Salan á Valitor hækkar umfram eigið fé Arion banka í 51 milljarð – Ætla að borga það út

Arion banki ætlar að greiða hlut­höfum sínum út yfir 50 millj­arða króna í arð­greiðslur og með end­ur­kaupum á eigin bréfum á næstu árum. Bankinn hagn­að­ist um 14 millj­arða á fyrri hluta árs. Líf­eyr­is­sjóðir eru langstærstu eig­endur hans.

Arion banki var skráður á markað fyrir rúmum þremur árum. Siðan þá hefur hlutabréfaverð hans hækkað mikið. Frá því í mars í fyrra hefur það hækkað um 220 prósent.
Arion banki var skráður á markað fyrir rúmum þremur árum. Siðan þá hefur hluta­bréfa­verð hans hækkað mikið. Frá því í mars í fyrra hefur það hækkað um 220 pró­sent. Mynd: Nasdaq Iceland

Gengið var frá söl­unni á greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Valitor frá Arion banka til fjar­tækni­fyr­ir­tæk­is­ins Rapyd 1. júlí síð­ast­lið­inn og var kaup­verðið 100 millj­ónir dala, um 12,4 millj­arðar króna. Bók­færður hagn­aður Arion banka vegna söl­unnar er áætl­aður um 3,5 millj­arðar króna.

Salan á Valitor til Rapyd mun hins vegar líka hafa önnur áhrif á rekstur Arion banka. Hún mun auka umfram eigið fé bank­ans úr 42 millj­örðum króna í 51 millj­arð króna, en Arion banki hefur þá skýru stefnu að greiða út umfram eigið fé sitt til hlut­hafa í formi arð­greiðslna eða með end­ur­kaupum á bréfum þeirra á næstu árum. Á fyrri hluta árs­ins 2021 greiddi bank­inn 2,9 millj­arða króna í arð til þeirra og keypti eigin bréf þeirra til baka fyrir alls 14,9 millj­arða króna.

Þetta kemur fram í fjár­festa­kynn­ingu vegna hálfs árs upp­gjörs Arion banka sem birt var seint í síð­ustu viku. Þar sagði enn fremur að stjórn bank­ans áskildi sér rétt til að halda auka hlut­hafa­fund síðar á þessu ári til að leggja til frek­ari arð­greiðslur til hlut­hafa í ljósi sterkar eig­in­fjár­stöðu Arion banka.

Stefna sem legið hefur fyrir lengi

Þegar Arion banki var skráður á markað á fyrri hluta árs­ins 2018 lá fyrir að mark­mið ráð­andi hlut­hafa væri að greiða sér út eins mikið af eigin fé hans og hægt væri, á sem skemmstum tíma.

[adspot]Í fjár­festa­kynn­ingu sem Kvika vann fyrir Kaupþing, þá stærsta eig­anda Arion banka, í aðdrag­anda skrán­ingar kom fram að svig­rúm væri til að greiða út allt að 80 millj­arða króna, eða þriðj­ung alls eigin fjár Arion banka, á til­tölu­lega skömmum tíma með ýmsum hætti.

Það væri hægt að gera í gegnum breyt­ingu á fjár­mögnun bank­ans, með því að draga úr útlánum hans, með því að minnka kostnað í gegnum upp­sagnir á starfs­fólki, með því að hrinda í gang umfangs­mik­illi end­ur­kaupa­á­ætlun á hluta­bréfum í bank­anum og svo auð­vitað í gegnum arð­greiðslur.

Þá á átti að selja und­ir­liggj­andi eignir sem væru ekki hluti af kjarna­starf­semi Arion banka.

Tímabundið stopp vegna COVID-19

Í byrjun árs 2020 hafði flest í þeirri leik­á­ætlun gengið eftir. Eigið fé Arion banka hafði lækkað úr 225,7 millj­örðum króna í 190 millj­arða króna frá lokum árs 2017 og fram til loka árs 2019, eða um tæpa 36 millj­arða króna.

Til við­bótar töldu grein­ing­ar­að­ilar að bank­inn geti búið þannig um hnút­anna að það myndi losna um tugi millj­arða króna til útgreiðslu þegar árið 2020 er á enda, aðal­lega með því að minnka útlán sín.

Til stóð að minnka þau um 20 pró­sent á síð­asta ári. Í afkomu­spá sem Hag­fræði­deild Lands­bank­ans vann um upp­gjör Arion banka í aðdrag­anda birt­ingu árs­reikn­ings hans fyrir árið 2019 var því spáð að arð­greiðslur bank­ans gætu orðið 50 millj­arðar króna á tólf mán­uðum. Kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn kom í veg fyrir að þau áform gengu eftir sam­kvæmt þeirri tíma­línu sem lagt var upp með. Samhliða því að Seðla­banki Íslands réðst í að veita bönk­unum miklar til­slak­anir til að þeir gætu aðstoðað í bar­átt­unni við efna­hagslægð­ina sagði Ásgeir Jónsson, seðla­banka­stjóri, að það væri algjör­lega ótækt af Arion banka að íhuga arð­greiðslur eða end­ur­kaup á bréfum við ríkj­andi aðstæður.

Um 14 milljarða hagnaður á hálfu ári

Þessi staða hefur nú breyst ansi hratt og Arion banki fékk fyrr á þessu ári heim­ild Fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands til að ráð­ast í þau end­ur­kaup á hluta­bréfum sem bank­inn stefndi á að fram­kvæma á árinu 2021. Auk þess taldi bank­inn í vor að arð­greiðslu­mark­mið hans séu í takti við það sem heim­ilt er að gera.

Arion banki fór enda ansi vel í gegnum síð­asta ár. Hagnaður bank­ans nam 12,5 millj­örðum króna og hann náði því mark­miði sínu á síð­asta árs­fjórð­ungi að vera með arð­semi á eigin fé sitt yfir tíu pró­sentum, en hún var alls 11,8 pró­sent á síð­ustu þremur mán­uðum síð­asta árs.

Gang­ur­inn hefur verið enn betri það sem af er þessu ári. Samtals hagn­að­ist Arion banki um 13,9 millj­arða króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2021. Arðsemi eigin fjár á öðrum árs­fjórð­ungi var 16,3 pró­sent. Heildar eigið fé bank­ans var 194 millj­arðar króna í lok júní og eigið féð án áhrifa af söl­unni á Valitor, sem enn þarf að fá sam­þykki við­eig­andi eft­ir­lits­að­ila, 42 millj­arðar króna. Gangi salan eftir mun umfram­eigið féð hækka í 51 millj­arð króna.

Eigendurnir sem fá mest

Tölu­verð breyt­ing hefur orðið á hlut­hafa­hóp Arion banka á síð­ustu miss­erum. Frá því í lok sept­­em­ber í fyrra hafa tveir stærstu eig­endur bank­ans á und­an­­förnum árum selt sam­tals stóran hlut í honum. Um er að ræða vog­un­­ar­­sjóð­ina Taconic Capital Advisors og Sculptor Capital Mana­gement. Á örfáum vikum fór eign­ar­hlutur Taconic í Arion banka úr 23,22 pró­sentum í ekk­ert. Sculptor seldi sömu­leiðis allan 6,12 pró­sent hlut sinn snemma á þessu ári.

Fleiri vog­un­­ar­­sjóð­ir, sem komu inn í eig­enda­hóp Arion banka eftir að hafa til­­heyrt kröf­u­hafa­hópi Kaup­þings, hafa líka verið að selja sig niður. Fjórir slíkir, meðal ann­ars þeir tveir áður­nefndu, áttu sam­an­lagt 32,57 pró­sent hlut í Arion banka fyrir ári. Nú eru sjóðir Eaton Vance þeir einu sem eru eftir í eig­enda­hópnum með 0,84 pró­sent eign­ar­hlut.

Inn­­­lendir fag­fjár­­­festar hafa keypt stærstan hluta þess sem vog­un­­ar­­sjóð­irnir hafa selt. Þeir eru að mestu íslenskir líf­eyr­is­­sjóð­­ir.

Sam­an­lagður eign­­ar­hluti þeirra líf­eyr­is­­sjóða sem birt­­ast á lista yfir 20 stærstu eig­endur bank­ans var 22,42 pró­­sent í byrjun síð­­asta árs. Í lok sept­­em­ber 2020 hafði hann auk­ist í 29,17 pró­­sent. Nú stendur hann í 42,56 pró­sentum.

Þrír stærstu líf­eyr­is­­sjóðir lands­ins: Gildi, Líf­eyr­is­­sjóður verzlunarmanna og Líf­eyr­is­­sjóður starfs­­manna rík­­is­ins (LSR) hafa bætt mest við sig og eiga nú sam­tals 26,78 pró­sent eign­ar­hlut í bank­anum.

Fleiri líf­eyr­is­­sjóð­ir: Stapi, Birta, Frjálsi líf­eyr­is­­sjóð­­ur­inn og Lífs­verk hafa allir líka bætt við sig í Arion banka á síð­­­ustu mán­uð­u­m.

Langstærsti einka­fjár­festir­inn í Arion banka í dag er fjár­fest­inga­fé­lagið Stoðir með 4,99 pró­sent eign­ar­hlut.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

arion

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár