyrri hluta þess tíma­bils. Arð­semi eigin fjár Lands­bank­ans hækk­aði úr 4,3 pró­sent 2020 í 10,8 pró­sent í fyrra. Hún hefur hins vegar lækkað umtals­vert það sem af er ári og var 5,6 pró­sent á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Mikil lækkun hluta­bréfum Marel, sem hafa lækkað um rúm­lega 40 pró­sent á árinu, skiptir þar mestu enda á bank­inn umtals­verðan óbeinan hlut í félag­inu í gegnum Eyri Invest.

Hjá Íslands­banka hækk­aði hún úr 7,6 pró­sent í 14,2 pró­sent í fyrra en var 12,1 pró­sent á fyrstu níu mán­uðum yfir­stand­andi árs. Hjá Arion banka fór arð­semin úr 6,5 pró­sent í 14,7 pró­sent milli 2020 og 2021. Hún var mest allra bank­anna það sem af er ári, eða 14,8 pró­sent á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2022.

Kostnaðarhlutfall tveggja nálgast 40 prósent

Önnur leið til að auka hagnað er að spara í kostn­aði. Þar snýst allt um að ná niður hinu svo­kall­aða kostn­að­ar­hlut­falli, sem mælir hvað kostn­að­ur­inn er stórt hlut­fall af tekj­um. Yfir­lýst mark­mið íslensku bank­anna hefur verið að ná því hlut­falli niður fyrir 45-50 pró­sent og þeir eru að ná þeim mark­mið­um.

[adspot]Kostn­að­ar­hlut­fall Arion banka hefur verið 41,8 pró­sent það sem af er ári. Það var litlu hærra hjá Íslands­banka, eða 41,9 pró­sent, en bank­inn hefur end­ur­skoðað mark­miðið sitt fyrir árið í að vera á bil­inu 41 til 44 pró­sent. Kostn­að­ar­hlut­fall Lands­bank­ans var hæst, eða 48,9 pró­sent.

Tugum milljarða skóflað út til hluthafa

Ein skil­virkasta leiðin til að auka arð­semi eigin fjár er að minnka ein­fald­lega eigið féð með því að greiða það eigið fé sem þeir halda á umfram kröfur eft­ir­lits­að­ila út til hlut­hafa. Bæði Arion banki og Íslands­banki hafa það sem yfir­lýst mark­mið að gera það, í gegnum arð­greiðslur og end­ur­kaup á bréf­um. Minna eigið fé þýðir að hlut­falls­leg arð­semi eig­in­fjár í ann­ars óbreyttum rekstri eykst.

Arion banki, eini stóri bank­inn sem er ekki að neinu leyti í opin­berri eigu, hefur verið allra banka dug­leg­astur í þess­ari veg­ferð. Alls greiddi bank­inn út arð eða keypti eigin bréf af hlut­höfum fyrir 31,5 millj­­arða króna ​á síð­­asta ári. Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2022 hefur Arion banki skilað 28,9 millj­örðum króna til hlut­hafa sinna í gegnum arð­greiðslur og end­ur­kaup á bréf­um. Því hefur Arion banki greitt yfir 60 millj­arða króna út til hlut­hafa sinna á tveimur árum. Bank­inn hefur þegar boðað áform um að greiða enn meira út til þeirra í fyr­ir­sjá­an­legri fram­tíð þannig að útgreiðsl­urnar nálgist 90 millj­arða króna.

Íslands­banki greiddi hlut­höfum sínum 11,9 millj­­arða króna í arð vegna síð­asta árs. Auk þess kom fram fyrr á þessu ári að stjórn bank­ans stefni að því að greiða út 40 millj­­arða króna í umfram eigið fé fyrir lok næsta árs. Þegar hefur verið sam­þykkt end­ur­kaupa áætlun fyrir 15 millj­arða króna í ár.

Banka­ráð Lands­­bank­ans sam­þykkti á aðal­fundi í mars að greiða 14,4 millj­­arðar króna í arð vegna árs­ins 2021. Banka­ráð sam­þykkti auk þess fyrr í ár að greiða út sér­staka arð­greiðslu upp á 6,1 millj­arð króna. Arð­greiðslur Lands­bank­ans fara nær allar í rík­is­sjóð.

Hluthöfum Arion banka fjölgar en hluthöfum Íslandsbanka fækkar

Lands­bank­inn er að nán­ast öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins þótt nokkur fjöldi starfs­manna eigi lít­inn hlut. Arion banki hefur verið skráður á markað frá sumr­inu 2018. Fjöldi hlut­hafa hans óx úr 7.400 í 11.300 í fyrra, eða um 53 pró­sent. Hluta­bréfa­verð í bank­anum tvö­fald­að­ist í fyrra. Það sem af er þessu ári hefur fjöldi hlut­hafa haldið áfram að vaxa, eða alls um 9,2 pró­sent, og voru þeir 12.350 í lok sept­em­ber. Það sem af er ári hefur hluta­bréfa­verð í Arion banka lækkað um 7,4 pró­sent, en stærstu eig­endur hans eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir.

[adspot]Ríkið hóf að selja hluti í Íslands­banka í fyrra, þegar 35 pró­sent hlutur var seld­ur, og bank­inn var skráður á markað í júní 2021. Þá voru hlut­hafar í bank­anum 24 þús­und tals­ins. Í almennu útboði sem fór fram í aðdrag­anda skrán­ingar var þátt­taka almenn­ings mikil enda þótti útboðs­geng­ið, 79 krónur á hlut, vera afar lágt miðað við efna­hags­reikn­ing bank­ans og stöðu mála á hluta­bréfa­mark­aði á þeim tíma. Á fyrsta degi við­skipta hækk­aði verðið enda um 20 pró­sent.

Samkvæmt upp­gjöri Íslands­banka fyrir fyrstu níu mán­uði árs­ins voru hlut­hafar í Íslands­banka 13.559 í lok sept­em­ber. Þeim hefur því fækkað um rúm­lega tíu þús­und frá því í fyrra­sumar. Stærstu hlut­haf­arnir eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir. Alls hefur hluta­bréfa­verð í Íslands­banka hækkað um 6,8 pró­sent það sem af er ári og er nú 63 pró­sent hærra en það var í almenna útboð­inu í fyrra­sumar. Í mars var 22,5 pró­sent hlutur í Íslands­banka seldur í lok­uðu útboði til 207 fjár­festa á geng­inu 117 krónur á hlut. Gengið nú er tæp­lega tíu pró­sent hærra.

Frekari einkavæðing á ís

Í fjár­laga­frum­varp­inu sem kynnt var í byrjun sept­em­ber er gert ráð fyrir að eft­ir­stand­andi 42,5 pró­­sent hlutur rík­­is­ins í Íslands­­­banka verði seldur fyrir 75,8 millj­­arða króna.

Það er gert þrátt fyrir yfir­lýs­ingu for­manna stjórn­ar­flokk­anna og að salan hafi verið sett á ís í vor á meðan að Rík­­is­end­­ur­­skoðun og fjár­­­mála­eft­ir­lit Seðla­­banka Íslands rann­­sök­uðu hluta síð­­asta skrefs sem stigið var í sölu­­ferl­inu.

Hvorki Rík­­is­end­­ur­­skoðun né fjár­­­mála­eft­ir­litið hefur birt neins konar nið­­ur­­stöðu úr rann­­sóknum sín­um, Sam­­­­­­kvæmt könnun sem Gallup gerði í vor töldu 88,4 pró­­­­­­sent þjóð­­­­­­ar­innar að óeðli­­­­­­legir við­­­­­­skipta­hættir hafi átt sér stað við söl­una á Íslands­­­banka og 83 pró­­­­­­sent þjóð­­­­­­ar­innar var óánægð með fram­­­­­­kvæmd­ina.

Kjarninn greindi frá því í byrjun októ­ber að for­sæt­is­ráðu­neytið segði að ekki hefði verið tekin ákvörðun um áfram­hald­andi sölu eign­ar­hluta rík­is­ins í Íslands­banka. Yfir­lýs­ing for­manna stjórn­ar­flokk­anna þriggja frá 19. apríl, þar sem segir að ekki verði ráð­ist í sölu á frek­ari hlutum í Íslands­banka að sinni, stendur því enn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár