Arion hefur hagnast um 22 milljarða það sem af er ári

Hagnaður Arion banka á þriðja árs­fjórð­ungi nam 8,2 millj­örðum króna og seg­ist í „mjög góðri stöðu“ til að lækka eigið fé með útgreiðslum.

Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka
Benedikt Gíslason banka­stjóri Arion banka Mynd: Arion banki

Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins hefur Arion banki hagn­ast um 22 millj­arða króna, en hagn­aður bank­ans nam rúm­lega átta millj­örðum króna á síð­ustu þremur mán­uðum. Bankinn seg­ist vera í góðri stöðu til að greiða hlut­höfum sínum arð eða kaupa upp eigin bréf, auk þess sem hann seg­ist til­bú­inn að mæta eft­ir­spurn eftir nýjum lánum. Þetta kemur fram í nýbirtu árs­fjórð­ungs­upp­gjöri bank­ans.

Samkvæmt upp­gjör­inu er eig­in­fjár­hlut­fall bank­ans, sem nú er í 20,9 pró­sent ef tekið er til­lit til væntar arð­greiðslur, langt umfram kröfur sem settar eru fram í lögum og af Fjár­mála­eft­ir­liti Seðla­bank­ans. Í frétta­til­kynn­ingu sem fylgdi birt­ingu upp­gjörs­ins segir Benedikt Gíslason, banka­stjóri bank­ans að bæði eigin- og lausa­fjár­hlut­föll bank­ans væru „með því hæsta sem ger­ist í Evrópu.“ Bankinn seg­ist einnig vera í „mjög góðri stöðu mjög góðri stöðu til að lækka eigið fé með útgreiðslum“ í kynn­ing­unni.

Frá ára­mót­unum hafa lán til við­skipta­vina auk­ist um níu pró­sent, en aukn­ing íbúða­lána nam 16,4 pró­sent á sama tíma. Samhliða auknum útlánum hefur bank­inn einnig sótt sér meira fé með auk­inni lán­töku, en inn­lán bank­ans juk­ust um 12,8 pró­sent á fyrstu þremur fjórð­ungum árs­ins.

Með auknum útlánum juk­ust tekjur bank­ans af lána­starf­semi, en þær voru 7,5 pró­sentum meiri á nýliðnum árs­fjórð­ungi, sam­an­borið við sama tíma­bil í fyrra. Aukn­ingin í þókn­ana­tekjum var hins vegar mun meiri, en þær juk­ust um rúm­lega þriðj­ung á sama tíma. Samkvæmt bank­anum var þetta besti árs­fjórð­ungur hvað hreinar þókn­ana­tekjur varðar frá árinu 2016.

Ef litið er til fyrstu níu mán­aða árs­ins hafa rekstr­ar­tekjur bank­ans auk­ist um fimmt­ung, miðað við sama tíma­bil í fyrra, á meðan rekstr­ar­kostn­aður hefur hald­ist nokkurn veg­inn óbreyttur. Fyrir vikið hefur hagn­að­ur­inn stór­auk­ist, en hann er rúm­lega þrefalt meiri í ár heldur en í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

arion

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár