Stjórnendur Arion banka vona að niðurstaðan verði í „sem mestri sátt við samfélagið“

Yfirlýst stefna Arion banka er að verk­efni sem hann styðji hafi jákvæð áhrif á bæði umhverfi og sam­fé­lag. Kjarninn spurði stjórn­endur bank­ans hvort þeir teldu sölu og end­ur­ræs­ingu kís­il­vers­ins í Helguvík sam­ræm­ast hinni grænu stefnu.

Engin starfsemi hefur verið í kísilverksmiðjunni í Helguvík í rúmlega fjögur ár.
Engin starf­semi hefur verið í kís­il­verk­smiðj­unni í Helguvík í rúm­lega fjögur ár. Mynd: Af vef Reykjanesbæjar

„Þetta er vilja­yf­ir­lýs­ing og því engin nið­ur­staða komin í málið,“ segir Haraldur Guðni Eiðsson, for­stöðu­maður sam­skipta­sviðs Arion banka, spurður hvort stjórn­endum bank­ans þyki vilja­yf­ir­lýs­ing sem gerð hefur verið við eig­endur kís­il­vers­ins á Bakka um mögu­leg kaup á kís­il­verk­smiðj­unni í Helguvík, sam­ræm­ast stefnu bank­ans, grænu veg­ferð­inni. Í stefn­unni segir m.a.: „Við hjá Arion banka viljum stöðugt gera betur og viljum að verk­efnin sem við styðjum við­skipta­vini okkar í hafi jákvæð áhrif á bæði umhverfi og sam­fé­lag.“

[links]Augljós og mikil and­staða er meðal bæði bæj­ar­yf­ir­valda í Reykja­nesbæ og íbúa sveit­ar­fé­lags­ins við þau áform Stakks­bergs, dótt­ur­fé­lags Arion banka, að gera end­ur­bætur á verk­smiðj­unni, end­ur­ræsa hana og stækka. „Auðvitað von­umst við til að nið­ur­staðan, hver sem hún verður, verði í sem mestri sátt við sam­fé­lagið,“ svarar Haraldur Guðni enn­fremur.

Hann segir stjórn­endur Arion banka hafa um nokk­urt skeið kannað ýmsa mögu­leika varð­andi fram­tíð kís­il­verk­smiðj­unnar í Helguvík. „Bankinn hefur haft það mark­mið að annað hvort finna hæfa aðila með við­ur­kennda reynslu af starf­semi kís­il­vera til að taka við starf­semi kís­il­vers­ins eða finna aðra lausn sem þá fæli ekki í sér að starf­semi hæf­ist á ný í kís­il­ver­inu,“ segir Haraldur.

Líkt og Kjarninn greindi frá í gær hafa Arion banki og PCC nú und­ir­ritað vilja­yf­ir­lýs­ingu varð­andi mögu­leg kaup PCC SE, meiri­hluta­eig­anda PCC BakkiSilicon hf., á verk­smiðj­unni. „Þar sem um vilja­yf­ir­lýs­ingu er að ræða er á þessum tíma­punkti óvíst hvort af kaup­unum verði,“ segir í skrif­legu svari Haraldar til Kjarnans við þeirri spurn­ingu hvort Arion banki ætli, þrátt fyrir hina miklu and­stöðu í Reykja­nesbæ, að halda því til streitu að selja verk­smiðj­una.

Vilji bæj­ar­yf­ir­valda stendur til þess að verk­smiðjan verði rifin og sagði Friðjón Ein­ars­son for­maður bæj­ar­ráðs í sam­tali við Kjarnann fyrr í vik­unni að á því hefðu aðilar sýnt áhuga.

Haraldur segir að einn af þeim kostum sem hafi verið til skoð­unar á und­an­förnum árum sé sá að flytja verk­smiðj­una, „en nú er málið komið í þennan far­veg og við þurfum bara að sjá hvernig því mun vinda fram“.

Félagið Sameinað síli­kon (United Silicon) rak kís­il­verk­smiðj­una um tíu mán­aða skeið á árunum 2016-2017. Allan þann tíma gekk rekst­ur­inn illa og hund­ruð kvart­ana bár­ust frá íbúum vegna ólyktar og heilsu­fars­legra óþæg­inda. Umhverf­is­stofnun stöðv­aði starf­sem­ina haustið 2017. Sameinað Sílikon fór í þrot og stærsti kröfu­hafi verk­efn­is­ins, Arion banki, tók eign­irnar yfir.

Bankinn ætlar sér vissu­lega ekki sjálfur að reka kís­il­ver. Dótt­ur­fé­lag hans, Stakks­berg, hefur síð­ustu ár unnið að nýju umhverf­is­mati fyrir verk­smiðj­una sem miðar að end­ur­bótum á henni, end­ur­ræs­ingu og stækkun úr einum ljós­boga­ofni í fjóra. Matinu lauk með áliti Skipu­lags­stofn­unar sem gefið var út á gaml­árs­dag. Sala á verk­smiðj­unni, með hvaða hætti sem hún á sér stað, hefur ávallt verið mark­mið bank­ans.

„Áhugavert væri að sjá grænni starfsemi“

Það hefur hins vegar ekki alltaf legið beint við að kís­il­málm­bræðsla hefj­ist í verk­smiðj­unni að nýju í Helguvík. Á upp­gjörs­fundi í febr­úar á síð­asta ári sagði Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka, að þar sem bank­inn bók­færði aðeins hrakvirði á verk­smiðj­una væri það „vís­bend­ing um að litlar vonir séu um að verk­smiðjan muni starfa aftur, áhuga­vert væri að sjá aðra og græni starf­semi eiga sér stað þar í fram­tíð­inni“.

Er þessi orð voru látin falla, fyrir tæpu ári síðan, hafði bank­inn fært niður bók­fært virði Stakks­bergs um 5,3 millj­arða á innan við tveimur árum. Virði þess var því þá 1,6 millj­arðar króna.

En nú er eignin, löskuð verk­smiðja sem ekki hefur verið starf­rækt í rúm­lega fjögur ár, en með stimpli Skipu­lags­stofn­unar á mati á umhverf­is­á­hrifum end­ur­bóta og stækk­unar, orðin sölu­vænni en áður. Verð á kísli hafði verið á nið­ur­leið áður en heims­far­ald­ur­inn skall á. Flestar hrá­vörur hafa hins vegar hækkað í verði und­an­farna mán­uði og er kís­ill þar engin und­an­tekn­ing.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

arion

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár