Valitor selt á 12,3 milljarða króna

Greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tækið Valitor, sem hefur verið til sölu hjá Arion banka frá árinu 2018, hefur loks­ins verið selt. Með söl­unni býst Arion banki við að umfram eigið fé sitt muni aukast um þrjá millj­arða króna.

Fjár­tækni­fyr­ir­tækið Rapyd hefur samið um kaup á Valitor hf. fyrir 100 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða 12,3 millj­örðum íslenskra króna. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem birt­ist á vef Keld­unnar fyrr í dag.

Samkvæmt til­kynn­ing­unni er gert ráð fyrir því að kaupin klárist í lok þessa árs, en enn á eftir að fá sam­þykki eft­ir­lits­að­ila fyrir þeim.

Valitor, sem er greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tæki í eigu Arion banka, hefur verið til sölu frá árinu 2018. Samkvæmt árs­reikn­ingum bank­ans hefur það skilað millj­arða­tapi frá þeim tíma, en sam­an­lagt tap þess árin 2018, 2019 og 2020 nam 13 millj­örðum króna.

Í síð­asta árs­reikn­ingi Arion banka segir að Valitor hafi ráð­ist í umfangs­mikla end­ur­skipu­lagn­ingu og hag­ræð­ing­ar­að­gerðir í fyrra, auk þess sem starf­semi félags­ins í Danmörku og hluti starf­sem­innar í Bret­landi hafi verið seld. „Áfram er Valitor í sölu­ferli en það hefur tekið lengri tíma en upp­haf­lega var gert ráð fyrir, m.a. vegna breyttra mark­aðs­að­stæðna tengdum Covid-19. Þrátt fyrir þessa seinkun finnur bank­inn áhuga frá ýmsum aðilum á kaupum á Valitor.“

Arion gerir nú ráð fyrir að færa til tekna rúm­lega 3,5 millj­arða í sölu­hagnað og áætlar að umfram eigið fé hækki um 8 til 11 millj­arða króna. Samkvæmt sölu­til­kynn­ing­unni munu við­skipta­vinir Valitor ekki verða fyrir neinni röskun á þjón­ustu vegna kaupanna og eiga brátt að hafa aðgang að greiðslu­leiðum og fjár­tækni­þjón­ustu Rapyd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

arion

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár